Feykir - 28.05.2014, Blaðsíða 13
20/2014 Feykir 13
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014x 14
Fyrir hverju ætlar list-
inn að beita sér á næsta
kjörtímabili ef hann
hlýtur kosningu ?
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að
vinna hörðum höndum að því
að íbúatala Sveitarfélags Skaga-
fjarðar fari sem allra fyrst í
4000 +
Á komandi kjörtímabili
ætlum við að setja kraft í öflun
nýrra atvinnutækifæra og
fjölgun starfa í fyrirtækjum og
fá fleiri opinber störf.
Við ætlum að standa vörð
um Heilbrigðisstofnunina og
tryggja núverandi starfsemi.
Við viljum:
- styðja framgang stórverkefna
s.s. koltrefjaverksmiðju
- styðja framgang ferðaþjón-
ustu í Skagafirði með áherslu
á atvinnulíf, menningu og
sögu
- efla hestamennsku sem at-
vinnugrein í Skagafirði
- leita leiða til að fá Alex-
andersflugvöll sem alþjóð-
legan varaflugvöll
- vinna að uppbyggingu sund-
laugarinnar á Sauðárkróki og
annarra íþróttamannvirkja
- nýta þá innviði sem við
höfum og hvetja til þátttöku í
nýsköpunar- og frumkvöðla-
starfi
- finna viðunandi lausn í sam-
ráði við íbúa, á húsnæðis-
vanda leikskólanna Birki-
lundar og Tröllaborgar ásamt
endurbótum á húsnæði
Varmahlíðarskóla og Grunn-
skólans austan Vatna
- endurskoða sumarlokun
leikskólanna
- bæta ásýnd þéttbýlisstaðanna
og fegra þá og gera átak á
gámasvæðum og sorphirðu í
dreifbýlinu
- halda í sögu gamla bæjarins á
Sauðárkróki og gera skemmti-
legan miðbæ
- gera úrbætur á aðgengis-
málum hjá stofnunum
sveitarfélagsins
- háhraðatengja allan Skaga-
fjörð svo allir geti átt sömu
möguleika til fyrirtækja-
reksturs, náms og afþreyingar
- halda áfram að hitaveituvæða
Skagafjörð og athuga með
betri þjónustu við íbúa í
dreifbýli með sjónvarpsút-
sendingar
Hvaða kostum telur þú
að sveitarfélag þitt búi
yfir og hvaða tækifæri
mætti nýta betur ?
Í Skagafirði er þrátt fyrir mikinn
niðurskurð til heilbrigðismála
mjög góð þjónusta starfsfólks
heilbrigðisstofnunarinnar í
þeim störfum sem þar eru.
Í Skagafirði eru góðir skólar og
mikið lagt uppúr metnaðarfullu
starfi og að börnunum líði vel.
Í Skagafirði er fjölbreytt íþrótta-
líf og Skagafjörður er talinn
einn af bestu kostum til að
halda landsmót, hvort heldur
sem er unglingalandsmót,
landsmót UMFÍ eða hesta-
manna .
Í Skagafirði eru lág leikskóla-
og frístundagjöld, öruggt
umhverfi, góð íþróttahús,
golfvöllur, skíðasvæði og
blómlegt menningarlíf.
Á sumum stöðum í Sveitar-
félaginu njóta íbúar þeirra
forréttinda að hafa lægsta
húshitunarkostnað á landinu,
unnið er að því að hitaveituvæða
allan Skagafjörð.
Tækifærin eru fjölmörg, í
Skagafirði er mikil náttúru-
fegurð, kynna þarf betur það
sem áhugavert er að sjá og gera
í Skagafirði.
Í Verinu er að byggjast upp
mikil þekking á sviði líftækni
og matvælafræði. Líklega er
hvergi framleitt eins mikið af
mat á litlu svæði eins og í
Skagafirði og í nútíma mat-
vælaframleiðslu og -vinnslu er
mikið notast við líftækni.
Sigríður Svavarsdóttir
oddviti Sjálfstæðisflokksins
í Skagafirði
Fyrir hverju ætlar
listinn að beita sér á
næsta kjörtímabili ef
hann hlýtur kosningu ?
