Feykir - 13.11.2014, Blaðsíða 1
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hvað er
að frétta?
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
á
BLS. 6-7
BLS. 9
Uppskeruhátíð
Æskulýðsnefndar Þyts
Um 60 börn og
unglingar í æsku-
lýðsstarfi Þyts
BLS. 8
Geirmundur Valtýsson fer
yfir farinn veg með Feyki
Stórtónleikar
framundan í
Austurbæ
Jóhanna Sveinbjörg á
Hofsósi er áskorendapenni
Ósamstæð nærföt
og ríkjandi vindátt
43
TBL
13. nóvember 2014
34. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Neyðarkall björgunarsveitanna
seldur um allt Norðurland vestra
Tökum vel á móti björgunarsveitarfólki
Glaðbeitt sölufólk Neyðarkallsins í anddyri Skagfirðingabúðar þegar blaðamann bar að garði. MYND: BÞ
Neyðarkall björgunarsveita er
fjáröflun björgunarsveita landsins.
Felst hún í sölu á lyklakippu með
áföstum björgunarsveitarmanni eða
konu. Salan fer fram fram fyrstu
helgina í nóvember ár hvert um land
allt og hefur almenningur tekið
sölufólki afskaplega vel.
Hagnaður af sölu Neyðarkallsins
rennur til björgunarsveita, slysavarna-
deilda og Slysavarnafélagsins Lands-
bjargar og er hann notaður til að efla og
styrkja starfið. Í gegnum tíðina hefur
almenningur haft mikinn skilning á
störfum björgunarsveita enda veit fólk
að þegar neyðarkall berst bregðast þær
hratt við með allan sinn mannskap,
búnað, tækni og þekkingu.
Feykir hafði samband við björg-
unarsveitirnar á svæðinu og spurðist
fyrir um hvernig salan gekk í ár. Hjá
björgunarsveitinni Húnum gekk salan
vel og viðtökur voru mjög góðar. Þar
hafa þegar selst fleiri Neyðarkallar en
undanfarin ár og ennþá er hægt að
kaupa þá með því að leggja inn á reikn-
ing 0159-26-1530 kt 700307-0930 kr.
2.000 og er hann þá sendur í pósti til
baka.
Góðar viðtökur
Hjá björgunarfélaginu Blöndu voru
viðtökur einnig mjög góðar. Salan stóð
frá fimmtudegi til sunnudags og var
gengið í hús á Blönduósi, ásamt því að
selja í Samkaupum. Viðtökurnar við
Neyðarkallinum hjá okkur voru mjög
góðar eins og undanfarin ár. Ennþá er til
eitthvað af Neyðarköllum hjá sveitinni
og er hægt að nálgast þá með því að
senda tölvupóst á bfblanda@simnet.is eða
hafa samband gegnum fésbókarsíðu.
Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð
seldi Neyðarkallinn í Varmahlíð og
nágrenni á þriðjudagskvöld. Þeir sem
misstu af björgunarsveitarmönnum þar
geta nálgast hann hjá Þorsteini í síma
893 1981. „Gekk alveg glimrandi vel og
seldum nánast það sem til var,“ sagði
hann.
Sömu sögu er að segja hjá Skag-
firðingasveit, sem gekk í hús á Sauðár-
króki og seldi Neyðarkallinn í Skagfirð-
ingabúð. Þar seldist allur lagerinn og
segja meðlimir sveitarinnar að þeim sé
alltaf vel tekið. /KSE