Feykir


Feykir - 20.02.2014, Blaðsíða 1

Feykir - 20.02.2014, Blaðsíða 1
 á BLS. 6-7 BLS. 8 Andri Már Sigurðsson svarar í Tón-lystinni Hefur komið með slatta af lögum út úr sturtunni BLS. 7 Rætt við nýjan og fráfar- andi framkvæmdastjóra Nes listamiðstöðvar Kvikmyndaveisla á Skagaströnd Vetrarhátíð í Skagafirði CrazyRoller og risasvig á meðal nýjunga 07 TBL 20. febrúar 2014 34. árgangur : Stofnað 1981 Meira í leiðinni Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6 FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN! BÍLAVERKSTÆÐI Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570 Við þjónustum bílinn þinn! Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla, vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun. Heilbrigðisráðherra hitti fulltrúa sveitarstjórnar Skagafjarðar sl. þriðjudag til þess að ræða framtíð Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðár- króki. Um var að ræða óformlegan fund í þeim tilgangi að fá svör við erindi sem sveitarfélagið hafði ítrekað sent til ráðherra um viðræður um yfirtöku á rekstri Heilbrigðisstofnunarinnar, að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggðarráðs. Á fundinum var farið yfir stöðu mála en engin niðurstaða fékkst, samkvæmt Stefáni, en fulltrúar sveitarstjórnarinnar vildu ekki síst árétta mikilvægi þess að svara erindinu svo hægt sé að setja form- legar viðræður af stað. Ráðherra sagðist vera tilbúinn að ræða möguleikann á yfirtöku sveitarfélagsins á Stofnuninni en málið snýst um að fá nægilegt fjármagn til rekstursins. „Markmiðið er að viðhalda núverandi þjónustu svo að hún skerðist ekki. Og ef við getum betur tryggt þá þjónustu sem fyrir er með samningi við ríkið, þá verðum við að Fulltrúar Svf. Skagafjarðar hittu heilbrigðisráðherra Rætt um framtíð HS Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki veitir margvíslega þjónustu, fyrir unga sem aldna. Hér má sjá yngstu borgara samfélagsins í ungbarnasundi sl. þriðjudag. /BÞ KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200 G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N DELL Inspiron 5521 Intel Core i3 · 4GB vinnsluminni · 500GB harður diskur · 15.6“ HD WLED · Windows 8 ÚTSALA ÚTSALA ALLT A Ð 40% AFSL ÁTTUR skoða það alvarlega,“ sagði Stefán. Þá hafa fleiri sveitarfélög á landsbyggðinni sóst eftir því að yfirtaka rekstur heil- brigðisstofnana í sínu byggðalagi, s.s. bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum og Vesturbyggð, og að sögn Stefáns segir það manni að hugmyndafræðin sé ekki alveg útúr kortinu. /BÞ Styðja óskir um yfirtöku á rekstri Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar Sauðárkróki Hollvinasamtök Heilbrigðisstofn- unarinnar Sauðárkróki lýsa heilshugar yfir stuðningi við óskir sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar um að yfirtaka rekstur stofnunarinnar með samningi við ríkið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hollvinasamtökunum. Hollvinasamtökin skipar stór hópur íbúa Sveitarfélagsins Skaga- fjarðar og Akrahrepps sem bera hag stofnunarinnar og þá þjónustu sem hún veitir íbúum Skagafjarðar fyrir brjósti. Stofnunin er ein af mikilvægari grunnstoðum samfélagsins og ómet- anlegt það öryggi sem hún veitir. Í tilkynningunni kemur fram að það sé eindreginn vilji til þess að Heilbrigðisstofnunin fái áfram að sinna sínu mikilvæga hlutverki í sömu mynd og verið hefur og ekki verður séð að það verði öðru vísi tryggt en með því að heimamenn sjálfir sjái um reksturinn. „Hollvinasamtökin skora á heil- brigðisráðherra, aðra ráðherra og þingmenn að ljá því lið að heimamenn taki að sér reksturinn svo tryggja megi að heilbrigðisþjónusta í Skaga- firði verði áfram með þeim myndar- brag sem hún hefur verið undanfarna áratugi, þrátt fyrir niðurskurð síðustu ára,“ segir loks í tilkynningunni. /BÞ

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.