Feykir - 27.02.2014, Qupperneq 9
08/2014 Feykir 9
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson / tónlistaráhugamaður
Hefur aldrei
þolað júróvisjón
G. Þorkell Guðbrandsson
hefur lengi alið manninn á
Sauðárkróki en segist fæddur
árið 1941 í Ólafsvík, „...
sem er lítið fiskimannaþorp á
Snæfellsnesi.“ Af lítillæti segist
hann spila á hárgreiðu og þegar
hann er spurður út í helstu
tónlistarafrek svarar hann:
„Afrek?“
Uppáhalds tónlistartímabil?
-Seinni hluti átjándu aldar og fyrri hluti
þeirrar nítjándu.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana?
-Ef þið meinið pop-tónlist væri það
líklega Kaleo, en ef spurningin hefði
komið fram um mitt síðastliðið ár,
hefði það verið Contalgenið.
Hvers konar tónlist var hlustað á á
þínu heimili?
-Mest var það nú kirkjutónlist, móðir
mín var í 60 ár kirkjuorganisti og geri
aðrir betur, og hún æfði sig og kórinn
mikið heima.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú keyptir
þér?
-Fyrsta platan sem ég man eftir að
hafa eignast var með Cliff Richard
and The Shadows og annað lagið hét
Living Doll, man ekki hvað hitt hét :-)
Hvaða græjur varstu þá með?
-Einhvern plötuspilararæfil, gerðin
var Philips.
Hvað syngur þú helst í sturtunni?
-Legg það hvorki á sjálfan mig né aðra
að syngja upphátt.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn?
-Allt með Bubba Morthens.
Uppáhalds Júróvisjónlagið (erlent
eða innlent eða bæði)?
-Hef aldrei þolað júróvísíón.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð?
-Aldrei partý hjá mér.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu helst
heyra?
-Tja, ég man ekki eftir að ég hafi
vaknað öðruvísi en í rólegheitum og
yfirleitt frekar árla, en þá vil ég helst
hafa hljótt.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða
tónleika og hvern tækirðu með
þér?
-Tja, ég er ekki vanur að fara neitt
svoleiðis nema með konu minni. En
skemmtilegasti tónlistarviðburður
sem ég man eftir að hafa farið á,
var þegar við hjónin fórum í Der
Volksoper í Wien og sáum Töfra-
flautuna með úrvals flytjendum.
Væri til í eitthvað sambærilegt aftur.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera?
-Svoleiðis drauma kannast ég ekki
við.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út?
-Veit það svo sem ekki. Hinsvegar
er besta plata og nær útspiluð
úr plötusafni okkar hjóna, gömul
konsertupptaka með The Modern
Jazz Quartet frá tónleikum þeirra í
París árið 1958.
Sex vinsælustu lögin á Play-
listanum þínum? -Ég held ég verði
nú að gata á þessu.
FEYKIR fyrir 15 árum
Skemmtun í
tali og tónum
Félagmálaráð Sauðárkróks
hafði það til siðs að bjóða eldri
borgurum til nýársfagnaðar og
var þar engin breyting á eftir
sameiningu sveitarfélagana í
Skagafirði. Í janúarmánuði
1999 var haldinn nýársfagn-
aður í Bifröst. „Sem fyrr var
þar birta og ylur og allt gert til
að láta gestum líða vel.
Skemmtun bæði í tali og
tónum og glæsilegar veitingar,
kaffi, bakkelsi og brjóstbirta
eins og venjan þegar leið á
skemmtunina,“ segir í 3. tölu-
blaði Feykis 1999. Skemmt-
unin var vel sótt að vanda og
flutti Halldór Hafstað ávarp
um þá upplifun að komast í
tölu aldraðra. Jóhann Már
Jóhanns-son frá Keflavík söng
nokkur lög og loks kom
Geirmundur með nikkuna og
spilaði fyrir dansi.
Flett í gömlum Feykisblöðum
Þrjár gamlar og góðar
GAMALL FEYKIR
UMSJÓN berglind@feykir.is
FEYKIR fyrir 20 árum
Barnablót í Víðidal
Haldið var þorrablót fyrir yngri
kynslóðina í Víðidal í febrúar
1994. Sá siður hafði komist á árið
1986 og naut mikilla vinsælda en
hugmyndina átti Jónína Sigurð-
ardóttir á Kolugili. „Borinn er
fram venjulegur þorramatur og
eru börnin almennt mjög dugleg
að borða hann. Má segja að þetta
sé nokkurs konar þorrablótsþjálfun
fyrir eldri deildina, en krakkarnir
á þessu blóti eru frá 6-13 ára aldri.
Börnin sjá sjálf um skemmtiatriði
og dansmúsík er leikin af plötum
og geisladiskum,“ segir í 7. tbl.
Feykis 1994. Þar kemur fram að
um 70 börn hafi mætt á blótið.
FEYKIR fyrir 30 árum
„Gangið á
undan með góðu
fordæmi“
Krabbameinsfélag Austur-
Húnavatnssýslu varð 15 ára í
upphafi marsmánaðar 1984. Af
því tilefni vöktu 12 ára nem-
endur í Grunnskóla Blöndu-
óss, í samstarfi við Krabba-
meinsfélagið, athygli á
skaðsemi reykinga. Nemend-
urnir útbjuggu spjöld með
bænaáletrunum til þeirra sem
reyktu og gengu þögulir um
ýmsa vinnustaði á Blönduósi.
Á spjöldin var m.a. áletrað:
„Enginn verður meiri maður af
reykingum“, „Hvort elskar þú
meira barnið þitt eða síga-
rettuna?“, „Kennarar: gangið á
undan með góðu fordæmi“ og
„Það er aldrei of seint að hætta
reykingum“. Feykir 5. tbl. 1984.
Frænkurnar Bogga Munda, Bára frá Mel og Alda Ellerts voru í miklu stuði.
Fjör á þorrablóti barnanna árið 1994.
Hluti af börnunum með spjöldin. Mynd/Sigursteinn Guðmundsson.