Fréttablaðið - 04.04.2018, Síða 16
Alveg einstakt tækifæri!
Hólanesvegur 11 er til sölu eða leigu.
Skagaströnd vex og dafnar, meðal annars vegna
aukinnar ferðaþjónustu. Með fjölbreyttri
afþreyingu, útivist og aukinnar eftirspurnar
ferðamanna, teljum við kosti eignarinnar augljósa.
Hafirðu áhuga á eða reynslu af ferðaþjónustu og
veitingarekstri og vilt njóta þess að starfa og búa á
Norðurlandi er í boði bjálkahús sem er afar
athyglisvert. Hvort sem þú kýst að kaupa eða
leigja Hólanesveg 11 er þetta einstakt tækifæri.
Bæði grunnskóli og leikskóli eru á Skagaströnd. Námsstofa fyrir
m.a. háskólaborgara, góð líkamsræktarstöð, sundlaug,
félagsheimili, bókasafn, verslun, apótek og heilsugæsla.
Um eignina: 2 hæðir, 383 m2
Byggingarár er 1998
Nánari upplýsingar í síma 869-1709 eða 847-6622
tölvupóstur - gshal0306@gmail.com
Hólanesvegur 11 er til sölu eða leigu.
Skagaströnd vex og dafnar, meðal annars vegna aukinnar ferðaþjónustu,
því ný gisting hefur hafið starfsemi í bænum. Með fjöl reyttri afþreyingu,
útivist og aukinnar eftirspurnar ferðamanna, teljum við kosti eignarinnar
augljósa.
Hafirðu áhuga á eða reynslu af ferðaþjónustu og veitingarekstri og vilt
njóta þess að starfa og búa á Norðurlandi er í boði bjálkahús sem er afar
athyglisvert. Hvort sem þú kýst að kaupa eða leigja Hólanesveg 11 er
þetta einstakt tækifæri.
Alveg
einsta t tækifæri!
B ði grun skóli og leiks óli eru á Skag strönd. Námsstofa
fyrir m.a. háskólaborgara, góð líkamsræktarstöð, sundlaug,
félagsheimili, bókasafn, verslun, apótek og heilsugæsla.
Um eignina: 2 hæðir, 383 m2
Byggingarár er 1998
Nánari upplýsingar í síma 869-1709 eða 847-6622 tölvupóstur -
gshal0306@gmail.com
Tveir fyrrverandi banka-ráðsmenn Seðlabanka Í s l a n d s k vö r t u ð u ti l umboðsmanns Alþingis yfir viðleitni sem þeir töldu að
átt hefði sér stað innan bankans,
meðal annars með setningu nýrra
starfsreglna, til þess að takmarka
svigrúm bankaráðs til þess að gegna
lögbundnu eftirlitshlutverki sínu.
Í bréfi sem umboðsmaður skrifaði
til bankaráðs og forsætisráðherra í
desember í fyrra voru ýmsar athuga-
semdir gerðar við starfsreglur
ráðsins og var jafnframt áréttað að
gæta þyrfti þess að með einstökum
ákvæðum reglnanna væri ekki
þrengt að því eftirlitshlutverki sem
bankaráðið hefur með starfsemi
Seðlabankans.
„Að því marki sem einstök ákvæði
starfsreglnanna eru til þess fallin að
valda misskilningi eða eru óljós er
það í betra samræmi við framan-
greind sjónarmið að þau verði
tekin til endurskoðunar og bætt úr
þeim annmarka,“ segir í bréfi Þor-
geirs Inga Njálssonar, setts umboðs-
manns Alþingis í málinu, sem Mark-
aðurinn hefur undir höndum.
Umboðsmaður sagðist í bréfinu
hafa sett fram umræddar ábending-
ar með það að leiðarljósi að banka-
ráðið tæki til skoðunar hvort tilefni
væri til að bregðast við þeim og taka
starfsreglurnar til endurskoðunar.
Óskaði hann svara frá bankaráði
fyrir 1. mars.
Þórunn Guðmundsdóttir, for-
maður bankaráðs Seðlabankans,
segir í samtali við Markaðinn að í
ljósi þess að starfstími núverandi
bankaráðs sé senn á enda hafi verið
ákveðið að leggja málið til hliðar.
