Feykir - 28.05.2014, Blaðsíða 2
2 Feykir 20/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Við höfum val
– notum okkur það
Það hefur væntanlega ekki farið
fram hjá lesendum Feykis að
kosningar eru á næsta leyti. Í
lýðræðisþjóðfélagi eigum við
þennan mikilvæga rétt, sem
manni finnst á stundum að fólk
átti sig ekki á hversu mikilvægur
er. Árum saman börðust Íslend-
ingar fyrir sjálfstæði sínu og
stofnuðu lýðveldi sem felur í sér
þennan kosningarétt. Seinna var
barist fyrir að konur ættu líka
kosningarétt og í dag geta allir
sem náð hafa 18 ára aldri nýtt sér hann.
Hvað sem allri pólitík og pulsupartíum, kaffiboðum og
kosningarskrifstofum, blöðrum og barmmerkjum líður, vil ég
hvetja fólk til að kynna sér málefnin og kjósa það fólk, þann
lista, eða þau málefni sem hverjum og einum hugnast best.
Vonandi er öll „pabbapólitík“ liðin tíð, að minnsta kosti ætla
ég ekki að reyna að stjórna því hvað sonur minn, nýorðinn 18
ára, kýs. Hins vegar ætla ég að hvetja hann til að kynna sér
málefnin og setja x-ið á þann stað sem að hann telur réttast.
Gamalt spakmæli segir að val en ekki tilviljun ráði örlögum
mannanna. Sé eitthvað til í því er enn meiri ástæða til að nýta
sér það val sem við höfum með kosningum. Gildir þá einu
hvort kosið er milli lista eða svokallað persónukjör. Mætum á
kjörstað og setjum okkar x á kjörseðilinn!
Kristín S. Einarsdóttir,
kjósandi
„Skóinn kreppir víða í stofnuninni“
Ákvörðun tekin um að stytta lokun endurhæfingarsundlaugar HS
Til stóð að loka endurhæf-
ingarsundlaug HS frá 2. júní
til og með 17. ágúst, eins og
fram kom í frétt sem birt var á
Feyki.is í síðustu viku, en nú
hefur sú ákvörðun verið
endurskoðuð að sögn
Hafsteins Sæmundssonar
forstjóra HS. „Við höfum,
vegna óska þar um, ákveðið
að stytta þann tíma sem
lokað verður í sundlaug í
sumar og miða lokun við þann
tíma sem óhjákvæmilegur er
vegna framkvæmda.“
Endurhæfingin og sund-
laugin á Heilbrigðisstofnuninni
hafa mikið verið í umræðunni
undanfarið en að sögn Hafsteins
hefur starfsfólki verið fækkað
þar á undangengnum árum.
Skýringuna segir hann að mestu
liggja í því að þar hafi
sjúkrarýmum verið fækkað úr
15 í 8 og hjúkrunarrýmum úr 56
í 41. „Sjúkraþjálfarar okkar og
aðrir starfsmenn endurhæfingar
hafa fyrst og fremst sinnt íbúum
á hjúkrunarheimili og sjúkl-
ingum í sjúkrarýmum. Það er
því ekki óeðlilegt að umsvif í
endurhæfingu hafi minnkað.
Samt sem áður vil ég fullyrða
það að HS veitir betri þjónustu á
þessu sviði en gengur og gerist
annars staðar,“ segir Hafsteinn í
samtali við Feyki.
Hann segir víða hafa verið
þrengt að í rekstri stofnunarinnar
á undangengnum sex árum og
fólki fækkað umtalsvert á þeim
tíma. „Það er víða sem við
þyrftum að geta gert betur í
mönnun en nú er en því miður
leyfir fjárhagurinn það ekki.
Skóinn kreppir víða í stofn-
uninni en það er ekki fyrst og
fremst í starfsemi endurhæf-
ingar sem það er og því er það
undarlegt að umræðan snúist
fyrst og fremst um þennan þátt
starfseminnar sem er lítið brot af
starfi okkar í heild. Hjá okkur
starfa nú einungis þrír fastráðnir
læknar en þeir hefðu þurft að
vera fimm og ekki hefur borist
nein umsókn í lausar stöður
lækna þrátt fyrir auglýsingar þar
um. Við erum knöpp í mönnun
á hjúkrunar- og sjúkradeildum
og má ekkert út af bera þar. Við
hefðum gjarnan viljað veita betri
þjónustu á sviði sálgæslu og
geðlækninga. Ég get talið fleira
til sem hefði verið æskilegt að
þjónusta íbúa Skagafjarðar um
en við getum ekki, eins og er,
boðið upp á.“
Hafsteinn segir vonir standa
til að nú verði Heilbrigðis-
stofnuninni úthlutað nokkrum
hjúkrunarrýmum í viðbót og
væntir hann þess að það muni
bæta afkomu stofnunarinnar í
heild þótt það dugi ekki án
frekari aðhaldsaðgerða til að
koma rekstrinum í jafnvægi.
Áfram verður haldið úti starf-
semi í Endurhæfingarhúsi, bæði
í sundlaug og æfingasal, og
segist hann telja hana þokkalega
mannaða þrátt fyrir niðurskurð.
