Feykir - 20.02.2014, Blaðsíða 4
4 Feykir 07/2014
Ein lítil afmæliskveðja
ÓLAFUR HALLGRÍMSSON SKRIFARFRÁ LESENDUM
AÐSENT
Kirkjubækur segja, að
Jóhann Guðmundsson frá
Stapa hafi orðið níræður
22. janúar sl. Ekki skrökva
kirkjubækur, þótt við, sem
þekkjum Jóhann, eigum
erfitt með að samsinna því,
svo er maðurinn enn ungur í
anda og léttur í spori.
Kynni okkar Jóhanns eða
Jóa í Stapa, eins og hann er
yfirleitt nefndur af samferða-
fólkinu, hófust fyrir um þrjátíu
árum, er ég kom sóknarprestur
að Mælifelli. Jói hafði unnið við
ýmislegt í húsinu á Mælifelli í
tíð forvera minna þar. Það lét
því að líkum, að ég fékk Jóa til
að líta á gluggana í húsinu, sem
orðnir voru ærið lélegir, sparsla
í þá og mála, sem hann og gerði
af miklum fúsleik, og lét sig
ekki muna um að ganga
heiman frá sér hér yfir
Tunguna, sem hann sagði, að
væri ekki nema smáspölur. Ég
hafði þá heyrt Jóa í Stapa getið
sem snjalls hagyrðings, en átti
eftir að kynnast því betur við
ýmis tækifæri, raunar strax við
innsetningu mína í prestakallið
í kaffinu í Árgarði, er hann flutti
frumort ljóð og bauð okkur
velkomin.
Jói er Skagfirðingur í húð og
hár, fæddur í Blönduhlíð,
stundaði nám við Bænda-
skólann á Hvanneyri, en
eignaðist snemma jörðina
Stapa í Lýtingsstaðahreppi, þar
sem hann bjó lengst af og
kennir sig jafnan við þann bæ.
Jói er hagleiksmaður og leikur
flest í höndum hans, smiður
góður og eftirsóttur til slíkra
starfa, sem hann stundaði ætíð
samfara búskapnum, sem
kannski sat nokkuð á hakanum
fyrir bragðið. Hann er líklega
einn þeirra manna, sem á betur
með að vinna fyrir aðra en
sjálfan sig, enda bóngóður og
greiðvikinn með afbrigðum.
Smíðavinnu hefur Jói stundað
víða um Skagafjörð og
Húnavatnssýslur, en einnig
mikið á Suðurlandi, þar sem
hann dvaldi langdvölum og
eignaðist góða vini. Munu þær
verða orðnar nokkuð margar
útihúsa – og íbúðabyggingarnar,
þar sem Jói hefur lagt eitthvað
gjörva hönd að verki.
Árlegir Konudagstónleikar
Íslensk lög og ljóð
Kvennakórinn Sóldís heldur sína árlegu Konudags-
tónleika sunnudaginn 23.
febrúar kl. 15:00 í
Menningarhúsinu Miðgarði.
Að loknum tónleikum bjóða
þær gestum til kaffiveislu
eins og hefð gerir ráð fyrir.
Stjórnandi kórsins er Sólveig
S. Einarsdóttir og undirleikari
er Rögnvaldur Valbergsson,
auk þess stíga þrír einsöngvarar
á stokk. Söngskrá þessa vetrar
einkennist af íslenskum lögum
og ljóðum, allt frá sígildum
þjóðlögum til sígildra dægur-
laga. Þess má geta að undir-
leikari kórsins, Rögnvaldur,
hefur útsett nokkur þeirra laga
sem sungin verða. Menningar-
sjóður Norðurlands vestra
styrkir þessa tónleika.
Aflahornið 9. -15. febrúar 2014
Þunnur þrettándi í Sauðárkrókshöfn
Í viku 7 var landað rúmum fimm tonnum á
Skagaströnd, tæpum 9 tonnum á Hofsósi,1,3
tonnum á Sauðárkróki og 780 kg á
Hvammstanga. „Frekar þunnur þrettándi,“
eins og Gunnar Steingrímsson hafnarvörður
í Skagafirði orðar það, en togarinn Klakkur
landaði á Eskifirði að þessu sinni. Sömu sögu
er að segja af Skagaströnd, þar sem lítið var
róið vegna veðurs. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Harpa HU-4 Dragnót 780
Alls á Hvammstanga 780
Flugalda ST-54 Landb.lína 1.516
Óli Gísla Lína 212
Sæfari HU-200 Landb. lína 347
Alls á Skagaströnd: 2.075
Ásmundur SK-123 Landb.lína 3.155
Skáley SK-32 Landb.lína 5.550
Alls á Hofsósi 8.705
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 1.290
Már SK-90 Rauðmaganet 65
Alls á Sauðárkróki 1.355
NAUTGRIPABÆNDUR ATHUGIÐ!
