Feykir - 20.02.2014, Qupperneq 7
07/2014 Feykir 7
með sýningu á stuttmynd-
unum tíu og getur kvikmynda-
áhugafólk sunnan heiða þá
brugðið sér í bíó.
Melody segir að kvik-
myndahátíðin á Skagaströnd
sé einungis upphafið að verk-
efninu en hún og Tim ætla að
halda verkefninu áfram og
hafa skuldbundið sig til þess að
halda samskonar kvikmynda-
hátíðir víðsvegar um heiminn
á tveggja ára fresti. Næst munu
þau halda samskonar hátíð á
listamannasetri í Sahara-eyði-
mörkinni í Marokkó.
Ómetanlegur
stuðningur og
meðbyr
Melody lætur af störfum sem
framkvæmdastjóri Nes lista-
miðstöðvar strax eftir kvik-
myndahátíðina, eftir tveggja
ára starf. Aðspurð segist hún
eiga eftir að sakna Skagastrand-
ar en að sama skapi hlakkar
hún til að hitta fjölskyldu sína á
ný, en hún hefur ekkert hitt
hana frá því hún fór frá Ástralíu
fyrir tveimur árum. Að sama
skapi segist hún vera spennt að
fá tækifæri til að sinna lísta-
gyðjunni á ný. „Skagaströnd á
sérstakan stað í hjarta mínu, ég
er viss um að ég á eftir að koma
aftur og starfa í tengslum við
listamiðstöðina.
Aðspurð um hvað standi
upp úr varðandi störf hennar
hér á landi svarar hún að það
hafi verið magnað að fá að
starfa við svo mikið frjálsræði
og tekur Tim undir það með
henni. „Það er svo dásamlegt
hvað maður finnur fyrir
miklum stuðningi og meðbyr.
Þegar ég hef fengið hugmyndir
þá hefur reynst svo auðvelt að
framkvæma þær og koma á
samstarfi. Hvar sem maður
drepur á dyr er manni vel tekið
og fólk er tilbúið í samstarf -
þetta er afar sjaldgæft,“ segir
Melody og minnist hún
sérstaklega á Katrínu Maríu
Andrésdóttur hjá SSNV í því
sambandi. „Hún hefur verið
okkur ómissandi stuðningur
og ég er henni mjög þakklát,“
segir hún. Melody segist hafa
lært mikið af dvöl sinni og eiga
mörg ógleymanleg augnablik
sem ylja henni að hjartarótum.
Fullkomna trú á
listamiðstöðinni
Ninette Rothmüller frá
Þýskalandi tekur við starfi
Melody sem framkvæmda-
stjóri Nes listamiðstöðvar og
hóf hún störf þann 15. febrúar
sl. en hún flytur hingað til
lands í lok aprílmánaðar frá
Massachusetts í Bandaríkj-
unum. Þangað til mun Vicki
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Andri Már Sigurðsson / tónlistarmaður
„Hef komið með slatta
af lögum út úr sturtunni”
Andri Már Sigurðsson
(1984), sem stundum skúrar
blúsheiminn undir nafninu
Joe Dubius, er sennilega
best þekktur sem aðalrödd
og gítar- og banjóleikari í
framlínu Contalgen Funeral.
Andri, sem er uppalinn á
Króknum, er í vetur með annan
fótinn í Reykjavík en hinn í
heimahögum. Hann hefur verið
iðinn við tónlistarkolann síðustu
árin og til helstu afreka sinna á
því sviði telur hann vera útgáfur
á plötunum Matartíminn, Rainy
Day in the Park, Pretty Red
Dress með Contalgen Funeral
og svo næstu plötu CF sem er í
vinnslu.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Á mér ekkert sérstakt uppáhalds
tímabil. Tónlist er tímalaus fyrir mér.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana?
Hef verið að skoða allskonar blús
og kántrý á YouTube svo finnst mér
voðalega gott að setja á klassískar
plötur eins og Nighthawks at the
Diner og Heart of a Saturday Night
með Tom Waits þegar ég vaska upp.
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili?
Þegar ég var yngri komst ég í
plöturnar hans pabba, hlustaði mikið
á Queen, Bubba, CCR , Deep Purple
og allskonar. Svo voru það bílferðir
með mömmu til Hólmavíkur þar sem
Abba og Sálin voru ráðandi. Núna er
ég aðallega að hlusta á upptökur sem
fara á næstu plötu með Contalgen
Funeral, maður spilar þetta þar til
maður fær hálfgert ógeð á þessu.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér?