Bankaráðið hafi upplýst umboðs-
mann um það.
Það bíður því nýs bankaráðs, sem
Alþingi mun sennilega skipa síðar í
mánuðinum, að ákveða hver næstu
skref verða.
Fyrrverandi bankaráðsmennirnir
tveir, Jón Helgi Egilsson og Ragnar
Árnason, kvörtuðu til umboðs-
manns Alþingis í ágúst árið 2016 en
umkvörtunarefnið sneri aðallega
að þremur atriðum – sem vörð-
uðu lagatúlkanir Seðlabankans og
nýlegar breytingar á starfsreglum
bankaráðsins – sem þeir töldu að
væru til þess fallin að draga úr getu
bankaráðsins til þess að hafa eftirlit
með starfsemi Seðlabankans og tak-
marka það aðhald sem ráðið getur
veitt yfirstjórn bankans.
Í fyrsta lagi var í kvörtuninni
gerð athugasemd við þá lagatúlkun
Seðlabankans að bankaráðið gæti
ekki kallað eftir upplýsingum frá
starfsmönnum bankans, milli-
liðalaust, nema með samþykki og
aðkomu seðlabankastjóra. Í öðru
lagi sneri kvörtunin að þeirri laga-
túlkun bankans að bankaráðið gæti
ekki fundað ef seðlabankastjóri
væri fjarverandi. Þá voru í þriðja lagi
gerðar margvíslegar athugasemdir
við breytingar sem bankaráðið
samþykkti að gera á starfsreglum
sínum í maí 2016 en breytingunum
var ætlað að skjóta styrkari stoðum
undir framangreindar lagatúlkanir
bankans.
Að auki var í kvörtun Jóns Helga
og Ragnars athygli umboðsmanns
vakin á því að með áðurnefndum
breytingum á starfsreglunum hefðu
möguleikar bankaráðs og einstakra
bankaráðsmanna til þess að láta
í ljós álit sitt á starfsemi bankans
verið takmarkaðir umfram það
sem kveðið er á um í lögum. Þann-
ig væri enn frekar þrengt að svig-
rúmi bankaráðsins til þess að veita
stjórnendum Seðlabankans aðhald.
Mikil völd falin einum manni
Í kjölfar falls fjármálakerfisins
haustið 2008 voru gerðar nokkuð
róttækar breytingar á stjórnskipu-
lagi Seðlabankans sem fólust meðal
annars í því að bankastjórn Seðla-
bankans var lögð niður og í stað
hennar kom einn seðlabankastjóri
og einn aðstoðarseðlabankastjóri.
Um leið jókst vægi lögbundins
eftirlitshlutverks bankaráðsins til
muna, enda varð þá bankaráðið
eitt, ásamt ráðherra, fært um að
veita seðlabankastjóra aðhald.
Í skýrslu nefndar, sem var falið
að taka lögin um Seðlabankann til
heildarendurskoðunar, frá því árið
2015 er rakið að breytingarnar
í kjölfar hrunsins hafi gert það
að verkum að seðlabankastjóri
geti einn tekið allar meiriháttar
ákvarðanir í rekstri bankans og
þurfi ekki að sækja sér stuðning í
bankastjórn.
Norðmaðurinn Svein Harald
Øygard var seðlabankastjóri þegar
umræddar breytingar voru lög-
festar í febrúar 2009 en Már Guð-
mundsson tók við embættinu í
ágúst sama ár og hefur gegnt því
síðan.
Nefndin, sem var skipuð þeim
Friðriki Má Baldurssyni og Þráni
Eggertssyni, lagði til að skerpt yrði
á eftirlitshlutverki bankaráðsins
auk þess að aftur yrði sett banka-
stjórn yfir bankann, rétt eins og
tíðkast í seðlabönkum flestra ríkja
heims.
Skýr upplýsingaréttur
Í bréfi umboðsmanns Alþingis er
umrætt eftirlitshlutverk bankaráðs
tíundað og tekið fram að ganga
verði út frá því að ráðið „geti kallað
eftir hverjum þeim upplýsingum og
skýringum um starfsemi bankans
sem það telur þörf á til að rækja
lögbundið hlutverk sitt“.
