Fréttablaðið - 04.04.2018, Síða 14
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
Róbert Wessman og viðskiptafé
lagar hans gengu frá greiðslu upp
á 1,4 milljarða króna til Matt híasar
H. Johannessen í byrjun síðustu
viku, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
Hæstiréttur dæmdi í febrúar
f y r r ve ra n d i vi ð s k i p t a f é l a g a
Matthíasar, þá Róbert, Árna Harð
arson og Magnús Jaroslav Magnús
son, til þess að greiða honum 640
milljónir króna, auk vaxta og
dráttarvaxta, í skaðabætur fyrir
að hafa hlunnfarið hann í við
skiptum með óbeinan eignarhlut
í lyfjafyrirtækinu Alvogen.
Staðfesti Hæstiréttur dóm hér
aðsdóms um að ráðandi hluthafar
í félaginu Aztiq Pharma Partners
hefðu – með sölu á sænsku dótt
urfélagi sem hélt með óbeinum
hætti utan um 30 prósenta hlut í
Alvogen á undirverði – tekið hags
muni einstakra hluthafa fram yfir
hagsmuni Matthíasar og bakað sér
þannig skaðabótaskyldu gagnvart
honum.
Sænska dótturfélagið var um
mitt ár 2010 selt fyrir í mesta
lagi 1,5 milljónir króna og gegn
ógreiddri viðbótargreiðslu þó
svo að verðmæti þess hafi numið
nærri 1,7 milljörðum króna á sama
tíma. – kij
Hafa greitt Matthíasi 1.400 milljónir
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Hagnaður Kerfélagsins, eiganda
Kersins í Grímsnesi, var ríflega 58
milljónir króna í fyrra og næstum
tvöfaldaðist frá árinu 2016 þegar
hann var 30 milljónir. Þá námu
tekjur félagsins 113 milljónum og
jukust um meira en 60 prósent á
milli ára.
Þetta má lesa út úr nýjum árs
reikningi Kerfélagsins sem er í jafnri
eigu Óskars Magnússonar, Ásgeirs
Bolla Kristinssonar, Jóns Pálma
sonar og Sigurðar Gísla Pálmasonar.
Gjaldtaka við Kerið hófst sumarið
2013 og er aðgangseyrir þar nú 400
krónur með virðisaukaskatti. Í sam
tali við Fréttablaðið fyrir ári sagði
Óskar, stjórnarformaður Kersins, að
um 150 þúsund manns hefðu heim
sótt eldgíginn á árinu 2016. Miðað
við mikla tekjuaukningu félagsins
í fyrra, þegar það rukkaði gesti um
113 milljónir í aðgangseyri, má því
ætla að samtals um 240 þúsund hafi
þá heimsótt Kerið.
Hluthafar Kersins hafa hingað
til ekki greitt sér neinn arð út úr
félaginu. Óskar hefur sagt að engin
ákvörðun um arðgreiðslu hafi verið
tekin og vísað til þess að félagið vilji
eiga fyrir þeim tugmilljóna fram
kvæmdum sem það hefur ráðist í
og áformaðar eru. – hae
Eigendur Kersins hagnast
um nærri 60 milljónir
Gjaldtaka við Kerið í Grímsnesi
skilaði Kerfélaginu samtals 113
milljónum í tekjur í fyrra.
Fréttablaðið/Ernir
Nýtt öflugt
bókhaldskerfi í skýinu
frá manninum sem færði
okkur Dynamics Ax
Prófaðu
frítt í
30 daga
www.uniconta.is
Lagast að þínum þörfum
Erik Damgaard
Stofnandi Uniconta
Andstaða innan stjórnkerfisins og á meðal sumra ráðherra ríkisstjórnarinnar réð mestu um að fallið var frá
áformum um að aðgreina Valitor
Holding, dótturfélag Arion banka,
frá bankanum, áður en kemur að
útboði og skráningu, þannig að bréf
kortafyrirtækisins yrðu greidd út í arð
til hluthafa, samkvæmt heimildum
Markaðarins.
Við þá ráðstöfun hefðu vogunar
sjóðir og Goldman Sachs, sem eiga
um 32 prósenta hlut í bankanum,
jafnframt fengið kauprétt að 21,4
prósenta hlut til viðbótar í Valitor.
Einstakir ráðherrar, ásamt ýmsum
embættismönnum, mátu það sem
svo að slík arðgreiðsla væri síður
en svo til þess fallin að auka traust
á fjármálakerfinu og færi mögulega
gegn ákvæðum stöðugleikaskilyrða
Kaupþings. Skýr afstaða Bankasýslu
ríkisins, sem lagðist eindregið gegn
áformunum og vildi fremur selja Val
itor í opnu söluferli, hafði auk þess sín
áhrif, jafnvel þótt stofnunin sé ekki
lengur á meðal hluthafa bankans,
en ríkið seldi sem kunnugt er 13 pró
senta hlut sinn í lok febrúar.
Kaupþing, sem hyggst selja allt að
55 prósenta hlut sinn í bankanum í
útboði síðar á árinu, taldi sér ekki
fært að fara gegn afstöðu stjórn
valda í þessu máli en fulltrúar þess
vinna núna meðal annars að því að
ná samkomulagi um endurskoðun á
forkaupsrétti ríkisins við opið útboð.
Að öðrum kosti er talið að forkaups
rétturinn, sem virkjast ef Kaupþing
selur bréf sín undir genginu 0,8
miðað við eigið fé, muni valda óvissu
og aftra fjárfestum frá þátttöku í
útboðinu og þar með koma í veg
fyrir að raunverulegt markaðsverð á
bankanum yrði leitt fram.
