Feykir - 10.07.2014, Síða 5
26/2014 Feykir 5
Landsmóti hestamanna 2014 lokið
Heimsmeistari frá Hofi í Vatnsdal
Landsmót hestamanna árið 2014 sem haldið
var á Hellu í síðustu viku var hið 21. í röðinni.
Frá upphafi, eða frá því að Landsmót var fyrst
haldið á Þingvöllum, hefur mótið verið einn
stærsti íþróttaviðburður landsins. Keppendur
frá Norðurlandi vestra stóðu sig allir með prýði
og var gaman að sjá hversu vel ungu
keppendunum gekk.
Fresta þurfti dagskrá vegna vonskuveðurs í
upphafi Landsmótsins en þegar nær dró helgi
rættist heldur betur úr veðrinu og fór sólin að skína
á gesti mótsins.
Nokkur met voru slegin um helgina, en
knapinn Agnar Þór Magnússon og Konsert frá
Hofi í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu, slógu
heimsmet þegar þeir fengu metdóm í flokki fjög-
urra vetra stóðhesta. Þeir fengu 8,60 fyrir hæfileika,
þar af var kveðin upp einkunnin 10 fyrir tölt.
Bjarni Bjarnason sló bæði Íslandsmet og
heimsmet í 250m skeiði á Heru frá Þóroddsstöð-
um, en þau fóru 250 metrana á 21,76 sekúndum.
Teitur Árnason og Tumi frá Borgarhóli settu
svo Íslandsmet í 150m skeiði, en þeir fóru braut-
ina á 13,77 sekúndum.
Hamingja frá Hellubæ var hæst dæmda
fjögurra vetra hryssan á mótinu og setti heimsmet
þegar hún hlaut 8,58 fyrir hæfileika, þar af voru
fjórar níur, meðal annars í tölti og brokki. Knapinn
á Hamingju var Bergur Jónsson.
Loki frá Selfossi og Sigurður Sigurðsson sigruðu
örugglega í B-flokki gæðinga með lokaeinkunnina
9,39 sem er hæsta lokaeinkunn sem gefin hefur
verið í B-flokki. Auk þess að vinna Háfetabikarinn
hlaut Sigurður einnig Gregersen styttuna, fyrir
góða reiðmennsku og afburða vel hirtann hest.
Hin 12 ára gamla Glódís Sigurðardóttir sigraði í
A-úrslitum í barnaflokki, þriðja landsmótið í röð.
Þórdís Inga Pálsdóttir sigraði í unglingaflokki á
Kjarval frá Blönduósi í A úrslitum með 8,90 í
einkunn. Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási
voru í öðru sæti í A flokki, A úrslitum með 9,19.
Á kvöldvökunni á laugardagskvöldinu stigu
systurnar Ragnhildur Sigurlaug og Sigurbjörg
Svandís Guttormsdætur frá Grænumýri í
Blönduhlíð á svið og fluttu lag og ljóð Braga
Valdimars Skúlasonar, Líttu sérhvert sólarlag, við
undirspil Rögnvalds Valbergssonar. Flutningur
systranna vakti mikla lukku meðal áhorfenda
mótsins, en systurnar höfðu sigrað í söngva-
keppninni sem haldin var fyrr um daginn. Þór-
gunnur Þórarinsdóttir, dóttir Sigríðar Gunnars-
Meistaraflokkur karla hjá
Tindastóli mætti liði HK í
Kórnum sl. föstudagskvöld.
Stólarnir virtust ætla að byrja
leikinn af krafti en það fjaraði
fljótt undan í fyrri hálfleik.
Fyrrum Tindastólsmaður-
inn Árni Arnarsson skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir HK
með skalla eftir hornspyrnu á
28. mínútu. Hann skoraði svo
annað mark stuttu seinna en
var dæmdur rangstæður.
HK var mun betra í fyrri
hálfleik og komst í 2-0 þegar
Viktor Unnar Illugason fór illa
með vörn Tindastóls og skoraði
með skoti í stöngina og inn.
Stólarnir gerðu breytingar á
liðinu í hálfleik og komu sterk-
ari til leiks í seinni hálfleik og
sóttu hart að HK mönnum. Á
60. mínútu minnkaði Jose
Figura muninn með góðu skoti
rétt fyrir utan teig í fjærhornið.
Stólarnir voru nálægt því að
jafna metin seint í leiknum en
HK-ingar björguðu á línu.
Flottur seinni hálfleikur hjá
Tindastólsmönnum en það
dugði ekki til og eru þeir enn án
sigurs í deildinni. Lokastaða 2-1
fyrir HK.
Tindastóll situr enn í neðsta
sæti riðilsins með 3 stig eftir níu
leiki. HK er í 3. sæti með 17 stig
eftir níu leiki.
