Fréttablaðið - 04.04.2018, Side 22
Fallegur garður
er mikið augna-
yndi.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Guðríður, eða Gurrý eins og fólk þekkir hana frá garð-yrkjuþáttum í sjónvarpinu,
starfar sem forstöðumaður starfs-
og endurmenntunardeildar Land-
búnaðarháskóla Íslands. Hún er
með BS-gráðu í líffræði og MPM
frá HÍ og garðyrkjufræðingur frá
Garðyrkjuskóla ríkisins. Hún er
ekki óvön að halda fyrirlestra um
garðyrkju í Landbúnaðarháskól-
anum.
„Ég ætla að fjalla almennt um
garðyrkjustörf í garðinum okkar
þegar vorar. Til dæmis hverju þarf
að ljúka áður en plönturnar verða
grænar, klippingar og hvað má gera
þegar allt fer að lifna við í garð-
inum. Hvað eigum við til dæmis að
gera við mosann í grasinu? Síðan
fjalla ég um áburðargjöf og viðhald
á garðinum yfir sumarið. Hverju
þarf maður að sinna til að garður-
inn blómstri fallega allt sumarið.
Garðyrkjuáhugi vex stöðugt
Guðríður Helgadóttir fjallar um vorverkin í garðinum í Gerðubergi í kvöld með sérstakri áherslu á
undirbúning matjurtaræktunar. Þá fer hún yfir það helsta til að garðurinn haldist fallegur í sumar.
Það er skemmtilegt að rækta sitt eigið salat.
Einnig verð ég með sérstaka áherslu
á matjurtaræktun,“ svarar Gurrý
þegar hún er spurð hvers konar
erindi þetta verður sem hún ætlar
að bjóða gestum.
Hún bendir á að áhugi á mat-
jurtarækt sé mjög mikill í dag.
„Margir vilja vita hvaðan græn-
metið kemur og hvernig á að fara
að vilji maður rækta það sjálfur. Ég
mun fjalla um forræktun og hvar sé
hægt að kaupa forræktaðar jurtir.
Sömuleiðis hvaða tími er bestur
til að hefja þessa ræktun. Ætli
megi ekki segja að ég fari vítt
og breytt um sviðið. Fjalli um
þessi helstu verkefni þótt
ekki gefist tími til að kafa
mjög djúpt í fræðin,“ segir
hún.
Gurrý segist sýna fólki
myndir til fróðleiks og lofar
að þetta verði áhugavert spjall.
„Það er alltaf skemmtilegra að
hafa fyrirlestra á léttum nótum,“
segir hún. Gurrý hefur ekki áður
flutt fyrirlestra í Gerðubergi í Breið-
holti en fyrirlesturinn hefst kl. 20 í
kvöld og er ókeypis inn. „Vonandi
hefur fólk tök á að mæta og hafa
gagn og gaman af.“
Þegar hún er spurð hvað það sé
sem brenni helst á fólki varðandi
garðyrkju, svarar hún: „Það er mjög
misjafnt, oft er það vandamál með
mosa á meðan aðrir vilja vita allt
um klippingar. Sumir velta fyrir sér
áburðargjöf eða hvernig á að losna
við snigla úr kálgörðum. Það koma
upp alls konar spurningar.“
Gurrý segist finna fyrir sérstak-
lega miklum áhuga á garðyrkju og
matjurtarækt um þessar mundir.
„Það er mikil ásókn í nám í garð-
yrkju og allt frá hruni hefur fólk
verið mjög áhugasamt um alls kyns
ræktun. Landsmenn leggja mikla
áherslu á garðrækt, bæði við heimili
og sumarbústaði. Það hefur orðið
einhvers konar garðyrkjuvakning í
landinu. Þegar fólk missti vinnuna í
hruninu fór það að rækta matjurtir
til að spara innkaup. Í fyrstu voru
margir sem höfðu ekki hugmynd
um hvernig ætti að bera sig að við
þá ræktun enda hafði fólk keypt sal-
atið úti í búð. Á sama tíma fækkaði
utanlandsferðum en í staðinn vildi
fólk gera fallegt í garðinum sínum
og njóta hans í sumarfríinu. Þar fyrir
utan er ungt fólk í dag mjög með-
vitað um umhverfismál, nærum-
hverfið og mataræði. Þegar ég
byrjaði í garðyrkju voru það aðeins
sérvitrir lúðar í lopapeysum sem
voru að róta í moldinni. Núna þykir
flott að rækta sínar eigin matjurtir
og það finnst mér alveg frábært.“
Gurrý hefur framleitt nýja garð-
yrkjuþætti sem til stóð að sýna á
RÚV með vorinu. „Ég fékk hins
vegar þær fréttir um páskana að
þættirnir færu sennilega ekki í loftið
núna en ég er innilega að vona að sú
ákvörðun verði endurskoðuð. Þetta
hefur verið þakklátt efni og margir
nefnt það við mig að þeim finnist
gaman að sjá alla þá möguleika í
görðum sem íslenskt veðurfar býður
upp á. Síðan er hugmyndaflug garð-
eiganda ótrúlegt þegar kemur að
ræktun. Garðyrkju áhugi er alltaf að
aukast og nú eru til dæmis potta-
plöntur komnar aftur í tísku sem er
mjög ánægjulegt,“ segir hún.
Þegar ég byrjaði í
garðyrkju voru
aðeins sérvitrir lúðar í
lopapeysum sem voru að
róta í moldinni. Nú þykir
flott að rækta garðinn.
Guðríður Helgadóttir
Fréttablaðið eykur þjónustu sína.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu á
eftirfarandi stöðum víðsvegar um landið:
mest lesna dagblað landsins.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . A p R í L 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
9
-5
6
5
8
1
F
5
9
-5
5
1
C
1
F
5
9
-5
3
E
0
1
F
5
9
-5
2
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K