/BÞ
Flug frá Akureyri til
Danmerkur í sumar
Sigríður og Svanhildur í stjórn MN
Aðalfundur Markaðsstofu
Norðurlands var haldinn í
vikunni og voru nýir
stjórnarmenn kosnir af
samstarfsfyrirtækjum.
Í stjórnina voru kosnar til
tveggja ára Birna Lind
Björnsdóttir, Norðursiglingu og
Sigríður Káradóttir, Gestastofu
Sútarans. Varamenn til eins árs
voru kjörnir Tómas Árdal,
Arctic Hotels og Karl Jónsson,
Lamb-Inn.
Til áframhaldandi stjórnar-
setu til eins árs voru kosin
Svanhildur Pálsdóttir, Hótel
Varmahlíð, sem einnig var valin
stjórnarformaður, Ólafur Aðal-
geirsson, Skjaldarvík og Gunnar
Jóhannesson, Fjallasýn. Frá-
farandi stjórnarmenn eru
Steingrímur Birgisson, Heldi og
Katrín María Andrésdóttir,
SSNV, ásamt Bergþóri Erlings-
syni, SBA-Norðurleið, og Rósu
Maríu Vésteinsdóttur, Arctic
Hotels sem voru í varastjórn.
Markaðsstofan sendir þeim
kærar þakkir fyrir samstarfið á
liðnum árum.
Málþing um
flugsamgöngur
Eftir aðalfundinn var haldið
Stefnt að eflingu starfs-
stöðvar á Sauðárkróki
Skipulagsbreytingar hjá Íbúðalánasjóði
Eins og fram kom í aðsendri
grein á Feyki.is í fyrradag,
eftir þá Stefán Vagn
Stefánsson, formann
byggðaráðs Svf.
Skagafjarðar, og Matthías
Imsland, aðstoðarmann
velferðarráðherra, hefur
verkefnastjórn um
framtíðarskipan húsnæðis-
mála skilað niðurstöðum
vinnu sinnar. Vonast
greinarhöfundar til að hægt
verði að efla starfsemi
sjóðsins á Sauðárkróki og
fjölga þar störfum.
Meðal tillagna verkefna-
stjórnarinnar er að Íbúða-
lánasjóði verði breytt
varanlega og verkefnum hans
skipt upp. Í grein Stefáns og
Matthíasar er sérstaklega
fjallað um starfsstöð sjóðsins á
Sauðárkróki og að sú mikla
reynsla og þekking sem þar er
fyrir hendi sé grunnur sem
byggja megi á til framtíðar.
Í samtali við Feyki rétt fyrir
prentun blaðsins sagði
Matthías að í framhaldi af
vinnu starfshópsins yrði nú
farið í þá vinnu að ákveða
hvernig framtíð sjóðsins yrði
háttað. Matthías vitnaði í
niðurstöður verkefnastjórnar-
innar og stjórnarsáttmála
ríkisstjórnarinnar, þar sem
kveðið er á um að vernda skuli
og efla störf á landsbyggðinni.
„Það sem hefur líka komið
fram er að Norðvesturkjör-
dæmi, og alveg sérstaklega
Sauðárkrókur, missti á síðasta
kjörtímabili mikið af opin-
berum störfum sem fyrri
ríkisstjórn flutti frá Skagafirði,
sagði Matthías. „Þarna erum
við að tala um að þurfi að snúa
þessari þróun við og frekar að
byggja starfsstöðina upp og
efla hana og mögulega fjölga
störfum þarna,“ sagði Matt-
hías og bætti við mikilvægt
væri að áfram yrði gott
samstarf milli stjórnvalda og
sveitarstjórnar um málið. „Við
erum að horfa til þess og
vonast til að þarna verði hægt
að fjölga störfum,“ sagði hann
að lokum. /KSE
málþing í samstarfi við at-
vinnuþróunarfélögin á Norður-
og Austurlandi um flug-
samgöngur og uppbyggingu
millilandaflugs á Íslandi. Um 60
manns sóttu fundinn þar sem
farið var yfir upp-lýsingar um
millilanda- og innanlandsflug,
flugvelli, ferða-þjónustu og
atvinnulíf í víðu samhengi.
Góðar umræður voru á
fundinum og ánægjulegt að sjá
áhugann á málefninu, að sögn
Sigríðar Káradóttur, en Feykir
hafði samband við hana að
fundinum loknum.
Á fundinum kynnti Sigurður
Pétur Hjaltason, talsmaður
Greenland Express, áform
flugfélagsins um flug frá Ála-
borg og Kaupmannahöfn til
Akureyrar nú í sumar og fram á
vetur. Stefnt er að því að fljúga á
miðvikudögum og sunnu-
dögum frá 11. júní til 25.
nóvember. Bókanir verði
aðgengilegar á næstu dögum og
er flogið með 100 sæta vélum.
Viðræður standa nú yfir um
aðkomu Air 66N að verkefninu
en aðstandendur þess bjóða
Greenland Express velkomna
norður og styðja við verkefnið
svo það geti orðið að veruleika
og nái góðu flugi til lengri tíma.
/KSE