Feykir - 10.07.2014, Side 12
Hofsá, sem rennur
gegnum Hofsós í
Skagafirði, hefur
verið í miklum vexti
í vatnsveðrinu
undanfarna daga.
Meðfylgjandi mynd
tók Jóhanna
Sveinbjörg
Traustadóttir á
Hofsósi á
laugardaginn.
Þetta vatnsfall, sem dags daglega lætur lítið yfir sér,
hefur breitt talsvert úr sér. Sömu sögu er að segja um
önnur vatnsföll á svæðinu og t.a.m. voru Vatnsdalsá og
Héraðsvötn í miklum vexti sl. sunnudag þegar blaða-
menn Feykis áttu leið um. /KSE
Vatnavextir í Hofsá
Rigningarveður á Norðurlandi vestra
Vaskir sjálfboðaliðar að störfum
Endurheimt Brimnesskóga
Í júnímánuði var hópur sjálfboðaliða frá
Blönduvirkjun að störfum í Brimnesskógum í
Skagafirði. Að sögn Stefáns S. Guðjónssonar
formanns félags um endurheimt landnámsskóga á
Brimnesi er þetta fimmta árið sem sjálfboða-
liðarnir veita slíka aðstoð.
Að þessu sinni var það tíu manna hópur vaskra
manna af báðum kynjum frá Blönduvirkjun. Megin
verkefnin voru áburðargjöf og ýmis viðhaldsvinna.
Auk þeirra mættu til verks Stefán ásamt sonum sínum
tveimur, þeim Snorra Stefánssyni og Ottó S. Michelsen,
en móður afi og amma þeirra voru fædd á Sauðárkróki.
Sjálfur segist Stefán vera tengdasonur Skagafjarðar.
Tilgangur Brimnesskóga verkefnisins er að endur-
heimta fornan skóg sem getið er um í Landnámu Ara
Fróða en eingöngu er notast við landnámsbirki og
reynivið sem vaxið hefur í Skagafirði frá öndverðu.
Nú eru liðin rúm 15 ár frá því að Steinn Kárason,
sem er hugmyndasmiður verkefnisins, ferðaðist vítt og
breitt um Skagafjörð og safnaði fræjum og græðlingum
trjáa í skógarleifum þar sem heimildir eru um skóga til
forna. „Forráðamenn Brimnesskóga þakka öllum
þeim fjölmörgu aðilum sem veitt hafa verkefninu
margvíslegan stuðning fyrir alla aðstoð,“ segir Stefán
að lokum. /BÞ