Feykir - 27.02.2014, Page 1
á
BLS. 6-7
BLS. 8
Kvennakórinn Sóldís söng
íslensk lög og ljóð
Vel heppnaðir
konudags-
tónleikar
BLS. 10
Sigríður Hjaltadóttir á
Sólbakka í Víðidal er í
opnuviðtali í Feyki
Með mörg járn
í eldinum
Íris Jónsdóttir frá
Þrasastöðum stýrir
áskorendapennanum
Vefir örlaga-
dísanna
08
TBL
27. febrúar 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
S K A G F I R Ð I N G A B R A U T 2 9 S A U Ð Á R K R Ó K I S Í M I 4 5 3 6 6 6 6
FÁÐU ÞÉR Í SVANGINN!
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Þrjár stúlkur sluppu ómeiddar þegar
bíll þeirra valt á Þverárfjallsvegi
síðdegis sl. föstudag. Bíllinn valt
þrjár til fjórar veltur, út fyrir veg, og
stöðvaðist á hjólunum á gilbarmi.
„Mikið Guðs lán að ekki varð þarna
dauðaslys,“ sagði talsmaður
lögreglunnar á Sauðárkróki í samtali
við Feyki.
Samkvæmt lögreglunni var hvasst
þegar slysið varð og hálkublettir á
veginum, en bílveltan átti sér stað
skammt frá bænum Þverá. Það hafði
skafið með vegriði og bíllinn oltið við
það að lenda í snjónum. „Þegar við
nálgumst endann á vegriðinu verður allt
hvítt, sem sagt það kemur sterk vindhviða
sem feykir með sér snjó svo útsýnið
verður mjög takmarkað. Um leið og það
gerist keyrum við í frekar háan snjó eða
drift eins og það kallast víst, við það
missir bíllinn grip. Hálkan sem var fyrir
á veginum var ekki til að hjálpa og ég
missi stjórn á bílnum þegar við komum
Bílvelta á Þverárfjalli
Guðs lán að ekki varð dauðaslys
Maríanna, Hugrún og Snæbjört heimsóttu slysstaðinn daginn eftir atburðinn. Mynd: PF
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI & 455 9200
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
DELL Inspiron 5521
Intel Core i3 · 4GB vinnsluminni · 500GB harður diskur ·
15.6“ HD WLED · Windows 8
nýjar v
örur
komið
og sko
ðið
útfyrir vegriðið,“ segir Snæbjört Páls-
dóttir, tvítug stúlka frá Sauðárkróki, en
hún var ökumaður bílsins. Hún var á
leið til Reykjavíkur í æfingaferð með
meistaraflokki kvenna í fótbolta, ásamt
systur sinni Hugrúnu Pálsdóttur 16 ára
og frænku sinni, Maríönnu Margeirs-
dóttur, 17 ára. Hefði bíllinn farið eina
veltu enn eða endað á toppinum hefði
hann líklega runnið niður gilið, því það
var svo mikið harðfenni.
Nánar um málið á bls. 10. /BÞ
Semur við útgáfurisa í USA
Húnvetningurinn Ásgeir Trausti
Húnvetningurinn Ásgeir Trausti
hefur gert samning við útgáfurisann
Columbia Records. Samingurinn
hljóðar upp á þrjár plötur og tryggir
að breiðskífan In the Silence muni
koma út þann 4. mars í Bandaríkj-
unum. Útgáfan fer fram í samstarfi
við breska útgáfufyrirtækið One
Little Indian, en Ásgeir samdi við
það í fyrra.
Stundum sæta risafyrirtæki á borð
við Columbia þeirri gagnrýni að hefta
listrænt frelsi tónlistarmanna á sínum
snærum en María Rút Reynisdóttir,
umboðsmaður Ásgeirs Trauta, segir í
viðtali við RÚV að hann muni halda
sinni sér stöðu sem svokallaður ,,indie“
tónlistarmaður. Ásgeir Trausti lauk
nýverið tónleikaferð um Asíu og mun
vera hérlendis þar til hann flýgur til
Bandaríkjanna þann 8. mars. Þar mun
hann meðal annars koma fram á
tónlistarhátíðinni South By Southwest í
Texas sem hefur oft þótt vera með
puttann á púlsinum á því sem er mest
spennandi í tónlistarheiminum. /KSE