Feykir - 28.05.2014, Blaðsíða 15
20/2014 Feykir 15
Aðferð:
Lambahryggur er úrbeinaður og
kjötið lagt á borð með fitulagið
niður. Fyllingin getur verið mjög
mismunandi eftir smekk hvers og
eins en við kjósum að nota bláber,
hvítlauk, steinselju, salt, pipar og
svo beikonsneiðar til að hindra að
fyllingin leki út þegar búið er að
vefja kjötinu saman.
Næsta skref er svo að rúlla
kjötinu utan um fyllinguna og
krydda duglega með steikar-
kryddinu frá Prima. Rúllan er
elduð í ofni við 180°C í steikarfati
eða eldföstu móti og soðið af
steikinni notað í sósugerðina með
Maizena sósuþykkingarefni og
rjóma.
Kartöflugratín er ómissandi
með hryggnum en í það fara
niðurskornar og flysjaðar kartöfl-
ur penslaðar með hvítlauksolíu,
dass af rjóma og mjólk og smá
sletta af smur- eða kryddost og
svo er stráð Mozzarella yfir
herlegheitin áður en þessu er hent
inn í ofninn með steikinni á
180°C.
EFTIRRÉTTUR
Banana-ís
3 eggjarauður
1 egg
70 g sykur
5 dl rjómi
1-2 pakkar súkkulaðihnappar
½ tsk bananadropar
1 banani
Aðferð:
Þeytið vel eggjarauður, egg og
dropa. Saxið niður súkkulaði og
stappið bananann. Takið þeytta
rjómann og blandið saman við
þeytinguna og síðan banana og
saxað súkkulaðið. Hrærið vel
saman, setjið í skál og frystið yfir
nótt. Berið fram með súkku-
laðisósu.
Verði ykkur að góðu!
Jón Örn og Þórdís Erla matreiða
Þrírétta matseðill að
hætti sjómannsins
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar getur látið sig
dreyma um Heimsmeistarakeppninna í knattspyrnu í Brasilíu.
Spakmæli vikunnar
Lausnin að velgengni er ekki ljós en lykillinn að mistökum
er að reyn að þóknast öllum.
Sudoku
Vissirðu að...
ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT
... 23 prósent bilana í ljósritunarvélum má skrifa á fólk sem hefur
dundað sér við að ljósrita rassinn sinn?
... í hverjum Seinfeld-þætti mátti finna Superman einhvers staðar?
... í hvert sinn sem þú notar heyrnartól í klukkutíma eykst
bakteríugróður eyrna þinna sjöhundraðfalt?
FORRÉTTUR
Humar í ostasósu
1 stk piparostur
1 kg humarhalar (helst utan
kvóta)
1 stk hvítlaukur
smjör
samlokubrauð
Aðferð:
Piparostur skorinn í litla búta og
bræddur við nokkuð vægan hita í
potti. Humarinn er tekinn úr
skelinni og hreinsaður vel. Því
næst er humarinn steiktur á
pönnu upp úr hvítlauk og smjöri.
Humarinn fer svo út í ostasósuna
og er borinn á borð með ristuðu
brauði.
AÐALRÉTTUR
Fylltur
lambahryggur
1 lambahryggur frá kjötvinnslu
SAH afurða
Fylling:
1 dós af bláberjum
1 hvítlaukur
steinselja
1 bréf beikon
salt og pipar
Meðlæti:
1 kg kartöflur
hvítlauksolía
rjómi
mjólk
Smur- og/eða kryddostur
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN berglind@feykir.is
FEYKIFÍN AFÞREYING kristin@feykir.is
Um lífið og dauðann
Hjónin sátu og ræddu um lífið og dauðann. Þar kom að í samtalinu að
eiginmaðurinn sagði að hann vildi ekki að sér væri haldið lifandi með
tækjum og fljótandi næringu. Eiginkonan brást skjótt við, slökkti á
sjónvarpinu og hellti niður bjórnum hans.
Krossgáta
Sjómaðurinn Jón Örn Stefáns-
son og Þórdís Erla Björns-
dóttir stuðningsfulltrúi frá
Blönduósi eru matgæðingar
vikunnar. Þau ætla að bjóða
lesendum Feykis upp á girni-
lega þrírétta máltíð. Í forrétt
er humar í ostasósu, fylltan
lambahrygg í aðalrétt og
Banana-ís í eftirrétt.
„Við Þórdís Erla erum
semsagt búsett á Blönduósi og
eigum þrjá drengi. Ég er
starfandi sjómaður á Arnari
HU-1, sem gerður er út frá
Skagaströnd af FISK Seafood á
Sauðárkrók, auk þess sem ég
hef lagt stund á sjávar-
útvegsfræði við Háskólann á
Akureyri samhliða vinnu.
Þórdís er starfandi stuðnings-
fulltrúi við Blönduskóla.“
„Við skorum á nágranna
okkar á Sunnubraut 3 á Blöndu-
ósi, píparann og frambjóð-
andann Guðmund Hauk og
leikskólakennarann Kristínu
Ósk.“
Feykir spyr...
[SPURTÁ KRÓKNUM]
Þekkir þú
einhvern sem
er sjómaður?
ARDÍS HEBA
SKARPHÉÐINSDÓTTIR
-Nei
SAMÚEL INGI JÓNSSON
-Nei
ÓLÖF BÁRA
BIRGISDÓTTIR
-Já, frænda minn
HÁKON SNORRI
RÚNARSSON
-Nei
SIGURJÓN HEIÐAR
SIGURBJÖRNSSON
-Já, pabba besta vinar míns
Jón Örn og
Þórdís Erla.