Hvað varðar það nýja ákvæði í
starfsreglunum, sem samþykktar
voru 2016, að bankaráðið geti ekki
leitað til starfsmanna bankans
nema að höfðu samráði við seðla-
bankastjóra, þá tekur umboðsmað-
ur fram að að hluti af áðurnefndri
upplýsingaöflun bankaráðs kunni
að felast í því að óska eftir að til-
tekinn starfsmaður bankans mæti
á fund ráðsins til þess að veita þar
milliliðalaust upplýsingar og svara
spurningum.
„Ekki verður séð að ráðningar-
vald og stjórnunarréttur yfirmanna
bankans gagnvart einstökum
starfsmönnum geti fellt brott þenn-
an upplýsingarétt bankaráðs nema
mælt sé fyrir um slíkt í lögum,“
segir í bréfi umboðsmanns.
Í bréfinu nefnir umboðsmaður
auk þess að ekki verði séð að fjar-
vera seðlabankastjóra geti alfarið
komið í veg fyrir að bankaráðið
haldi fund, líkt og Seðlabankinn
hefur haldið fram. „Ég tel því að
það sé að minnsta kosti ekki ein-
hlít túlkun á ákvæðinu [27. gr. laga
um Seðlabanka Íslands] að banka-
ráðsfundir verði ekki haldnir nema
að bankastjóri sjái sér fært að mæta
þótt almennt sé gert ráð fyrir að
hann sitji fundi þess,“ er nefnt í
bréfinu.
Orðalag starfsreglna bankaráðs
kann þó að gefa annað til kynna,
að sögn umboðsmanns, en í einu
ákvæði reglnanna segir meðal
annars að seðlabankastjóri skuli
á hverjum fundi bankaráðs gera
grein fyrir helstu þáttum í starfsemi
bankans. Að þessu þarf að huga,
að mati umboðsmanns, þegar og
ef ætlunin er að útfæra umrætt
ákvæði nánar í verklagsreglum,
meðal annars á þann hátt að „þar
sé ekki með víðtækari hætti girt
fyrir að unnt sé að halda banka-
ráðsfundi í fjarveru bankastjóra en
lög gera ráð fyrir“.
Fari ekki í bága við lög
Umboðsmaður rekur að lokum í
bréfi sínu að miklu skipti að verk-
lagsreglur, líkt og starfsreglur
bankaráðsins, séu skýrar og ekki til
þess fallnar að valda misskilningi
eða að réttmætur vafi sé um hvort
þær séu í samræmi við lög.
„Í öllu falli þarf að gæta þess sér-
staklega að einstök ákvæði starfs-
reglnanna fari ekki í bága við lög og
reglugerð og að með þeim sé ekki
þrengt að því eftirlitshlutverki
sem bankaráð hefur með starf-
semi bankans,“ segir í bréfi setts
umboðsmanns.
Kvörtuðu til umboðsmanns Alþingis
Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Að mati umboðsmanns Alþingis
verður ekki séð að ráðningarvald eða stjórnunarréttur yfirmanna bankans gagnvart starfsmönnum geti fellt brott rétt
bankaráðs til að leita upplýsinga, milliliðalaust, hjá einstökum starfsmönnum bankans. FréttAblAðið/Ernir
Umboðsmaður Alþingis
gerir margvíslegar at-
hugasemdir við laga-
túlkanir Seðlabanka
Íslands og nýjar starfs-
reglur bankaráðs. Fyrr-
verandi bankaráðsmenn
telja að svigrúm banka-
ráðs til að sinna eftirlits-
hlutverki sínu hafi verið
takmarkað. Ekki hefur
verið ákveðið hvort
starfsreglurnar verði
endurskoðaðar.
Kristinn Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Í öllu falli þarf að
gæta þess sérstak-
lega að einstök ákvæði
starfsreglnanna fari ekki í
bága við lög og reglugerð og
að með þeim sé ekki þrengt
að því eftirlitshlutverki sem
bankaráð hefur með starf-
semi bankans.
Úr bréfi setts umboðsmanns Alþingis
til bankaráðs Seðlabankans
4 . a p r í l 2 0 1 8 M I Ð V I K U D a G U r4 markaðurinn
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
5
9
-6
A
1
8
1
F
5
9
-6
8
D
C
1
F
5
9
-6
7
A
0
1
F
5
9
-6
6
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K