Feykir - 10.07.2014, Blaðsíða 2
2 Feykir 26/2014
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is Guðrún Sif Gísladóttir – gudrun@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Á ferð og flugi
„Landslag væri lítils virði ef það héti ekki neitt,“ sagði skáldið
og sjálf gæti ég ekki verið meira sammála. Allt frá unga aldri
hef ég verið haldinn óstjórnlegri forvitni um þau svæði sem ég
hef ferðast um og vil vita sem
mest um það sem fyrir augu ber,
hvort sem ferðast er á tveimur
jafnfljótum, hesti eða í bifreið.
Vegahandbókin var jafnsjálfsögð
í farangurinn og nestið og tjaldið.
Mér skilst reyndar á þeim sem
eru betri heimildarmenn um
barnæsku mína en ég sjálf að ég
hafi verið óhemju heimakært
barn og hvenær ferðaþráin kom
til sögunnar geri ég mér ekki
grein fyrir. Alla vega er óttalegt flökkueðli í mér í seinni tíð og
ég fæ seint nóg af því að þeysast um landið eða fljúga á vit
erlendra ævintýra og skoða nýjar slóðir.
Undanfarið hefur mér gefist tækifæri til að ferðast annars
vegar um Noreg í tvær vikur og hins vegar um austanverðan
Skagafjörð í tvo daga. Hvort tveggja ánægjuleg upplifun og
alltaf eitthvað nýtt að sjá, hvort sem staðurinn er heimsóttur í
fyrsta sinn eða maður telur sig kunnugan honum.
Noregur er óhemju fallegt land og í fylgd systkina minna
sem búa þar ytra fékk ég að skoða þeirra nýju heimaslóðir og
marga þekkta, sem og minna þekkta áningarstaði. Á nútíma-
máli mætti kannski segja að Noregur væri ein alls herjar
krúttsprengja, þar er endalaust ekið um krúttleg þorp og falleg
bæjarstæði, fallega firði eða vinalega víkur. Og nú get ég séð
fyrir mér staðina sem þau nefna í næstu símtölum því ég er
sjálf búin að heimsækja þá.
Svipað og Páll Sigurðsson, leiðsögumaður í Árbókarferð FÍ
um Skagafjörð og árbókarhöfundur, lýsir upplifun sinni þegar
hann fór að rita á bók lýsingar á sínum æskuslóðum. Fjöllin,
dalirnir, hvammarnir og hæðirnar, sem hann ungur gekk um,
birtust honum lifandi fyrir hugskotssjónum og lýsingarnar
urðu auðskrifaðar.
Ég vil ráðleggja öllum sem eiga kost á og hafa ánægju af því
að ferðast að gefa gaum að umhverfinu. Gefa sér tíma til að
fara út úr bílnum eða stíga af gæðingnum eða vélfáknum og
ganga jafnvel spölkorn ef heilsan leyfir. Hver einn staður á sína
sögu og það er gaman að tengja frásagnir og fróðleik, kveðskap
og karaktera við þá staði sem maður er staddur á hverju sinni.
Það þarf heldur ekki alltaf að leita langt yfir skammt. Sjálf
eyddi ég tveimur dögum í upphafi þessarar vinnuviku í að
skoða austanverðan Skagafjörð, frá Kolkuósi að Fremri-
Kotum í Norðurárdal og Gilsbakka á Kjálka. Þrátt fyrir að hafa
lesið talsvert og ferðast áður um svæðið var margt nýtt sem
fyrir augu bar. Þó ekki væri annað en veðrabrigðin þá er
tilbreyting í því að skoða sig um í nánasta umhverfi!
Eigið ánægjulegt ferðasumar.
Kristín S. Einarsdóttir
Viðamesta framkvæmdin til fjölda ára
Ný stofnlögn lögð á Sauðárkróki
Ný stofnlögn var lögð frá
dælustöð á Borgarmýrum að
Sauðárkróksbraut á
Sauðárkróki dagana 13. og
14. júní sl. Að sögn Indriða
Þórs Einarssonar, sviðsstjóra
umhverfis- og tæknisviðs Svf.
Skagafjarðar, var um að ræða
viðamestu framkvæmd í
hitaveitu á Sauðárkróki til
fjölda ára. Hin nýja stofnlögn
flytur um 13% meira magn en
gamla lögnin og er þar að
auki einangruð ólíkt gömlu
lögninni.
Indriði segir framkvæmdina
við tengingu lagnarinnar hafa
gengið mjög vel en lokað var
fyrir vatnið samkvæmt áætlun,
kl. 22 föstudagskvöldið 13. júní,
og byrjað að hleypa aftur á nýja
lögn um kl. 09 morguninn eftir.
Vatn komst hinsvegar ekki á
allan bæinn fyrr en mun seinna
vegna mikils lofts í stofnlögnum
sem vill verða þegar svona
stendur á.
„Þegar heita vatnið er tekið af
lögnum í þetta langan tíma er
það óhjákvæmilegt að bilanir
munu koma upp. Vatnið kólnar
í lögnunum og hitnar svo aftur
þegar hleypt er á, þetta veldur
þenslu á lögnum og í sumum
tilfellum þola gamlar lagnir illa
þessa þenslu og þá koma fram
bilanir eins og gerðist í kjölfarið
á þessari lokun. Segja má að
veiku punktarnir í kerfinu komi
fram við framkvæmd sem þessa.
Við gerðum ráð fyrir því að
einhverjar bilanir myndu koma
fram en þær voru þó heldur
fleiri en við gerðum ráð fyrir,“
útskýrði Indriði.
