Feykir


Feykir - 20.02.2014, Síða 11

Feykir - 20.02.2014, Síða 11
07/2014 Feykir 11 Anna Rósa og Gunnar Valur kokka Humar með mangó og kjúklingaréttur KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar á skilið að fá sér örlítinn lúr. Tilvitnun vikunnar Það sem ég geri í dag er mikilvægt, vegna þess að ég læt heilan dag af lífi mínu í skiptum fyrir það. - Hugh Mulligan Sudoku Naflalaus leikstjóri ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT Alfred Hitchcock náði heimsfrægð árið 1935 þegar hann gerði myndina 39 steps. Hann lést þann 29. apríl 1980, þá áttræður en hafði á ferli sínum leikstýrt yfir 60 kvikmyndum. Ótrúlegt en kannski satt þá varð hann naflalaus eftir aðgerð sem hann fór í. Hjónin Anna Rósa Pálsdóttir, brottfluttur Króksari og Gunnar Valur Stefánsson eru matgæðingar Feykis þessa vikuna. Þau bjóða upp á humar með mangó, kjúklingarétt og loks rabarbara pie í eftir „Ég fékk þá skemmtilegu áskorun að vera matgæðingur Feykis. Æskuvinkona mín hún Gunnhildur Árnadóttir skoraði á mig og manninn minn og þakka ég henni fyrir það. Ég er fædd og uppalin á Króknum en maðurinn minn er borinn og barnfæddur Reyk- víkingur. Við vinnum bæði vaktavinnu og erum alltaf eitthvað að heiman í hverjum mánuði. Við erum jafnvíg þegar kemur að eldamennsku og eru þessir réttir sem við ætlum að bjóða ykkur uppá í miklu uppáhaldi. Forréttinn og aðalréttinn sem við bjóðum uppá fékk ég hjá svilkonu minni og mági fyrir nokkrum árum. Svilkona mín er mikill meistarakokkur og fæ ég oft góð ráð og uppskriftir frá henni. Þessir réttir eru einfaldir og fljótlegir sem hentar okkur vel þegar lítill tími er til þess að elda eins og kemur stundum fyrir á okkar heimili. Ég skora á frænku mína hana Hjör- dísi Stefánsdóttur lögfræðing og manninn hennar Kristinn Jens Sig- urþórsson sóknarprest í Saurbæ.“ 1 bolli ólífuolía 4 stk hvítlauksrif, skorin í 3 bita hvert um sig. ½ bolli ferskt oregano ½ bolli púðursykur 1 bolli sveskjur ½ bolli ólífur (blandaðar eða þær sem eru í uppáhaldi) Aðferð: Bringur skornar í þrjá hluta og settar í eldfast mót, salti og pipar stráð yfir. Öllu blandað saman í skál nema sveskjum og ólífum. Hellt yfir kjúklinginn. Sveskjum og ólífum stráð yfir. Eldað í 20-30 mín. við 200°C. Borið fram með salati, hrísgrjónum og brauði. EFTIRÉTTUR Rabarbara pie Rabarbari 200 gr smjör 1 bolli hveiti 1 bolli sykur 1 tsk vanillusykur 1 tsk lyftiduft Aðferð: Í eftirrétt bjóðum við uppá Rabbabara pie. Það er mjög vinsælt og hef ég notast við uppskrift frá Alberti Eiríkssyni (manni Bergþórs Pálssonar söngvara). Rabbabari skorinn í litla bita og settur í botninn á eldföstu móti. Bræðið smjörið í potti og blandið hráefnunum saman við. Hrærið vel saman. Takið pottinn af hellunni og hrærið 2 eggjum saman við þangað til hræran er samfelld og slétt. Hellið yfir rabbabarann og stráið kókosmjöli yfir. Bakið við 160°C í 25-30 mín. Berið fram heitt með ís eða þeyttum rjóma eða bæði. Verði ykkur að góðu! Feykir spyr... [SPURTÍ FARSKÓLANUMI ] Fylgdist þú með Eurovision? MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN berglind@feykir.is FORRÉTTUR Humar með mangó Undirbúningur er 15 mínútur, suðutími 40–45 mínútur, uppskrift- in er fyrir 4. 12 Humarhalar, skelflettir salt og svartur pipar, grófmulinn 1 hvítlaukur 1 skalottlaukur 4 Basillauf, söxuð 3 msk ólífuolía safi úr 1 stk lime 1 tsk hunang 1 tsk sherry-edik 1 tsk rautt chilli, saxað 1 stk mangó, skorið í bita Aðferð: Humarinn steiktur með hvítlauk, salti og pipar og svo kældur. Öllu hinu blandað saman í skál og sett svo saman við humarinn. Kosturinn við þennan rétt er að hægt er að gera hann að degi og geyma inni í ísskáp þar til hann er borinn fram. Portvínsgljái (ekki nauðsynlegur): 1 bolli portvín 1 msk balsamic edik 1 rautt chilli, fínt saxað Aðferð: Þetta er soðið niður í þykkan gljáa og kælt. Sett svo umhverfis forréttinn þegar kominn á diskana. AÐALRÉTTUR Kjúklingaréttur fyrir 4 5-6 bringur salt og pipar 1 ½ bolli hvítvín ½ bolli balsamic vinegar AÐALBJÖRG VALBERGSDÓTTIR -Sá lokaþáttinn, nei ég var ekki sátt við úrslitin. JÓN HÖRÐUR ELÍASSON -Sá hluta af lokaþættinum. Já, já þetta var fínt. KRISTJÁN FANNAR VALGARÐSSON -Já, ég fylgdist með. Er alveg sáttur. BEATE CIURA -Nei, hafði ekki áhuga. SNJÓLAUG JÓNSDÓTTIR -Já, alveg sama hvað lag við sendum. HRÖNN BRANDSDÓTTIR -Já, lögin voru bara fín. FEYKIFÍN AFÞREYING kristin@feykir.is Mildur vetur FRÉTTIR FYRRI ALDA: SKAGAFJÖRÐUR 1624 Að þessu sinni hefur vetur verið frábærlega mildur. Í síðustu viku vetrar voru sóleyjar vaxnar í Skagafirði, og um svipað leyti urpu fuglar í haga, að menn segja. Grasvöxtur er bæði mikill og snemmkominn. Öldin sautjánda, bls 59. Margrét Rós, Anna Rósa, Gunnar Valur og Stefán Valur. Ljósmynd í bakgrunni er af Sauðárkróki og tekin af Pétri Inga Björnssyni.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.