Feykir - 10.07.2014, Blaðsíða 10
10 Feykir 26/2014
Frændur fæðast með þriggja tíma millibili
Börn frá Miðhúsum í Vatnsdal
Þann 17. júní síðastliðinn átti
sér stað sá skemmtilegi
atburður að frændur
fæddust með þriggja
klukkustunda millibili, en
báðir eiga þeir heima í
Húnavatnshreppi og eru
ættaðir frá Miðhúsum.
Eiður Magnússon bóndi í
Miðhúsum og Berglind Hlín
Baldursdóttir kennari í Húna-
vallaskóla eignuðust drenginn
Arnór Loga, en hann fæddist
klukkan 17:37. Þremur klukku-
stundum síðar, kl. 20:36, fædd-
ist frændi hans, sonur Garðars
Smára Óskarssonar og Lilju
Bjarneyjar Valdimarsdóttur. En
móðir Garðars Smára, Fanney
Magnúsdóttir, og Eiður eru
systkini.
Berglind Hlín segir allt hafa
gengið eins og í sögu með
nýjasta fjölskyldumeðliminn,
en hún átti Arnór Loga á
sjúkrahúsinu á Akureyri. Lilja
Bjarney átti son sinn í Reykjavík
en Berglind segir þó hálfgert
ættarmót hafa verið í fyrstu
mæðraskoðuninni á Blönduósi
í desember.
Börnum ættuðum frá
Miðhúsum í Húnavatnshreppi
fjölgaði ört í júní en á innan við
tólf klukkustundum fæddust
þrjú börn og fjögur börn á einni
viku.
FRÁSÖGN
Guðrún Sif Gísladóttir
Hjólastóllinn
skemmdist við byltuna
Sveitarstjóra afhent áskorun um bætt aðgengi í Bifröst
Aðalheiður Bára Steinsdóttir
afhenti sveitarstjóra Svf.
Skagafjarðar í ráðhúsinu í
síðustu viku skriflega
ábendingu um þá brýnu
þörf að laga aðgengi í
Félagsheimilinu Bifröst á
Sauðárkróki. „Þar fara fram
menningarviðburðir sem
erfitt er að sækja þar sem ég
nota hjólastól, svo sem bíó og
leikhús,“ segir Aðalheiður
Bára í samtali við Feyki.
Aðalheiður Bára segist hafa
ákveðið að koma áskorun til
sveitarstjórnar eftir að hún tók
þátt í leiklistarnámskeiði sem
fór fram í félagsheimilinu
2012-2013 og hún var þátt-
takandi í. „Þar lékum við
Mjallhvít og dvergana sjö í
félagsheimilinu Bifröst. Þegar
ég var að fara niður stigann við
sviðið datt ég niður hann. Ég
tók eftir því að stóllinn minn
hafði skemmst eftir þessa byltu
en þetta er hættulegt bæði fyrir
mig og starfsfólkið mitt. Því
ákvað ég að láta í mér heyra og
fékk starfskonu mína til að
skrifa það sem ég vildi segja á
blað. Ég pikkaði þetta svo inn í
tölvu sjálf og afhenti sveitar-
stjóranum Ástu Pálmadóttur.“
Aðalheiður Bára segir Ástu
sveitarstjóra hafa tekið vel á
móti henni og aðstoðarkonu
hennar, Oddnýju Rögnu
Pálmadóttur. „Hún sagði að
þetta væri gott innslag í um-
ræðuna um aðgengi í Skaga-
firði sem hefur verið uppi nú á
dögum. Hún þyrfti að setja
þetta fyrir nefnd og þetta yrði
skoðað strax í haust og þá
ákveðið hvað yrði gert.
Nokkrar uppástungur hafa
komið um bætt aðgengi i
Bifröst nú þegar.“
Tillögur Aðalheiðar Báru
um bætt aðgengi eru eftir-
farandi:
• Kaupa búnað sem „prílar“
upp og niður stiga, eins og
til er á héraðsbókasafninu.
• Setja ramp niður að
inngangi og stigalyftu innan
húss svo hjólastólar komist
upp í salinn.
• Setja ramp niður í „Græna
sal“ og lyftu þaðan upp á
bíósalinn.
• Setja ramp utan á austur
hlið hússins, þar sem
útgangur úr sal er staðsettur.
Loks benti Aðalheiður Bára
sveitarstjóra á rétt hennar
samkvæmt lögum og reglu-
gerðum með því að afhenda
henni tvær útprentaðar blað-
síður úr samningi Sameinuðu
þjóðanna, sem Ísland er aðili
að, um réttindi fatlaðs fólks.
Þær blaðsíður voru forsíðan og
24. blaðsíða samningsins sem
lýsa best aðgengismálum
fatlaðs fólks að menningar-
legum viðburðum. Í kaflanum
um þátttöku í menningarlífi,
tómstunda-, frístunda- og
íþróttastarfi segir að:
1. Aðildarríkin viðurkenna rétt
fatlaðs fólks til þess að taka þátt
í menningarlífi til jafns við aðra
og skulu gera allar viðeigandi
ráðstafanir til þess að tryggja að
fatlað fólk: [...]
c) njóti aðgengis að stöðum þar
sem menningarefni eða þjón-
usta á sviði menningar fer fram,
t.d. leikhúsum, söfnum, kvik-
myndahúsum, bókasöfn-um og
ferðamannastöðum [...] (Sam-
einuðu þjóðirnar. 2007. Sótt af
vef Innanríkisráðuneytisins).
„Hér sjáum við að hér hefur
verið pottur brotinn þar sem
aðgengið er ekki nægilega
gott,“ segir Aðalheiður Bára.
Fengið viðbrögð frá fólki
á förnum vegi
Greint var frá áskorun Aðal-
heiðar Báru til sveitarstjórnar á
Feyki.is í síðustu viku. En var
hún lengi búin að velta fyrir sér
hvernig best væri að hátta
aðgengismálum í Bifröst?
-„Nei, ekkert sérstaklega nema
Arnór Logi, fæddur 17. júní kl. 17:37. Sonur Lilju og Garðars, fæddur 17. júní kl. 20:36.
það að ég vissi að aðgengið
væri slæmt. Mér brá svo eftir
byltuna en þá fór boltinn að
rúlla.“ Aðalheiður Bára segir
að hún myndi vilja fara oftar í
Bifröst ef aðgengi þar væri
betra, sérstaklega ef þar væru
leikrit til sýningar sem hún
hefði áhuga á. Eftir birtingu
fréttarinnar hafa vinir og
ættingjar haft samband og
hvatt hana áfram með mál-
staðinn. „Fólk hefur hitt mig á
förnum vegi og sagt hvað þetta
var gott hjá mér meðal annars
Þuríður [Þuríður Harpa Sig-
urðardóttir formaður Sjálfs-
bjargar í Skagafirði innsk.
blm.]. Við ræddum hvað þetta
umræðuefni væri þarft alveg
eins og umræðan um Iðjuna,
aðgengismál í bókasafninu og
víðar. Starfsfólkið mitt hrósaði
mér og mér skilst að þetta
gangi um facebook,“ segir
Aðalheiður Bára í lokin. /BÞ
Aðalheiður Bára Steinsdóttir afhendir Ástu B. Pálmadóttur sveitarstjóra Svf. Skagafjarðar
skriflega ábendingu um þá brýnu þörf að laga aðgengi í Félagsheimilinu Bifröst á
Sauðárkróki. Ljósm./Oddný Ragna Pálmadóttir.