Kjötafurðastöð KS og Sláturhús KVH greiða afgerandi hæsta verð
á nautgripainnleggi norðan heiða.
Verð á helstu flokkum eru:
UNI úrv. A 714 kr.
UNI úrv. B 662 kr.
UNIA 656 kr.
UNIB 625 kr.
Öll verð eru án vsk.
Breyttur afgreiðslutími:
Æskilegt er að innmatur úr stórgripum sé sóttur á fyrsta degi eftir slátrun og
ekki seinna en á fjórða degi frá slátrun.
Afgreitt er úr Afgreiðslubyggingu, austan megin á húsinu
alla virka daga milli kl. 8:00-9:30, 10:00-12:00 og 13:00-15:00.
Allar nánari upplýsingar um verð og afgreiðslutíma má finna á heimasíðu http://www.ks.is/is/kjotafurdastod
Pantanir fyrir slátrun er í síma 455 4588 eða á bondi@ks.is
Kjötafurðastöð KS, Eyrarvegi 20, 550 Sauðárkrókur
Kjötafurðastöð
KIUA 567 kr.
KIA 551 kr.
KIB 499 kr.
En líklega er þó Jói í Stapa
þekktastur fyrir sína ljóðagerð
og vísnaáhuga, því hann er
skáld af Guðs náð. Út hafa
komið frá hans hendi tvær
ljóðabækur. Hin fyrri, Axar-
sköft, kom út 2006, en hin
síðari, Ný axarsköft, árið 2011.
Sjálfur ákvað hann nöfin á
bókunum, enda segist hann í
ljóði vera þekktastur af
„axarsköftum“ sínum. Fyrri
bókin hefur að geyma lengri
ljóð um fjölbreytilegt efni,
vönduð og falleg ljóð. Jói er
náttúrubarn að eðlisfari, hann
yrkir mikið um sveitina sína og
hérað, um vorið, haustkomuna
og vetrarkvöldin. Sum ljóðanna
hafa orðið til frammi til fjalla í
haustgöngum og réttum eða
við önnur tækifæri, þar sem
höfundur er á ferð vel ríðandi í
góðra vina hópi. Þarna er líka
að finna allmörg afmælis- og
erfiljóð, jafnvel þýdd ljóð. Jói er
næmur á blæbrigði lífsins, ljóð
hans bera þess merki. Seinni
ljóðabókin hefur að stærstum
hluta að geyma ljóð og
lausavísur ortar við ýmis tilefni
í dagsins önn. Þar er m.a. að
finna yrkisefni frá hagyrðinga-
mótum, en Jói var upp-
hafsmaður að árlegum lands-
mótum hagyrðinga, ásamt vini
sínum, Inga Heiðmari Jónssyni,
sem orðið hafa vinsælar
samkomur og haldnar víða um
land.
En Jóa í Stapa er margt til
lista lagt. Hann teiknar og
málar myndir og hefur fengist
talsvert við það, kenndi m.a.
teikningu við Steinsstaðaskóla
um tíma. Blýantsteikningarnar
hans skreyta ljóðabækurnar og
gefa þeim skemmtilegan svip.
Við síðustu messuna mína í
Ábæ sumarið 2008 orti Jói ljóð,
sem hann nefndi Ábæjarkirkju
3. ágúst 2008. Ljóð þetta færði
hann mér að gjöf. Það hefur nú
verið innrammað og hengt upp
á vegg í kirkjunni, þar sem það
minnir á þá virðingu, sem Jóa
er í blóð borin gagnvart trú og
kirkju. Og ekki hefur Ábæjar-
messan verið betur mærð í
annan tíma en í þessu fagra
ljóði.
Síðustu árin hefur Jói verið
búsettur í Varmahlíð. Þar hefur
hann litla íbúð og unir hag
sínum vel. Fram til þessa hefur
hann farið allra sinna ferða á
eigin bíl og brugðið sér til
höfuðborgarinnar, ef því er að
skipta. Hann er félagslyndur og
vinamargur, hefur gaman af að
hitta fólk og blanda við það
geði, einnig að fá gesti í heim-
sókn. Nú segir hann, að heyrnin
sé farin að baga sig, svo hann
fer minna á mannamót. En
sjónin er býsna góð svo hann
getur lesið sér til ánægju.
Um leið og ég sendi Jóa
bestu afmælisóskir og þakka
honum góð samskipti á liðnum
árum, vil ég bera fram þá ósk,
að skáldneistinn yfirgefi hann
aldrei og hann eigi ætíð
sólarsýn, því eins og hann segir
sjálfur í litlu ljóði, er hann orti
áttræður:
...Meðan andinn ungur reynist,
árin litlu skipta.
Ólafur Hallgrímsson
KVENNAKÓRINN SÓLDÍS