Feykir - 10.07.2014, Blaðsíða 1
á
BLS. 6-7
BLS. 8
Guðmundur og Kristín eru
matgæðingar vikunnar
Grilluð smálúða
og ávaxtaspjót
BLS. 11
Húsdýragarður og hestaleiga
á Stóru-Ásgeirsá í Víðidal
í opnuumfjöllun Feykis
Dýrin bræða
fullorðna jafnt
sem börn
Landgræðsluskóli Háskóla
Sameinuðu þjóðanna
heimsótti Skagafjörð
Margt áhugavert
að sjá og skoða
26
TBL
10. júlí 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Fellihýsi splundraðist
Varhugavert ferðaveður víða um land
Þegar blaðamaður Feykis átti leið yfir
Húseyjarkvísl við Varmahlíð á sjöunda
tímanum á þriðjudaginn hafði þetta
fellihýsi lent utan vegar skammt austan
við bæinn Lauftún.
Af myndinni að sjá hefur fellihýsið fokið
upp og er talsvert skemmt og einnig virtist
sem önnur hlið bílsins sem dró það væri
talsvert tjónuð, þó hann sjáist ekki á
myndinni. Að sögn lögreglunnar á Sauðár-
króki urðu engin slys á fólki þegar þetta umferðaróhapp varð. /KSE
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Ferðast um heiminn á
88 ára gömlum Rolls Royce
54 lönd – 80.000 km
Eftir að hafa ferðast frá Beijing til
Parísar árið 1997, frá London til Cape
Town árið 2001 og 25.000 kílómetra á
Inca Trail í gegnum Suður-Ameríku
árið 2003, ákváðu hollensku hjónin
Anton Aan De Stegge og Willemien
Aan De Stegge að setja fyrir sig að
keyra 80.000 kílómetra í kringum
jörðina á bílnum, sem þá var 80 ára
gamall.
Í dag er bíllinn 88 ára og eru þau hjónin
búin að setja mynd af 54 löndum sem þau
ætla að heimsækja á bílinn. Þau eru m.a.
búin að stoppa í Nýja Sjálandi, Ástralíu,
Indónesíu, Japan, Austur-Evrópu, Fær-
eyjum og eru nú stödd Íslandi.
Hjónin sögðu Ísland vera mjög fallegt
land þó svo veðrið væri ekki alltaf mjög
skemmtilegt. Íslendingarnir sem þau
höfðu hitt á ferðalaginu væru allir mjög
Anton og Willemien ásamt fornbílnum stödd á Sævarstígnum á Sauðárkróki. Mynd: GSG
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
www.riverrafting.is - s: 453 8245
Paintball
River rafting
Wipeout
Tjaldstæði
Heitir pottar
vingjarnlegir en það sem hafi komið
þeim mest á óvart var hversu góður
matur væri.
Anton og Willemien hafa verið á
Íslandi í rúmar þrjár vikur. Hugmyndin
var að keyra þvert yfir landið en vegna
snjóþunga enduðu þau með að keyra
hringinn í kringum landið. Þau ætla að
dvelja á Norðurlandi í tæpa viku í viðbót
og enda ferðina á Akureyri. /GSG