Á meðal þeirra sem hafa komið
að þeirri vinnu fyrir ríkið að undan
förnu er Bretinn Michael Ridley, fyrr
verandi bankamaður hjá JP Morgan,
sem veitti stjórnvöldum ráðgjöf við
fjármálaáfallið 2008 samkvæmt
heimildum Markaðarins. Mun hann
starfa tímabundið að málefnum sem
tengjast fjármálakerfinu á Íslandi,
en hann var fenginn að þeirri vinnu
einkum fyrir tilstuðlan Lilju Alfreðs
dóttur, sem situr í ráðherranefnd um
efnahagsmál og endurskipulagningu
fjármálakerfisins.
ríkið fær minna í sinn hlut
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
síðasta mánuði hefur stjórn Arion
banka ákveðið að leggja áform um
að aðgreina Valitor frá bankanum
til hliðar. Afar ólíklegt þykir að
þau áform verði endurvakin eftir
skráningu. Meirihluti hluthafa,
vogunarsjóðir og Kaupþing, hafði
sóst nokkuð eftir því að kortafyrir
tækið yrði aðskilið frá samstæð
unni. Fyrrnefndur kaupréttur, sem
samið var um samhliða því að gengið
var frá kaupum fjárfestahópsins á
tæplega 30 prósenta hlut Kaupþings
í Arion í mars í fyrra, virkjast aðeins
komi til þess að bréfin í kortafyrir
tækinu greiðist út til hluthafa með
arðgreiðslu eða öðrum sambæri
legum hætti. Samkvæmt heimildum
Markaðarins mun kaupréttur sjóð
anna renna út innan fárra mánaða.
Sá sem talaði einkum fyrir því af
hálfu vogunarsjóðanna að Valitor
yrði aðgreint frá bankanum fyrir
útboðið var maður að nafni Pierre
Bour. Hann var meðeigandi Attestor
Capital þar til nýlega er hann lét af
störfum.
Að sögn kunnugra er líklegt að
ríkið fái að endingu lægra stöðug
leikaframlag í sinn hlut, nú þegar
fallið hefur verið frá áformum um
að greiða Valitor út í arð til hluthafa.
Afar ósennilegt er að raunveru
legt markaðsvirði Valitor verði að
fullu verðlagt þegar kortafyrirtækið
verður selt, sem hluti af samstæð
unni, í fyrirhuguðu útboði. Ljóst sé
að Kaupþing gæti fengið hærra verð
fyrir óbeinan eignarhlut sinn í Val
itor með því að aðgreina fyrst fyrir
tækið frá bankanum, „vinna með
það“ eitt og sér á allra næstu árum
og auka þannig virði þess.
Markaðsvirði Valitors er töluvert
hærra en sem nemur virði fyrirtækis
ins í bókum Arion banka. Samkvæmt
nýlegu verðmati greiningarfyrir
tækisins IFS, sem byggist á margföld
urum erlendra samanburðarfélaga,
er virði eigin fjár Valitors metið á
um 30,6 milljarða króna. Til saman
burðar er eigið fé kortafyrirtækisins
bókfært á um 16,3 milljarða króna í
bókum Arion.
Í afkomuskiptasamningi stjórn
valda og Kaupþings er sérstaklega
gert ráð fyrir því, sem lið í því að fá
sem hæst verð fyrir hlut Kaupþings í
Arion banka, að hægt sé að aðgreina
einstakar eignir eða eignarhluti
bankans frá honum í aðdraganda
og undirbúningi að sölu hlutabréfa.
Tryggt er í samningnum að hann
nái einnig utan um hinar aðgreindu
eignir, svo sem Valitor. Ríkið myndi
þannig njóta góðs af sölu og virðis
aukningu kortafyrirtækisins í formi
hærra stöðugleikaframlags, þótt
félagið yrði aðgreint frá bankanum
með sérstakri arðgreiðslu.
Nokkurrar óánægju hefur gætt á
meðal fulltrúa Kaupþings og vog
unarsjóðanna að ekki hafi verið
gripið til nægilega markvissra
aðgerða á undanförnum misserum
til þess að draga úr rekstrarkostn
aði og bæta arðsemi Arion banka
í aðdraganda hlutafjárútboðsins.
Þrátt fyrir að rúmt ár sé liðið frá því
að sjóðirnir og Goldman eignuðust
hlut í bankanum hafa þeir haft lítil
sem engin áhrif á stjórn hans. Aðeins
Attestor Capital og Goldman fara
með atkvæðarétt í bankanum en
atkvæðaréttur hinna sjóðanna er
í höndum Kaupskila, dótturfélags
Kaupþings.
hordur@frettabladid.is
kristinningi@frettabladid.is
Andstaða stjórnvalda
stoppaði arðgreiðslu
Kaupþing og vogunarsjóðir hættu við að greiða Valitor út í arð vegna andstöðu við
þau áform innan stjórnkerfisins og á meðal einstakra ráðherra. Slík ráðstöfun væri
engu að síður líkleg til að skila ríkinu hærra stöðugleikaframlagi frá Kaupþingi.
róbert Wessman,
forstjóri lyfjafyrir-
tækisins alvogen
Valitor er verðmætasta dótturfélag arion. Fréttablaðið/Eyþór
16,3
milljarðar er eigið fé
Valitors Holding bókfært á í
reikningum arion banka.
4 . a p r í l 2 0 1 8 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
9
-5
6
5
8
1
F
5
9
-5
5
1
C
1
F
5
9
-5
3
E
0
1
F
5
9
-5
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K