Fréttablaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Bjarna Karlssonar BAkþAnkAR Fyrir skömmu varð andlát í stórfjölskyldunni og fjögurra ára nafni minn hefur orðið nokkuð hugsi. Um daginn var hann í fjallgöngu með mömmu sinni og spurði: Af hverju er fólk sett ofan í jörðina þegar það er dáið? Hún tjáði honum að það væri kannski gott að leyfa líkamanum að sameinast jörðinni og gróðrinum þegar við gætum ekki lengur notað hann. Eftir fleiri stutt skref í glaðri páskasól kom næsta spurning: Lifir maður þá bara einu sinni? Þá fékk hann að heyra söguna um Jesú þegar hann hitti vini sína eftir upprisuna. Viska trúarinnar víkur sér ekki undan veruleikanum en slær fáu föstu. Þegar Sigurbjörn Einarsson biskup var orðinn aldraður og hafði látið af embætti var hann eitt sinn í viðtali á einhverjum ljósvaka- miðlinum. Þáttarstjórinn hafði orð á því að nú væri hann orðinn eldri maður og spurði hvort hann kviði dauðanum? Já, svaraði biskupinn, og það sem verra er, ég veit ekkert hvað tekur við. Það kom heldur á spyrilinn en Sigurbjörn brosti með glampa í augum og mælti: En ég veit hver tekur við, og það nægir mér. Kristin upprisutrú er ekki hug- myndakerfi heldur reynsla af nær- veru. Líkt og foreldri huggar barn með nálægð sinni þannig er hinum trúaða huggun og styrkur af nær- veru Guðs sem hvarvetna birtist, í hjarta manns jafnt sem náttúrunni og öðru fólki. Þess vegna er kristin kirkja ekki í prósentukeppni við Siðmennt um skírnir og fermingar eins og nú er hampað, en biður þess að hvert barn fái að vita að við erum öll bræður og systur og þau séu frjáls að efast og trúa á góðan Guð sem elskar allt sem lifir. Hin trúuðu halda ekki að þau séu handhafar sannleikans en þau lifa í þeirri við- leitni og von að sannleikurinn hafi hönd á þeim svo þau megi láta gott af sér leiða. Bara einu sinni? HAFÐU ÞAÐ NOTALEGT UM BORÐ Í WOW COMFY Þú velur um ýmsar leiðir þegar þú flýgur með WOW air. WOW comfy er fyrir þá sem vilja aukin þægindi um borð. Innifalið er flugmiði, lítil taska eða veski, handfarangur, innrituð taska, XL eða XXL sæti og forfallavernd. NÝTT XL eða XXL sætabil (81–92 cm) Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Fermingarskraut! Finndu okkur á Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum 0 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 5 9 -3 3 C 8 1 F 5 9 -3 2 8 C 1 F 5 9 -3 1 5 0 1 F 5 9 -3 0 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.