Næsti leikur hjá Stólunum er
föstudaginn 11. júlí, en þá mæta
strákarnir liði Grindavíkur á
Grindavíkurvelli og hefst leik-
urinn kl. 19:15. /GSG
Stólar kveðnir í kútinn
í Kórnum í Kópavogi
1. deild karla: HK – Tindastóll 2-1
Kormákur/Hvöt tók á móti
liði Skallagríms á Hvamms-
tangavelli fimmtudaginn 3.
júlí síðastliðinn. Leikurinn
var hörku spennandi og
mikil markasúpa í fyrri
hálfleik.
Guðni Albert Kristjánsson
kom Skallagrími yfir strax á
12. mínútu og nokkrum
mínútum síðar skoruðu
Kormákur/Hvöt sjálfsmark og
staðan því 0-2 fyrir gestunum.
Ingvi Rafn Ingvarsson
minnkaði svo muninn á 23.
mínútu, en mínútu síðar
skoraði Guðni Albert sitt
annað mark í leiknum fyrir
Skallagrím og staðan því orðin
1-3 fyrir gestunum. Leikmenn
Kormáks/Hvatar létu það þó
ekki á sig fá og minnkaði
Frosti Bjarnason muninn aftur
með marki á 26. mínútu. Í lok
fyrri hálfleiks jafnaði Hjörtur
Þór Magnússon svo metin
með marki á 43. mínútu.
Staðan í hálfleik 3-3.
Minna var um mörk í
seinni hálfleik en ansi mörgum
spjöldum var veifað. Hlynur
Rafn Rafnsson leikmaður
Kormáks/Hvatar fékk að líta
gula spjaldið á 53. mínútu.
Arnar Ingi Ingvarsson kom
svo Kormáki/Hvöt yfir með
marki á 66. mínútu. Halldór B.
Bjarneyjarson leikmaður
Skallagríms fékk gult spjald á
78. mínútu og Hámundur Örn
Helgason leikmaður Kormáks
/Hvatar var rekinn af velli á 88.
mínútu eftir að hafa fengið sitt
annað gula spjald í leiknum.
Lokastaða 4-3 fyrir Kormák/
Hvöt.
Kormákur/Hvöt er í 2. sæti
í riðlinum, með 12 stig eftir sex
leiki. Lið Skallagríms fylgir fast
á eftir í 3. sæti með 9 stig eftir
sex leiki.
Næsti leikur Kormáks/
Hvatar fer fram á Hvamms-
tangavelli laugardaginn 12. júlí
nk. En þá taka strákarnir á
móti liði KFG og hefst
leikurinn kl. 14:00. /GSG
Markasúpa á
Hvammstangavelli
4. deild karla: Kormákur/Hvöt – Skallagrímur 4-3
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR www.feykir.is/ithrottir
Þórdís Inga Pálsdóttir á Kjarval frá Blönduósi.
Ljósm./isibless.is
Systurnar Ragnhildur Sigurlaug og
Sigurbjörg Svandís á kvöldvökunni.
Ljósm./facebook.com/Landsmót hestamanna
dóttur og Þórarins Eymundssonar tók einnig þátt
í söngvakeppninni og var ásamt stelpunum í topp
þremur.
Öll úrslit mótsins og söngatriði stúlknanna er
að finna á hestasíðu Feykis.is. /GSG
Jose Figura skoraði mark Tindastóls
með góðu skoti í síðari hálfleik.Hamrarnir negldir niður í Boganum
1. deild kvenna: Hamrarnir – Tindastóll 0-2
Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli mætti
liði Hamranna í Boganum á Akureyri
fimmtudaginn 3. júlí sl.
Markalaust var í fyrri hálfleik en tvö gul
spjöld fengu að líta dagsins ljós. Ashley Marie
Jaskula leikmaður Tindastóls fékk áminningu
á 25. mínútu og María Kristín Davíðsdóttir
leikmaður Hamranna rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks.
Stólastúlkur komu ákveðnar til leiks í seinni
hálfleik og á 50. mínútu skoraði Guðrún Jenný
Ágústsdóttir fyrsta mark leiksins fyrir Stólana.
Aðeins tveimur mínútum síðar bætti hún við
öðru marki og staðan því orðin 2-0 fyrir
Tindastól. Hamrarnir komust ekki á skrið í
seinni hálfleik og unnu Stólastúlkur því
glæstan sigur á Akureyri.
Stólastúlkur eru nú í 3. sæti riðilsins með 15
stig eftir níu leiki. Lið Hamranna situr í 7. sæti
með 6 stig eftir sjö leiki.
Næsti leikur hjá Stólunum er laugardaginn
12. júlí, en þá mæta stelpurnar liði Víkings Ó. á
Ólafsvíkurvelli. /GSG
Agnar Þór Magnússon og Konsert frá Hofi í Vatnsdal.
Ljósmynd fengin af vef Eiðfaxa.