Fréttablaðið - 09.05.2018, Síða 28
Markaðurinn
Miðvikudagur 9. maí 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
instagram
fréttablaðsins
@frettabladidfrettabladid.is
Stjórnar-
maðurinn
@stjornarmadur
26.04.2018
Miðborgin gengur gegnum endur-
nýjun lífdaga þessi misserin og
verður vart þverfótað fyrir bygg-
ingakrönum. Ekki er hægt að neita
því að ásýnd borgarinnar hefur
batnað mikið og er þar að stórum
hluta hægt að þakka ferðamanna-
flaumnum. Ferðamennirnir smyrja
ekki bara hagkerfið heldur heim-
sækja einnig verslanir, veitingahús,
söfn og gististaði og valda því að
aukinn markaður er fyrir metnaðar-
fulla uppbyggingu á bestu stöðum
borgarinnar. Meðal þess sem nú
er í uppbyggingu er Hafnartorgið
svokallaða sem mun setja mikinn
svip á miðborgina. Vonandi til hins
betra, en Hafnartorgið er á lykil-
stað í borginni, gegnt Arnarhváli og
Stjórnarráðinu, og hinum megin við
götuna frá Hörpu. Ekki er laust við
að stjórnarmaðurinn hlakki til að
sjá hvernig tekst til.
Nánast áður en fyrsta skóflustungan
hafði verið tekin bárust fregnir af
því að fasteignafélagið Reginn hefði
náð samningum við H&M um upp-
byggingu stórverslunar á jarðhæð
Hafnartorgs. Síðar kom reyndar á
daginn að ekki var allt klappað og
klárt hvað það varðar, en það var þó
ekki látið tefja fyrir tilkynningu um
ráðahaginn. Nú í liðinni viku bárust
fréttir af því að Reginn hefði átt í
viðræðum við risavaxin alþjóðleg
tískumerki um opnun á Hafnartorgi.
Voru þar nefnd merki á borð við
Loius Vuitton, Gucci, Burberry og
Prada. Það munar ekki um minna.
Fjölmiðlar gripu yfirlýsingar Regins
að sjálfsögðu á lofti, en veittu því
þó ekki athygli að Reginn sagðist
einungis eiga í viðræðum „gegnum
ráðgjafarfyrirtæki“. Nú er ekki gott
að spyrja hvernig skilgreina eigi
viðræður? Er það símtal, fundur eða
dugar einfaldur tölvupóstur? Fjöl-
miðlamönnunum hefur ekki dottið
í hug að hringja einfaldlega í tals-
menn þessara erlendu stórfyrirtækja
og fá málið á hreint?
Nú skal ekki gert lítið úr endurreisn
miðbæjarins og þeim metnaði sem
einkennir uppbyggingu við Hafnar-
torg. Það breytir því hins vegar ekki
að Ísland er enn örmarkaður sem á
tímum aukinnar netverslunar á bágt
með að styðja við þær tískuverslanir
sem fyrir eru í landinu. Því verður
að teljast ólíklegt að rótgróin erlend
tískufyrirtæki horfi hingað til lands
hýru auga. Miðað við árferðið væru
það helst enn fleiri útivistarmerki.
Þá er það spurning hvort hrósa eigi
Regin fyrir metnaðinn, eða fyrir enn
nýja og snjalla auglýsingabrellu.
Stjórnarmaðurinn hallast að því
síðarnefnda.
Snjallt Pr
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Rexton™ heyrnartækin gera meira en að hjálpa þér að heyra betur.
Þau opna nýjar leiðir í samskiptum, rjúfa þögnina og gefa tóninn.
Þau auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu
heyrnartæki lánuð til reynslu.
Við hjálpum þér
að bæta lífsgæðin
Það hefur margsann-
að sig að meðaltöl
og hagtölur og fram-
setningar sem settar hafa
verið fram af OECD geta
verið meingallaðar.
Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR
Hagnaður Skakkaturnsins,
dreifingaraðila Apple á Íslandi,
tvöfaldaðist á milli ára og nam
244 milljónum króna árið
2017. Tekjurnar jukust um 57
prósent á milli ára og námu
4,1 milljarði króna í fyrra.
Arðsemi eigin fjár nam 48%
og eiginfjárhlutfallið var 44%.
Eigið fé félagsins var 627 millj-
ónir króna við árslok. Þrátt fyrir
aukin umsvif fækkaði stöðugildum um
fimm, í 29. Ekki verður greiddur arður í
ár. Guðni Rafn Eiríksson keypti meiri-
hluta í félaginu við lok árs 2016. Í kjöl-
farið settist hann í stól framkvæmda-
stjóra. Bjarni Ákason og Valdimar
Grímsson, sem seldu honum hlutinn,
eiga áfram hlut í Skakkaturninum.
Bjarni situr í stjórn félagsins. – hvj
Hagnaður Skakkaturnsins tvöfaldast milli ára
Guðni Rafn Eiríksson.
0
9
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
F
B
8
-7
1
2
8
1
F
B
8
-6
F
E
C
1
F
B
8
-6
E
B
0
1
F
B
8
-6
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K