Atvinnumálin eru eitt
mikilvægasta verkefnið sem við
stöndum frammi fyrir í
Húnaþingi vestra. N - listinn
ætlar að leggja áherslu á að
skapa umhverfi sem styður við
fjölbreytta atvinnustarfsemi.
Við ætlum meðal annars að
halda áfram að kynna
sveitarfélagið sem góðan kost
fyrir atvinnustarfsemi og ráða
atvinnufulltrúa tímabundið til
að vinna að því að fjölga hér
atvinnutækifærum. Jafnframt
verður stofnaður starfshópur
um atvinnumál skipaður fólki
úr atvinnulífinu sem vinnur að
atvinnumálum ásamt atvinnu-
fulltrúanum. Við ætlum að
standa vörð um nýstofnaðan
atvinnu- og nýsköpunarsjóð,
frumkvöðlum og fyrirtækjum í
sveitarfélaginu til stuðnings.
Við viljum viðhalda háu
þjónustustigi sveitarfélagsins og
áfram byggja upp fjölskyldu-
vænt samfélag sem laðar til sín
fjölskyldufólk. Meðal annars
viljum við leita leiða í samvinnu
við forsvarsmenn leikskólans
að taka inn á leikskólann börn
frá 9 mánaða aldri. Einnig
leggjum við þunga áherslu á
dreifnámið sem valkost fyrir
ungmenni sem eru að hefja
framhaldsskólagöngu sína, auk
þess sem við viljum víkka út
námsframboð í dreifnáminu og
skoða möguleika á því að bjóða
upp á 3ja ára nám til
stúdentsprófs fyrir þá sem það
kjósa.
Til að framangreint geti
gengið eftir þurfum við að
leggja áherslu á áframhaldandi
ábyrga fjármálastjórn til að
viðhalda þeim góða árangri
sem náðst hefur í sveitarfélaginu
á undanförnum árum.
Sá góði árangur hefur m.a.
skapað svigrúm til fram-
kvæmda og við ætlum sannar-
lega að framkvæma á kjör-
tímabilinu. Lagning hitaveitu til
sveita þar sem það er hagkvæmt
ber hæst og um leið lagning
ljósleiðara. Þær framkvæmdir
auka atvinnumöguleika og
bæta búsetuskilyrði til sveita.
Við ætlum einnig á kjörtíma-
bilinu að byggja við Íþrótta-
miðstöðina á Hvammstanga
rými fyrir þrektækjasal og
áhaldageymslu. Um leið skapast
þá aukið rými fyrir sal-
ernisaðstöðu fyrir fatlaða sem
er löngu tímabært að setja upp
auk þess sem hægt verður að
bæta við búningsaðstöðu í takt
við kröfur fyrir íþróttakeppnir
sem núverandi búningsaðstaða
uppfyllir ekki.
Hvaða kostum telur þú
að sveitarfélag þitt búi
yfir og hvaða tækifæri
mætti nýta betur ?
Húnaþing vestra býr yfir
fjölmörgum kostum. Fyrst má
nefna fjárhagslega stöðu
sveitarfélagsins en í þeim
málum hefur gríðarlega margt
áunnist á yfirstandandi kjör-
tímabili og stendur rekstur
sveitarfélagsins vel. Það veitir
svigrúm til framkvæmda og að
unnt sé að stilla álögum á
íbúana í hóf. Þjónustustig
sveitarfélagsins er hátt og góð
staða þess gerir okkur kleift að
viðhalda því og jafnvel bæta í.
Hátt þjónustustig er mikilvægt
þegar laða á hingað ný fyrirtæki
og atvinnustarfsemi og fjölga
íbúum. Staðsetning sveitar-
félagsins er afar góð og hentar
ýmiskonar atvinnustarfsemi.
Síðast en ekki síst býr í
sveitarfélaginu afbragðs gott
fólk sem N - listinn er tilbúinn
til að leggja sig fram fyrir á
næsta kjörtímabili, okkur öllum
til hagsbóta.
D-LISTI Sjálfstæðisflokksins
Sveitarstjórnarkosningar 2014 > SVF. SKAGAFJÖRÐUR
N-LISTI Nýtt afl í Húnaþingi vestra
Sveitarstjórnarkosningar 2014 > HÚNAÞING VESTRA
Feyk
ir
spyr
!
x 14