Feykir - 20.02.2014, Blaðsíða 6
6 Feykir 07/2014
hingað til okkar en þeir eru tíu
talsins af rúmlega 100 um-
sækjendum. Þetta er mjög
hæfileikaríkur og góður hópur
með mjög ólíkan bakgrunn.
Þau koma t.d. frá Los Angeles,
Japan, Indlandi, Kanada og
víðar. Sumir hafa akademískan
bakrunn á meðan aðrir hafa
meira listrænan,“ segir Melody
og segir frá einum kvikmynda-
gerðamanni sem er hjá þeim
sem hefur starfað með banda-
ríska leikstjóranum Quentin
Tarantino, öðrum sem hefur
starfað hjá National Geo-
graphic og þriðja hjá Smith-
sonian-safninu í Bandaríkj-
unum. „Þau hafa starfað svo
mikið fyrir aðra í kvikmynda-
gerð en nú fá þau tækifæri til
þess að horfa inn á við og skapa
eitthvað útfrá sjálfum sér. Það
verður mjög áhugavert að sjá
mismunandi útkomur hjá
þessu ólíka fólki,“ segir Melody.
Dagskrá hátíðarinnar er
metnaðarfull og ættu allir að
finna eitthvað við sitt hæfi.
Setning hennar fer fram í Kaffi
Bjarmanesi á föstudag kl.
19:00. Þá verður til sýningar
fyrsta stuttmynd hátíðarinnar
eftir Emily McAllan sem
kallast Kvikmyndabréfin en um
er að ræða röð stuttmynda um
dvöl kvikmyndagerðar-
fólksins á Skagaströnd sl. þrjá
mánuði. Kvikmyndasýningar
laugardagsins fara fram í
Félagsheimilinu Fellsborg en
þar eru búið að koma fyrir
stóru kvikmyndatjaldi og góðu
hljóðkerfi, og segir Melody þau
hafa notið dyggrar aðstoðar
Skottu kvikmyndafjelags við
að koma því upp. Dagskráin
hefst kl. 13:00 með barna-
Hugmyndin að kvikmynda-
hátíðinni kviknaði fyrir tveim-
ur árum síðan þegar Melody
kom fyrst til Skagastrandar en
hátíðin er hugarfóstur hennar
og Tims, sem er kvikmynda-
gerðarmaður og vinur hennar
frá Ástralíu. Þema hátíðarinnar
„The Weight of Mountains“
vísar í mikilvæg tengsl
mannsins við umhverfið,
hvernig það hefur áhrif á
manninn og öfugt. Tíu kvik-
myndagerðarmenn hafa dvalið
við listamiðstöðina í tengslum
við kvikmyndahátíðina í þrjá
mánuði og unnið að undir-
búningi hennar. „Ég er mjög
ánægð með þá kvikmynda-
gerðarmenn sem við fengum
Kvikmyndaveisla
á Skagaströnd
Kvikmyndahátíðin „The Weight of Mountains“ verður haldin á Skagaströnd
um helgina en um er að ræða fyrstu kvikmyndahátíðina þar í bæ. Feykir
renndi á Skagaströnd í glaðasólskini og leit inn í Nes listamiðstöð þar
sem kvikmyndagerðarfólk víðs vegar að úr heiminum var niðursokkið
í undirbúning fyrir kvikmyndahátíðina. Þar tóku skipuleggjendur
hátíðarinnar, Melody Woodnutt og Tim Marshall, vel á móti blaðamanni
ásamt nýjum framkvæmdastjóra listamiðstöðvarinnar Ninette Rothmüller.
sýningu á nýlegri Hollywood
kvikmynd, Oz: The Great and
Powerful (2013). Um kvöldið
kl. 19:00 verða svo sýndur
afrakstur vinnu kvikmynda-
gerðarfólksins, tíu stuttmyndir
sem gerðar voru á Skagaströnd
á meðan dvöl þeirra stóð. Á
sama tíma verða myndirnar til
sýningar í Gúttó á Sauðárkróki
og gefst þeim sem ekki komast
til Skagastrandar tækifæri til
að sjá þær. Á sunnudeginum
verður boðið upp á íslenskar
kvikmyndir í Fellsborg.
