Feykir - 19.11.2009, Qupperneq 7
43/2009 Feykir 7
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR )
Gógó og Pétur kokka
Tveir frábærir
lifrarréttir
Uppáhald Péturs
Lifrarbuff
1 kg. lifur
1-2 stk. laukar
1/2 kg. kartöflur (hráar)
Þetta er mixað saman og síðan
sett í fat.
Salt og pipar (eftir smekk) +
hveiti og mjólk er bætt út í og
hrært saman við með sleif.
(Þykktin á að vera ca. eins og
lummudeig)
Síðan eru búnir til litlir klattar
(með matskeið) og steikt á
pönnu.
Borið fram með kreppulausri
hugsun, kartöflumús, rabbar-
barasultu og rauðkáli.
Sérréttur Gógóar
Masala lifur
(FYRIR FJÓRA)
2 stk. lambalifur
3 stk. laukur
1 stk. hvítlauksrif
3 stk. Garam Masala krydd
1 ds. jógúrt (án ávaxta)
1 ds. rjómaostur (lítil)
1/2 bolli rjómi
1 ds. niðursoðnir tómatar
3 msk. shoyu sósa
Smjör, arómat og salt
eftir smekk.
Lifrin skorin í sneiðar, krydduð
létt með arómat og salti og
snöggsteikt á pönnu. Síðan látin
í eldfast fat. Laukurinn saxaður
smátt og hvítlaukurinn marinn
saman við og steikt í smjöri á
pönnunni.
Masala kryddið, jógúrtin,
rjómaosturinn, tómatarnir,
rjóminn og shoyu sósan sett út
á og látið krauma í 5-10 mín.
Sósunni er síðan hellt yfir lifrina
og sett í heitan ofn í 5-10
mínútur.
Borið fram með bros á vör,
rabarbarasultu, hrísgrjónum og
eða soðnum kartöflum :)
Það er kreppa og lambalifur er ódýr matur og má elda á
ýmsa vegu. Við ætlum að gefa ykkur tvær uppskriftir með
lambalifur í aðalhlutverki og okkur þykja góðar, segir Gógó
og byrjar á uppáhaldi Péturs.
Við skorum á meistaramatráðinn á Krílakoti, Petru
Jörgensdóttur og hennar karl, Hörð Sigurjónsson Sauðárkróki,
að koma með næstu uppskrift.
Látum fylgja með eina þá
ljúffengustu tertu, sem til er í
heimi og heitir hún líka
Heimsins besta.
Heimsins besta
4stk. eggjahvítur
2 bollar mulið kornflakes
200 gr. sykur
1 tsk. lyftiduft
Eggjahvíturnar stífþeyttar og
sykrinum bætt út í og þeytt
áfram.
Kornflakes og lyftidufti bætt
varlega saman við.
Sett í tvö lausbotna kökuform.
Bakað í 1 klst. við 120 gr.
Lagt saman með 1/2 lítra af
þeyttum rjóma, sem í er brytjað
súkkulaði (ca. 1-2 plötur)
Krem:
4 stk. þeyttar eggjarauður með 100
gr. bræddu suðusúkkulaði + 100
gr. flórsykur og hellt yfir tertuna
Borðuð í góðra vina hópi, þar
sem aðallega er rætt um
húsnæðismál og rennt niður
með ljúffengu kaffi
Verði ykkur að góðu!
Ketilssaga – ástir og örlög
Framhaldssagan : Þriðja saga
Hér er þriðji hluti Ketilssögu – ástir og
örlög, og eru það hinir vösku drengir úr
Göngufélaginu
Brynjólfi á
Hvammstanga
sem tekið hafa
þeirri áskorun
að semja
ástarsögu á
fjöllum. Þeir
sem skrifa
söguna eru:
Ragnar Karl
Ingason,
Sigurbjörn
Grétar Eggertsson, Gústav Jakob
Daníelsson og Ágúst Jakobsson sem fær
einmitt það hlutverk að setja punktinn
yfir i-ið að þessu sinni.
