Fréttablaðið - 04.04.2018, Qupperneq 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Bjarna
Karlssonar
BAkþAnkAR
Fyrir skömmu varð andlát í stórfjölskyldunni og fjögurra ára nafni minn hefur orðið
nokkuð hugsi. Um daginn var hann
í fjallgöngu með mömmu sinni og
spurði: Af hverju er fólk sett ofan í
jörðina þegar það er dáið? Hún tjáði
honum að það væri kannski gott
að leyfa líkamanum að sameinast
jörðinni og gróðrinum þegar við
gætum ekki lengur notað hann. Eftir
fleiri stutt skref í glaðri páskasól
kom næsta spurning: Lifir maður
þá bara einu sinni? Þá fékk hann að
heyra söguna um Jesú þegar hann
hitti vini sína eftir upprisuna. Viska
trúarinnar víkur sér ekki undan
veruleikanum en slær fáu föstu.
Þegar Sigurbjörn Einarsson
biskup var orðinn aldraður og hafði
látið af embætti var hann eitt sinn
í viðtali á einhverjum ljósvaka-
miðlinum. Þáttarstjórinn hafði orð
á því að nú væri hann orðinn eldri
maður og spurði hvort hann kviði
dauðanum? Já, svaraði biskupinn,
og það sem verra er, ég veit ekkert
hvað tekur við. Það kom heldur á
spyrilinn en Sigurbjörn brosti með
glampa í augum og mælti: En ég veit
hver tekur við, og það nægir mér.
Kristin upprisutrú er ekki hug-
myndakerfi heldur reynsla af nær-
veru. Líkt og foreldri huggar barn
með nálægð sinni þannig er hinum
trúaða huggun og styrkur af nær-
veru Guðs sem hvarvetna birtist, í
hjarta manns jafnt sem náttúrunni
og öðru fólki. Þess vegna er kristin
kirkja ekki í prósentukeppni við
Siðmennt um skírnir og fermingar
eins og nú er hampað, en biður þess
að hvert barn fái að vita að við erum
öll bræður og systur og þau séu
frjáls að efast og trúa á góðan Guð
sem elskar allt sem lifir. Hin trúuðu
halda ekki að þau séu handhafar
sannleikans en þau lifa í þeirri við-
leitni og von að sannleikurinn hafi
hönd á þeim svo þau megi láta gott
af sér leiða.
Bara einu sinni?
HAFÐU ÞAÐ NOTALEGT
UM BORÐ Í WOW COMFY
Þú velur um ýmsar leiðir þegar þú flýgur með WOW air. WOW comfy er fyrir
þá sem vilja aukin þægindi um borð. Innifalið er flugmiði, lítil taska eða
veski, handfarangur, innrituð taska, XL eða XXL sæti og forfallavernd.
NÝTT
XL eða XXL sætabil (81–92 cm)
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Fermingarskraut!
Finndu okkur á
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
9
-3
3
C
8
1
F
5
9
-3
2
8
C
1
F
5
9
-3
1
5
0
1
F
5
9
-3
0
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K