Klukkan 14:00 verður kvik-
myndin Búðin (2013) eftir
Árna Gunnarsson og Á annan
veg (2012) eftir Hafstein
Gunnar Sigurðsson verður svo
sýnd kl. 17 og verður þá boðið
upp á poppkorn. Í kjölfarið á
henni verður bandaríska
kvikmyndin A Place Beyond
the Pines (2012) til sýningar.
Kvikmyndahátíðin endar svo
formlega í Bíó Paradís í
Reykjavík þann 28. febrúar nk.
Rætt við nýjan og fráfarandi framkvæmdastjóra Nes listamiðstöðvar
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Stuttmyndir
kvikmyndagerðarmanna á
The Weight of Mountains
Sumar stuttmyndir kvikmyndargerðarfólksins verða sýndar
sem „myndir í vinnslu“ til að sýna sköpunarferli myndanna
í vetur á Skagaströnd.
Jolene Mok / Notes on Displacement
„Landið og trén vilja ekki kenna mér neitt en fólkið á staðnum gerir
það“. Mér er sagt að Íslendingar trúi því að „glöggt sé gestsaugað“.
Alasdair Bayne / Old Terror (vinnuheiti)
Heimildamynd um það hvernig það er að alast upp á Skagaströnd.
Myndin segir frá hópi unglinga og hvernig þeir fást við ást,
einmanaleika, skólagönguna og „snapchat“.
Rachel Lin Weaver / Húnaflói
Húnaflói er tilraunakennd heimildamynd um fisk, missi, hafið,
þekkingu mannsins, vitneskju um fiskinn, ást, sorg, leit og þá hluti
sem fiskar segja hvor öðrum.
Jayne Amara Ross / Spakonufell (í vinnslu)
Tilraunakennd heimildamynd eða myndræn frásögn sem lýsir eðli
samfélags og þýðingu dulrænna hluta í mótun sjálfsmyndar.
Emily McAllan / Hjátrú
Sem árangur af þriggja mánaða vinnu við að fanga bernskudrauma
á Norðurlandi; birtist þessi heimildarmynd um umbreytingareðli
staða.
Yu Arakai / Road Movie
Heimildarmynd um viðburð í samfélaginu, kvikmyndagerð og
ferðina eftir hinni sögulegu „Leið 66“.
Morgan Rhys Tams /
A Cartography of Iconic Memory
Sem áhugamaður um að nota tæknina til að koma nýju lífi í
afskekkta staði hefur Morgan Rhys Tams búið til fjórar stuttar
teiknimyndir nú í vetur. Aðgangur að myndunum næst með aðstoð
snjallsíma og „QR code“ á málmplötum. Þátttakendur verða að
fylgja korti, um Skagaströnd og á netinu, meðfram malarvegum, yfir
þúfnabörð og meðfram strandlengjunni til að finna stuttmyndirnar.
Árangurinn er „samtenging“ milli listamannsins, þátttakandans,
umhverfisins á Skagaströnd og Internetsins.
Shilpa Munikempanna / 3.37 I Do Not See You
3.37 er tíminn sem tekur mig að reykja eina sígarettu. Ég hætti mér
út til að sjá veröldina þar sem ég dvel.
Temujin Doran / Ótitlað
Temujin Doran hefur mikla reynslu af vetrinum eftir að hafa
kvikmyndað á Suðurskautslandinu. Mynd hans um staðinn og
umhverfið sýnir örugglega raunveruleikann og fegurðina.
Boris Schaarschmidt /
Eldur á himni (Fire in the Sky)
Að sjá norðurljósin var alltaf á óskalistanum. Ég var að vona að
dvölin í Nes listamiðstöð veitti mér tækifæri til þess að sjá þetta
fyrirbæri. Í fyrstu voru svolítil vonbrigði að sjá að flestar ljósmyndir
eru svolítið villandi og að fegurð þeirra er tekin „á tíma“. En eftir
fyrsta skiptið varð ég hugfanginn af norðurljósunum og árangur
svefnlausra nótta má sjá í þessari mynd.
Ninette Rothmüller og Melody Woodnutt.