Feykir - 10.07.2014, Síða 6
6 Feykir 26/2014
Dýrin bræða fullorðna
jafnt sem börn
Húsdýragarður og hestaleiga á Stóru-Ásgeirsá í Víðidal
Þegar blaðamaður renndi í hlað
á Stóru-Ásgeirsá blöstu við
nýmáluð, snyrtileg útihús og
nýgirt hólf og gerði fyrir
fjölbreytta flóru húsdýra á
bænum. Í móttökunni var
flatskjár með myndum af
glöðum og sælum börnum í
návist hesta, svíns, lamba og
allskyns dýra. Undir hljómaði
smellin kántrítónlist eftir
Magnús, sjálfan bóndann á
bænum. „Já, ég er búinn að gefa
út disk, Legg af stað, og þetta er
eitt lagið á honum, Hófasprettur,“
svarar Magnús þegar blaða-
maður innir hann eftir því hvort
hann sé maðurinn á bakvið
tónlistina. Þá heyrist í miðju lagi
í kunnuglegri rödd Guðna
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Ágústssonar fyrrv. alþingis-
manns. „Ég samdi lög og texta
en Hrafnhildur Ýr frá Dæli
samdi þennan texta og Guðni
Ágústsson á sinn bút.
Mezzoforte spilar undir og
Grétar Örvarsson útsetti með
mér,“ útskýrir Magnús. Hann
segir frá því hvernig platan varð
til en Magnús kynntist Grétari í
gegnum Karl Örvarsson í
Reykjaskóla í Hrútafirði. „Við
byrjuðum bara á því að taka
demó af fimm lögum. Grétar
sagði við Kalla að hann væri
ánægður með þessi lög og við
ættum endilega að gera meira úr
þessu, þannig fór þetta að rúlla
og þá fékk ég tilboð frá
Mezzoforte að spila undir.“ Um
hvernig lagasmíðin fer fram hjá
honum segir hann að lögin verði
bara til þegar hann tekur
kassagítarinn í hönd. „Laglínan
á Hófaspretti varð bara til á einu
kvöldi, á 5 mínútum. Þeir segja
að ef lagið sé gott þá sé útkoman
góð. Ég hef oftast haft það
þannig að ef ég man laglínu
daginn eftir, sem ég samdi
kvöldið áður, þá held ég áfram
með það. Textasmíðin er öllu
flóknari. Ég tel mig ekki vera
góðan textasmið en ég fæ
yfirleitt einhvern, eins og t.d.
Hrafnhildi vinkonu mína í Dæli,
til að fara yfir þá, hún er
náttúrulega algjör snillingur,
hún semur texta á 15 mínútum.“
Geisladiskurinn hefur ekki
enn farið í almenna dreifingu en
það upplag sem kom út seldist
upp og á Magnús von á fleiri
eintökum. „Þetta er rosalega
skemmtilegt en líka mjög tíma-
frekt. Þessi vinna er reyndar ekki
rosalega mikið fyrir mig. Maður
þarf að setja sig í gírinn, það þarf
að sitja svo mikið á rassinum
sem á ekki alveg við mig, enda
var ég orðinn alveg iðandi,“
segir Magnús og hlær. Hann
segist vera ófeiminn við að grípa
í gítarinn fyrir gesti ef svo ber
undir og gerir það iðulega.
Annað kántrílag kemur á fón-
inn en þá er förinni haldið áfram
um húsdýragarðinn og svínið
Svínka slæst í för hluta ferðar.
Gengið er meðfram dýrahólfum
og áfram meðfram Ásgeirsá þar
sem háir og einstaklega fagrir
fossar renna niður við bæjar-
hornið. Meðal þess sem fyrir
augu ber eru friðlýstar fornleifar,
en Stóra-Ásgeirsá er landnáms-
jörð kennd við Ásgeir, son
Auðunar skökuls frá Auðunar-
stöðum sem samkvæmt Land-
námubók nam Víðidal fyrstur
manna.
Fjölskylduvæn
afþreying fyrir
ferðafólk
Magnús er fæddur og uppalinn
á Stóru-Ásgeirsá. Foreldrar hans
eru Elías Guðmundsson og
Sigríður Magnúsdóttir en þau
hófu búskap á bænum árið
1978. Magnús er lærður húsa-
smiður en hann útskrifaðist
einnig sem búfræðingur úr
Landbúnaðarháskólanum á
Hvanneyri árið 2008 og tók þá
við búi á Stóru-Ásgeirsá. „Þá
hófst alvaran í sauðfjárræktinni
og tamningunum,“ segir
Magnús. Rannveig Aðalbjörg
Hjartardóttir er frá Sauðárkróki,
dóttir Hjartar Sævars Hjartar-
sonar og Helgu Hauksdóttur.
Rannveig hefur stundað nám
við Kennaraháskóla Íslands og
starfað hjá Farskólanum – mið-
stöð símenntunar á Norðurlandi
vestra. Parið hóf sambúð á
Stóru-Ásgeirsá árið 2011.
Í fyrstu voru þau með
hefðbundinn búskap á bænum
og stendur til að halda því áfram
Á jörðinni Stóru-Ásgeirsá í Víðidal í Húnaþingi vestra hefur verið opnaður
húsdýragarður og hestaleiga en hana reka ungt par, þau Magnús Ásgeir
Elíasson og Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir. Stóra-Ásgeirsá stendur á
fallegu bæjarstæði við samnefnda á, en þaðan er fallegt og víðfeðmt útsýni
yfir Víðidalinn. Blaðamaður Feykis fékk höfðinglegar móttökur hjá
Magnúsi, Rannveigu, börnum þeirra og skepnum þegar hann leit við á
bænum á dögunum.
Hænurnar kipptu sér ekkert upp við innlit blaðamanns Feykis.
MYND Rannveig og Magnús og grísinn Svínka á góðri stundu.