Fréttablaðið - 04.04.2018, Side 20

Fréttablaðið - 04.04.2018, Side 20
Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is Gríðarlega mikið magn af fal-legu og rándýru efni safnast saman í hvert skipti sem við búum til nýtt eintak af vöru á verk- stæðinu hjá okkur. Við notumst einungis við gegnheilan við og erum því oft á tíðum með margfalt hærri efniskostnað en margir aðrir og því er sérlega mikilvægt fyrir okkur að geta nýtt efnið til fulls,“ útskýrir Ágústa Magnúsdóttir sem myndar hönnunartvíeykið Agustav ásamt manni sínum, Gústav Jóhannessyni. Þau vöktu athygli á Hönnunar- Mars fyrir nýja seríu af heimilis- og lífsstílsvörum, sem gengur út á að þaulnýta allt sem til fellur á verk- stæðinu. Línan ber viðeigandi nafn, Afgangar. „Undir þeirri línu eru einungis vörur sem eru unnar úr afgöngum og afskurði. Ef varan verður svo nægilega vinsæl til að við þurfum að skera niður heila planka til að framleiða hana sérstaklega er hún ekki afgangavara lengur heldur partur af framleiðslunni og vara sem sjálf þarf að geta af sér aðrar afgangavörur,“ útskýrir Gústav. „Við erum mjög upptekin af því að fram- leiðslan sé sem umhverfisvænust og til að koma til móts við þær auðlindir sem við notum í fram- leiðslunni okkar gróðursetjum við tré fyrir hverja selda vöru. Okkur finnst mikilvægt að minnka affall frá fyrirtækinu og afgangalínan er liður í því. Við höfum ekki efni á því lengur að gera bara það sem okkur sýnist. Heimurinn er kominn á slíkan stað í dag að ef hann á að vera heimili fyrir börnin okkar þurfum við virkilega að fara að taka okkur á, öll sem eitt. Það þýðir ekk- ert að vera latur í þessum málum,“ segir Gústav. Afgangalínan samanstendur af mælipriki, standi undir penna eða tannbursta, reglustikum og hreyfanlegri merkistiku, ýmist úr reyktri eik, eik, hnotu, mahóní, hlyn eða beyki. Mæliprikin kalla hönnuðirnir líka „fæðingarprik“ en þau eru skorin í fæðingar- lengd barns og í þau grafin þyngd barnsins, nafn og fæðingardagur. „Þar með myndast einstaklega persónuleg og falleg eign sem getur fylgt einstaklingnum í gegnum lífið,“ segir Ágústa. „Við höfum meira að segja fengið pantanir fyrir heilu fjölskyldurnar þar sem börnin og foreldrarnir fá öll sitt mæliprik sem verður svo hengt upp á vegg og myndar fallegan skúlptúr.“ Þetta eru þó ekki fyrstu vör- urnar sem unnar er úr afgöngum á verkstæði Agustav. „Fyrsti bar- stóllinn okkar varð til því við áttum ferhyrndan klump af gegnheilli eik sem okkur langaði að nýta og úr varð handformuð barstólseta. Kollarnir komu til lífs úr afskurði af borðum sem við höfðum verið að vinna,“ útskýrir Gústav og segir ekki erfitt að finna afsagi og afgöngum form eða notagildi. „Það er hins vegar áskorun að búa til vöru sem er fullhönnuð og með endingargildi í huga. Við sjáum engan tilgang í því að búa til vöru sem mögulega endar í ruslinu á næstu árum. Það kemur bara ekki til greina.“ Á HönnunarMars frumsýndu þau á annan tug nýrra vara og opnuðu af því tilefni nýtt sýningarrými að Funahöfða 3. Fram undan eru sýningar erlendis. „Næsta skref hjá okkur verður að sýna á húsgagnasýningunni ICFF í New York í maí. Við erum svo með sýningu í Þýskalandi í kortunum fyrir haustið en í millitíðinni ætlum við að rjúka í einn viðskiptahraðal sem er einnig í New York og sjá hvert það leiðir okkur.“ Ekkert fer til spillis Spýtukubbar, afgangar og afskurður verður hönnuðunum Gústav Jóhannessyni og Ágústu Magnús dóttur að efnivið. Á HönnunarMars sýndu þau handunna vörulínu sem þau kalla Afganga. Umhverfisvæn hönnun og ger- nýting á hráefni er þeim Gústav og Ágústu hug- leikin. Hönnun þeirra má sjá að Funahöfða 3 og á vefsíðunni Agustav.is MYND/EYÞÓR Mælistikur eða Fæðingarstikur eru meðal þess sem Gústav og Ágústa framleiða úr afgöngum. Stikurnar eru skornar í fæðingarlengd barns og þyngd þess, nafn og fæðingardagur svo grafin í. FERÐABLAÐ Veglegt sérblað Fréttablaðsins um sólarlandaferðir kemur út 7. apríl nk. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512-5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fer st vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið s rblod@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A p R í L 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R 0 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 9 -5 1 6 8 1 F 5 9 -5 0 2 C 1 F 5 9 -4 E F 0 1 F 5 9 -4 D B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.