Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.09.2017, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.09.2017, Blaðsíða 28
Það er töluvert af ferðamönnumí Orkneyjum en samt eruheimamenn mjög gestrisnir. Ég tala ekki um ef maður mætir í ís- lenskri lopapeysu og flaggar norræn- um uppruna sínum. Þeim finnst þeir svolítið vera frændur okkar,“ segir Unnur Björk Lárusdóttir skjala- stjóri um Orkneyinga sem hún heim- sótti núna í lok júní. „Þeir gera mikið úr norrænu arfleifðinni sinni og við fundum vel hvað við vorum velkomn- ar. Við vorum ekki túristar, við vor- um gestir.“ Unnur hefur mjög gaman af því að ferðast og vill helst blanda saman gönguferðum og menningu. „Ég ætlaði upphaflega að fara með íslenskri ferðaskrifstofu sem heitir Skotganga, sem íslensk hjón í Skot- landi reka, en það gekk ekki upp. Í fyrra hafði ég farið í ferð til eyjunnar Skye með skosku ferðaskrifstofunni Walkabout Scotland. Þá komst ég á bragðið og fór núna með þeim til Orkneyja þar sem er mjög mikil saga,“ segir Unnur sem er sagnfræð- ingur í grunninn. Hún fór ásamt vin- konu sinni í ferðina og svo skemmti- lega vildi til að þær voru bara tvær í ferðinni með enska einkabílstjór- anum og leiðsögumanninum Stuart, sem var mjög skemmtilegur. „Hann var á Land Rover sem hafði verið keyptur fyrir þessa ferð svo við vorum bara eins og tvær fínar frúr og létum keyra okkur norður allt Skotland, gegnum Inverness og til Gills Bay þaðan sem ferjan fer til Orkneyja. Það er ekki löng sigling frá meginlandinu og komið er að í bænum St. Margaret’s Hope. Eyj- arnar eru um sjötíu og tuttugu þeirra í byggð. Aðaleyjan er kölluð Main- land, eða Meginlandið, og höfuðstað- urinn er Kirkwall.“ Fimm þúsund ára byggð „Það skemmtilega við Orkneyjar er að þar er mjög mikil menning og hún er mjög gömul. Þar má finna forna og mjög fjölbreytta sögu, því það hef- ur verið búið á eyjunum í alla vega 8.500 ár. Á stað sem heitir Skara Brae er þorp frá steinöld. Það er á UNESCO-listanum yfir heims- minjar, enda húsin eldri en píramíd- arnir og Stonehenge. Þetta eru átta eða níu hús sem hafa verið endur- reist og eru mjög vinsæll viðkomu- staður ferðamanna. Þau eru frá því svona 3100-2500 f. Kr. Byggðin kom í ljós eftir mikinn storm árið 1850 og þarna er talið að hafi búið hátt í 50 manns á hverjum tíma. Maður sér mjög vel móta fyrir því hvernig húsin voru. Maður sér útveggi og jafnvel rúmstæðin og þarna fundust merkir leirmunir. Síðar kom keltneski þjóðflokkur- inn Piktar en það er ekki mikið af minjum eftir þá. Þeir voru þarna ennþá þegar Norðmenn komu á 9. öld og yfirtóku allt á staðnum og verða nýir herrar. Þeir höfðu jarla en Rögnvaldur Eysteinsson varð fyrsti jarlinn árið 875. Orkneyinga saga, sem er ein af konungasögunum okk- ar, segir frá lífi þessara jarla, deilum þeirra og blóðugum bardögum. Halda upp á heilagan Magnús Norrænir menn skildu eftir sig minj- ar eins og hina fallegu byggð sem er kölluð Brough of Birsay. Þar getur maður séð leifar af skálum og húsum, en það voru fyrstu höfðingjarnir af norrænum ættum sem bjuggu þarna. Svo fluttu þeir höfuðstaðinn seinna til Kirkwall, þar sem nú má sjá dóm- kirkju heilags Magnúsar, sem er nyrsta dómkirkja Bretlands. Magn- ús var einn af jörlunum sem voru drepnir á eyjunum. Það er fræg saga og gert mikið með hana og Orkney- ingar halda hátíð honum til heiðurs. Skoskir jarlar tóku svo við á 13. öld, en eyjarnar komast endanlega undir skosk yfirráð á 15. öld. Ef við förum nær samtímanum þá er mikið af minjum úr stríðinu, bæði úr fyrri og seinni heimsstyröldinni. Bretar voru þarna með flotastöð, en vel þekktur er Skapaflói þar sem Þjóðverjar sökktu árið 1919 um 74 skipum sínum til að forða þeim frá því að lenda í höndum Breta. Þarna er mjög vinsæll staður meðal köfunaráhugafólks sem kemur að skoða flök sem liggja þarna um allan flóann. Hákon prins á brimbretti Orkneyingar eru mjög stoltir af nor- rænum uppruna sínum og líta fyrst og fremst á sig sem Orkneyinga, frekar en Skota. Stuart sagði okkur að eigandi ferðaskrifstofnnar væri svo hrifinn af þessum norrænu sögum á Orkn- eyjum að hann hefði viljað láta skíra son sinn í höfuðið á norrænum jarli Gestrisnir skoskir víkingar Unnur Björk Lárusdóttir skellti sér til Orkneyja og féll fyrir gestrisnum eyjaskeggjunum, náttúrunni, handverkinu og matnum. Ekki spillti fyrir að saga eyjanna er marglaga og alveg mögnuð. Hildur Loftsdóttir hilo@mbl.is Jarðsaga Orkneyja er merkilega eins og sést svo greinilega á eyjunni Hoy. Unnur vill blanda saman göngu og menningu á ferðlaögum. Morgunblaðið/Hanna FERÐALÖG Golfstraumsviðri 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3.9. 2017 SKJÁVARPADAGAR! EPSONSKJÁVARPIEB-U32 Helstu kostir EB-U32: • Upplausn & skerpa: WUXGA, 1920 x 1200, 16:10 / 15,000 : 1 • Birta: 3,200 Lumen-2,240 Lumen (eco) Litur/hvítt ljós • Líftími peru: 5000 tímar / Sparkerfi (eco): 10000 tímar • Tengingar: USB 2.0 Type A, USB 2.0 Type B, Wireless LAN IEEE 802.11b/g/n, VGA in, HDMI in (2x), Composite in, MHL, Cinch audio in ÞÓR FH Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 9:00 - 18:00 Lokað um helgar Tölvuverslun - Reykjavík: Ármúla 11 108 Reykjavík Sími 568-1581 Vefsíða og netverslun: www.thor.is EPSON EB-U32 er tilvalinn fyrir heimli, skóla eða fyrirtæki. EPSON EB-U32 skilar skarpri og skýrri mynd, hvort sem um er að ræða kvikmynd og ljósmynd eða kynningar og fræðsluefni. EPSON EB-U32 er með möguleika á þráðlausri tengingu úr farsímum með iProjection appinu. Tilboðsdagar á Epson skjávörpum í vefverslun Þórs hf til 5. september 2017. Lagerhreinsun á eldri skjávörpum og tilboð á nýlegum og nýjum skjávörpum sem henta bæði skólum, stofnunum og heimilum. 109.0 00EPSON EB-U3 2 ,- Veðrið á Orkneyjum er ekkert ósvipað því sem hér gerist, nema kannski ögn hlýrra. Ef ferðast er til eyjanna er því gott að pakka bæði regnfötum og góðum sumarfötum - auk gönguskónna.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.