Ég man ekki hvað platan hét, þetta var
einhver þungarokkshljómsveit sem
hafði sett mynd af djöflinum á coverið.
Keypti hana á geisladiskamarkaði í
Ljósheimum – bara út af myndinni.
Hvaða græjur varstu þá með?
Gamlar græjur sem pabbi átti,
Technic's eða eitthvað álíka held ég.
Hvað syngur þú helst í sturtunni?
Aðallega lög eftir sjálfan mig. Hef
komið með slatta af lögum út úr
sturtunni. Seinast lagið Jól frá liðinni
tíð með hljómsveitinni Ingimar sem
komst svo í Jólalagakeppni Rásar 2.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn?
Glaðasti hundur í heimi klárlega, það
er algjör viðbjóður.
Uppáhalds Júróvisjónlagið ?
Á ekkert uppáhalds. Er voða lítið fyrir
toppurinn
Vinsælustu lögin á
Playlistanum:
Killer Duet
CONTALGEN FUNERAL
Cold Cold Heart
NORAH JONES
(HANK WILLIAMS COVER)
Murr murr
MUGISON
New Coat of Paint
TOM WAITS
Leggir
SKÚLI MENNSKI
Please Call Me Baby
TOM WAITS
svoleiðis.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð?
Ætli ég mundi ekki skella Skúla
mennska eða KK í græjurnar.
Þú vaknar í rólegheitum á sunnu-
dagsmorgni, hvað viltu helst
heyra?
Það eru bara tvö lög sem koma
til greina þessa dagana. Það er
flutningur Norah jones á Long Way
Home og Cold Cold Heart með Tom
Waits og Hank Williams.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér?
Ég held að það mundi ekki skipta
máli hvar tónleikarnir væru. En það
yrði klárlega Tom Waits og ég mundi
taka hljómsveitina mína með.
Hvaða tónlistarmann hefur þig
dreymt um að vera?
Mig hefur aldrei dreymt um að vera
neinn sérstakur tónlistamaður. En
ég djóka oft um það hvað ég ætla
að gera þegar ég hef selt 30 milljón
plötur eins og Cyndi Lauper.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út?
Heart of a Saturday Night með Tom
Waits.
O´Shea frá Sauðárkróki brúa
bilið og verða listamönnum til
halds og trausts í lista-
miðstöðinni. Ninette var hjá
Nes listamiðstöð árið 2010 og
féll fyrir bænum á meðan á
dvöl hennar stóð og hefur hún
heimsótt Skagaströnd á hverju
ári síðan. Það var einmitt í
heimsókn hennar sl. sumar,
þegar Melody minntist á það
við hana að hún væri búin að
segja starfi sínu lausu, að hún
fór að velta fyrir sér þeim
möguleika að taka að sér
starfið og flytja hingað til lands
ásamt fjölskyldu sinni. „Í
kjölfarið hitti ég Hrafnhildi
[Sigurðardóttur í stjórn Nes
listamiðstöðvar, innsk.blm.] í
Reykjavík til að vita hvort við
hefðum samskonar hugmyndir
og framtíðarsýn fyrir lista-
miðstöðina og við vorum
fullkomlega samhljóma. Eftir
að hafa rætt þetta við
fjölskylduna sótti ég um
starfið,“ segir Ninette.
Hún segist vera mjög hrifin
af samfélaginu á Skagaströnd
og að ætlunin sé að vera þar til
frambúðar. „Þegar ég var að
skrá litlu stúlkuna mína í
leikskólann hér var ég spurð
hvort ég ætlaði að vera í eitt ár.
Ég svaraði neitandi. -Nú? Tvö
ár?“ segir hún og hlær. „Ég
væri ekki að flytja fjölskyldu
mína hingað til styttri tíma, ég
hef fullkomna trú á lista-
miðstöðinni og ég tel að á
þessum tímapunkti sé að gott
fyrir hana að hafa einn
framkvæmdastjóra til lengri
tíma. Ég mun svo læra íslensku
af eins árs dóttur minni,“ segir
Ninette brosandi í lokin.
Melody ásamt Morgan Rhys Tams en þarna sýnir hann svokallaðan QR-kóða sem lesa má um fyrri bls.
Kvikmyndagerðarmenn að störfum í Nes listamiðstöð.