Fréttablaðið - 04.04.2018, Page 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Elmar Hallgríms Hallgrímsson elmar@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is
FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@frettabladid.is, Máté
Dalmay mate@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is og Ragnheiður Tryggvadóttir heida@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /
FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut
Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Segðu bless við sköfuna og hitaðu bílinn
með Webasto bílahitara – Webasto bílahitari
-8°
-6°
-7°
0_StH_ANZ_Snow_99,3x99,5_Island.indd 4 27.10.17 14:2
21° Tilfinning
BÍLASMIÐURINN HF
BÍLDSHÖFÐA 16
SÍMI: 567-2330
www.bilasmidurinn.is • bilasmidurinn@bilasmidurinn.is
Þjónustumiðstöð
tónlistarfólks
ALLAR KONUR ÆTTU AÐ
EIGA SINN DEMANT !
Endist lengi
Silicone baserað
Má nota með smokkum
Silkimjúkt sleipiefni sem
veitir unaðslega tilfinningu
Fæst í apótekum og á www.heimkaup.is
og á www.njottulifsins.is
V ið erum að reyna að komast að því hvort það sé hægt að fjölga tónleikum en það eru margir sem þurfa að vera
á réttum stað á réttum tíma til að
geta sagt já. En við erum að reyna,“
segir Snæbjörn Ragnarsson, Bibbi
í Skálmöld, en í gær seldist upp á
tónleika hljómsveitarinnar ásamt
Sinfóníuhljómsveit Íslands á
nokkrum mínútum. Bibbi segir að
mínúturnar hafi verið 12 en síðan
hafi einhverjir miðar farið aftur út
í kerfið og því hafi nokkrir heppnir
náð í miða.
Tónleikarnir fara fram í Eld-
borgarsal Hörpu 24. og 25. ágúst
en hljómsveitirnar auk Karla-
kórs Reykjavíkur, Kammerkórsins
Hymn odia og Barnakórs Kársnes-
skóla léku síðast saman á þrennum
tónleikum árið 2013 sem slógu í
gegn svo eftir var tekið.
„Við í Skálmöld erum alltaf niðri
á jörðinni og maður þorir aldrei að
búast við neinu. Auðvitað vonaði
maður að þetta myndi ganga upp,
ef maður bókar tvenna tónleika í
Eldborg þá ertu að setja 3.000 miða
í sölu. En þetta var svolítið öfgafullt
og ég er ofboðslega feginn að þetta
seldist.
Það er alltaf smá hnútur í mag-
anum rétt áður, því að það er svo
eymdarlegt í Eldborg með 100
manns í salnum, eins og það er nú
gaman á Gauknum með 100 manns.
Við erum fegnir og montnir enda
er þetta glæsilegt,“ segir hann.
Hljómsveitarstjóri verður Bern-
harður Wilkinson sem sló í gegn
árið 2013 þegar hann stýrði þessu
ógnarverkefni eins og höfðingi.
Bibbi segir að Bernharður hafi
verið meira en lítið til þegar kallið
kom. „Ég veit að hann fagnaði
mikið þegar við báðum hann um
að stýra þessu aftur. Hann var svo
risastór partur af þessu síðast og
faðmaði þetta að sér. Hann talaði
tungumál allra og stóð í miðjunni
og stjórnaði. Um leið og þetta ferli
fór af stað, að koma þessu heim og
saman aftur, þá var eiginlega skil-
yrði að hann gerði þetta aftur.“
Síðan 2013 hafa Skálmeldingar
gefið út tvær plötur og því þarf
að útsetja nýju lögin upp á nýtt.
Haraldur V. Sveinbjörnsson mun
gera það líkt og fyrir síðustu tón-
leika. „Við erum ekkert að fara af
stað með einhverja nýja hugmynd.
Halli er að útsetja fleiri lög og við
hugsum lagavalið alveg upp á nýtt.
Trúlega hverfur helmingurinn af
lögunum sem við spiluðum 2013
til að koma nýjum lögum fyrir. Við
erum að verða búnir að ræða laga-
valið og það er ekki auðvelt. Það er
lúxusvandamál. Það þurfti að setj-
ast niður og rökræða því menn voru
ekki sammála,“ segir Bibbi.
benediktboas@365.is
Seldist upp á
12 mínútum
Miðar á tónleika Skálmaldar og Sinfó í ágúst seldust upp á örskots-
stundu. Snæbjörn Ragnarsson segir að unnið sé að því hörðum
höndum að setja saman þriðju tónleikana en gríðarlegur fjöldi
kemur að þeim og því þurfa margir að hliðra til til að geta sagt já.
Nokkrar frægar 12 míNútur
l Fyrsta geimgangan, sem
Alexei Leonov gekk, tók 12
mínútur þann 18. mars
1965
l Það tekur 12 mínútur.
að fljúga stystu
flugleið heims. Hún
er frá Billy Bishop-
flugvelli í Toronto
til Niagara District-
flugvallarins
l Hesta-
sýningin í
Friðheimum
tekur 12
mínútur
l 60 kílóa manneskja þarf
að sippa í 12 mínútur til að
brenna einu rauðvínsglasi
l Einræða
Jose
Mour-
inho
eftir
tapið
fyrir
Sevilla í
Meistaradeild-
inni tók 12 mínútur
l Samkvæmt bandarískri
könnun kom í ljós að
meðallengd kynlífs fólks er
aðeins 12 mínútur
Vinsældir Skálmaldar eru miklar og eftirspurnin eftir að hljómsveitin og Sinfó tækju saman höndum aftur var mikil. En
Bibbi segir að þessar 12 mínútur hafi komið sér í opna skjöldu. Sjálfur var hann staddur í Bakaríinu á Húsavík að borða
hádegismat þegar miðasalan hófst og hann var ekki búinn þegar nánast allir miðar voru seldir. MyND/LALLI SIG
Við erum að Verða
búNir að ræða
lagaValið og það er ekki
auðVelt. það er lúxuS-
VaNdamál.
Snæbjörn Ragnarsson
4 . a p r í l 2 0 1 8 M I Ð V I K U D a G U r22 l í f I Ð ∙ f r É T T a B l a Ð I Ð
0
4
-0
4
-2
0
1
8
0
4
:5
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
5
9
-4
7
8
8
1
F
5
9
-4
6
4
C
1
F
5
9
-4
5
1
0
1
F
5
9
-4
3
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
3
_
4
_
2
0
1
8
C
M
Y
K