Hann segir engar álíka
framkvæmdir í burðarliðnum
eins og er enda er hér um að
ræða viðamestu framkvæmd í
hitaveitu á Sauðárkróki til fjölda
ára.
„Nýja stofnlögnin flytur um
13% meira magn en gamla
lögnin og er þar að auki
einangruð ólíkt gömlu lögninni.
Það er því möguleiki að íbúar
neðri bæjarins á Sauðárkróki
finni fyrir örlítilli breytingu á
þrýstingi og hitastigi en það á þó
aðeins við þá allra næmustu,“
segir hann að lokum. /BÞ
Fjölbreytt dagskrá á Listaflóði á vígaslóð
Leikir, lifandi tónlist, handverk og hugverk
Menningarhátíðin Listaflóð á vígaslóð verður
haldin dagana 11.-12. júlí. Kvöldvaka verður
í Kakalaskála föstudagskvöldið 11. júlí kl.
20:30. Þar verður fjölbreytt dagskrá.
Þingeyskir skemmtikraftar mæta á svæðið
en það eru þeir Hörður Benonýsson, Sigurður
Illugason og Pétur Ingólfsson sem skipa tríó
er kallar sig Hárbandið.
Árni Geir Sigurbjörnsson tenór tekur lagið
og Karlakórinn Brandur Kolbeinsson stígur á
stokk. Skagamenn eiga síðan sína fulltrúa en
BAK tríóið sem er skipað Sveini Arnari, Baldri
Ketilssyni gítarleikara og Kristínu Sigurjóns-
dóttur fiðluleikara flytja alþekkt dægurlög og
þjóðlög frá ýmsum tímum í nýstárlegum
útsetningum. Pétur Ingólfsson úr Hárbandinu
gerist þá liðhlaupi og spilar með BAK tríóinu á
bassa.
Laugardaginn 12. júlí verður síðan mikið
um dýrðir. Hádegistónleikar í Miklabæjarkirkju
kl. 12 með BAK tríóinu og Pétri, göngutúr með
Sigurði Hansen á Haugsnesgrundir eftir
tónleika og klukkan 14 hefst síðan
fjölskylduhátíðin Sunnan við garðinn hennar
mömmu á Syðstu-Grund. Fjölbreytt dagskrá
með leikjum, lifandi tónlist, handverkum og
hugverkum. Að sjálfsögðu verður Lilla á
Grund klár með kaffiveitingar. Áætlað er að
dagskránni ljúki um kl. 17.
Aðstandendur listaflóðsins bjóða alla
hjartanlega velkomna á viðburðina.
/Fréttatilkynning
Listsýning á
útskurði
og tálgun í tré
Maríudagar um helgina
Síðustu þrjú ár hefur fjölskylda
Maríu Hjaltadóttur frá Hvoli heiðrað
minningu hennar með listsýningu
sem nefnist „Maríudagar“ en þann
1. júlí sl. hefði María orðið níræð.
Helgina 12. og 13. júlí, kl. 13-18
báða dagana, ætlar fjölskylda
hennar enn á ný að efna til
Maríudaga með sýningu á útskurði
og tálgun í tré. Sýningin verður
haldin á Hvoli í Vesturhópi.
Verkin á sýningunni eru eftir tvær
dætur hennar, þær Kristínu og Oddnýju
og tvo systkinasyni hennar, þá Helga
Björnsson og Sigurjón Gunnarsson. Þess
má geta að listafólkið verður að störfum
meðan á sýningunni stendur. Einnig
verður ljósmyndasýning, gamlar myndir
af sveitungum í leik og starfi. Gestum er
boðið að þiggja veitingar báða sýningar-
dagana. /Fréttatilkynning
Atkvæðagreiðsla
stendur yfir
Samið við sveitarfélögin
Starfsgreinasamband
Íslands hefur undirritað
samninga við Samband
íslenskra sveitarfélaga fyrir
hönd þrettán aðildarfélaga
sinna, þ.m.t. Ölduna
stéttarfélag og Stéttar-
félagið Samstöðu.
Samkvæmt vef Stéttar-
félagsins Samstöðu gildir
samningurinn frá 1. maí 2014
til 30. apríl 2015 og koma
launahækkanir í tveimur
skrefum þannig að fyrsta
hækkun gildir frá 1. maí 2014
og síðan verða aftur breytingar
á launatöflu um áramótin
2014/2015. Ákveðið var að
halda sameiginlega rafræna
atkvæðagreiðslu og skal henni
lokið fyrir 22. júlí nk. Félagar
fá sent heim kynningarefni
og lykilorð vegna hennar.
Kjölur, stéttarfélag starfs-
manna í almannaþjónustu,
hefur einnig undirritað samn-
ing við Samband íslenskra
sveitarfélaga þann 3. júlí sl. um
framlengingu og breytingar á
kjarasamningum vegna starfs-
manna sveitarfélaga. Á heima-
síðu Kjalar kemur fram að
BSRB hafi undirritaði sams-
konar samkomulag við Sam-
band íslenskra sveitarfélaga og
tekur hann gildi á sama tíma.
Samningurinn tekur gildi frá
1. maí sl. og er til 30. apríl 2015.
Póstkosning um kjarasamning
stendur yfir og þarf að koma
kjörseðli í póst fyrir 17. júlí nk.
Nánari upplýsingar um
kjarasamninginn má sjá á
heimasíðu Kjalar. /BÞ