...Sæli leit forviða á Ketil við ástarjátn-
ingu hans. „Ertu nú endanlega orðinn
snarbilaður mannfýlan þín?“ hreytti
hann út úr sér milli samanbitinna
tannanna og kippti að sér hendinni.
„Þú ert enn við saman heygarðshornið,
eltandi okkur strákana þó að lögulegasti
kvenmaður sveitarinnar vilji ekkert
frekar en þig, fíflið þitt. Þú ættir að taka
þig saman í andlitinu og hætta þessum
fíflalátum, það skilur þetta heldur
ekki nokkur maður ennþá, alveg níu
ár þangað til Hörður Torfa kemur út
úr skápnum..!!“ (Eins og lesendum
mun kunnugt gerist saga þessi haustið
1966 – innskot höfundar) „Og ég er
sko ekkert tilbúinn að fara að hrekjast
til Danmerkur eða eitthvað vegna
ofsókna, talaðu við mig eftir svona 40
ár, þá getum við skoðað þetta, þangað
til geturðu bara andskotast til að vera
almennilegur við hana Jónu, eins og þú
ætlaðir!“
Ketill leit á vin sinn heldur beygður
og þurrkaði framan úr sér tár og slef,
hann mundi hvernig fyrri ástarjátning
hans hafði nær eyðilagt vinskap þeirra
síðastliðið sumar, hann mundi líka að
þegar hann lagði af stað norður í gær
hafði hann verið ákveðinn í að bæla
tilfinningar sínar og biðja Jónu, en
það að sjá Sæla svona hraustlegan og
útitekinn í haustloftinu hafði hreinlega
borið hann ofurliði.
Ketill þóttist svosem vita að innst
inni hefði Sæli alltaf verið skotinn í
honum, en hann vissi líka að samband
þeirra á milli gæti aldrei orðið annað
en tímaskekkja. Og Katli var ljóst að
sú tækni sem þyrfti til að breyta Jónu
Guðbjörns þannig að hún (eða þá hann)
hugnaðist honum betur væri ekki enn
fyrir hendi. Svona var nú lífið í gamla
daga gott fólk! En jæja, til að gera langa
sögu stutta þá ákváðu þeir þarna, Ketill
og Sæli, að salta málið í 40 ár eða svo.
Að loknum göngunum bað svo
Ketill um hönd Jónu og lifðu þau vel og
lengi, eða allavega lengi vel, í ástlausu
hjónabandi. Þetta allt er hins vegar
bara forsagan að því hvernig á því stóð
að í göngum haustið 2006 ultu tveir
karlhlunkar, komnir fast að sextugu, í
faðmlögum niður hlíðarnar svo bæði
fé og fólki stóð af því hin mesta hætta.
Var það bæði hjákátleg, en á sinn hátt,
dálítið fögur sjón. Boðskapur sögunnar
er auðvitað sá að allt hefur sinn tíma og
að sjálfsögðu að ástin sigrar að lokum.
Það er hins vegar af Jónu Guðbjörns
að segja að henni var svosem alveg
sama um þetta allt saman, það kom
reyndar upp úr dúrnum þegar hún gaf
út æviminningar sínar í fyrra að lagið
fræga „Lóa litla á Brún“ hafði reyndar
verið samið um hana, nöfnunum hafði
bara verið breytt. „Já já, ég hef alltaf séð
um mig“ sagði Jóna í viðtali við Feyki
í tilefni af sextugsafmæli hennar nú
síðsumars.
„Það var nú svosem engin launung
á því á milli okkar Ketils að hann giftist
mér bara til sauðfjár. En hann var
alltaf snyrtimenni og frekar þægilegur
í sambúð svona þannig séð, seisei já.“
Þannig var nú það – endir!
Ágúst Jakobsson
4
HLUTI