Feykir


Feykir - 13.11.2014, Blaðsíða 5

Feykir - 13.11.2014, Blaðsíða 5
43/2014 5 ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Jóhann Björn og Þóranna Ósk valin frjálsíþróttafólk ársins Uppskeruhátíð frjálsíþróttadeildar Tindastóls Uppskeruhátíð frjálsíþrótta- deildar Tindastóls var haldin í félagsheimilinu Ljósheimum á laugardaginn. Auk matar- veislu og skemmtiatriða voru veitt verðlaun fyrir frammi- stöðu ársins. Jóhann Björn Sigurbjörnsson var kjörinn frjálsíþróttamaður UMSS 2014 og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir frjálsíþrótta- kona ársins. Þá var valið ungt og efnilegt frjálsíþróttafólk úr hópi pilta og stúlkna 12-15 ára. Þar urðu þau Dalmar Snær Marinósson og Vala Rún Stef- ánsdóttir fyrir valinu. Í hópi 11-14 ára hlaut Stefanía Hermannsdóttir verð- laun fyrir bestu ástundun en Sveinbjörn Óli Svavarsson í hópi Það er Tryggvi Björnsson á Blönduósi, sem tók áskorun Róberts Daníels Jónssonar, einnig á Blönduósi, um að segja frá liðinu sínu í Feyki að þessu sinni. Tryggvi er United maður og hefur sælla minninga farið á leik þar sem hann sá sína menn kjöldraga Liverpool. Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Manchester United. Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Þetta verður bras tímabil en vonandi náum við 4. sæti en ekki get ég sagt að ég sé bjartsýnn. Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Sóknarlega er ég það en varnar- lega eru mínir menn að standa sig skelfilega, þarf klárlega að kaupa tvo heimsklassa miðverði. Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Í hverri viku og þá oftast við stuðningsmenn stórveldis sem eru á hraðri uppleið með Balotelli í fremstu víglínu og er að standa sig fáránlega vel í að safna treyjum. Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Eric Cantona. Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já, ég sá þá kjöldraga Liverpool 3-0, það var æðislegt. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Það er nú ekki mikið en svona smá, treyju og bolla. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Mjög vel, þrír af fjórum halda með Utd. en Kristófer haldinn sjálfs- píningarhvöt og styður Liverpool. Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Uuuuu nei! Uppáhalds málsháttur? -Sjaldan fellur dollan langt frá Old Trafford ;o) Einhver góð saga úr boltanum? -Tómur hér. Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? -Ég hef einu sinni hrekkt Róbert Daníel Jónsson og ætla ég ekki að rifja það upp hér. Hann er svo hörundsár, en þegar þessi hrekkur átti sér stað, í kjölfarið sá ég Robba brosa í gegnum tárin í fyrsta sinn. Spurning frá Róbert Daníel Jónssyni: Hvað finnst þér það besta við Steven Gerrard? -Þessu er ekki auðvelt að svara en líklega er það best við hann hvað hann hefur alla tíð verið stórkostlega ofmetinn sem leik- maður, og það er það besta að hann hefur verið að skrölta með þessu miðlungsliði Liverpool allan hans feril. Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Hörð Ríkharðsson á Blönduósi, kennara, hestamann og Arsenal- aðdáanda. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Hvað eru Arsenal búnir að vera efnilegir í mörg ár og er engin möguleiki á að þeir fari að verða góðir? Tryggvi Björnsson / Manchester United „Sjaldan fellur dollan langt frá Old Trafford“ ( LIÐIÐ MITT ) kristin@feykir.is Tryggvi Björnsson í pontu. MYND: ÚR EINKASAFNI Kormákur beið ósigur gegn KV Kormákur í Húnaþingi vestra hefur stofnað karlalið í meistaraflokki í körfubolta sem leikur nú í B-riðli 2. deildar Íslandsmótsins og var fyrsti leikur liðsins síðastliðinn laugardag. Þá mætti Kormákur Knatt- spyrnufélagi Vesturbæjar í Kennaraháskólanum í Reykjavík. KV hafði betur og fóru leikar 88-41. „Kormáksmenn fóru þó ekki niðurbrotnir heim og taka með sér dýrmætt innlegg í hinn svokallaða reynslubanka,“ segir á sérstakri bloggsíðu liðsins, http://kormakur.ice- basket.com/. „Kormáksmenn mættu í bæinn þjálfaralausir, en þjálfarateymi liðsins reynd- ist ekki vera við hestaheilsu. Ráð voru þó ekki svo dýr og var leitað í raðir Leiknismanna og fundum við þar húnvetnskt bóð, Einar Val, sem tók að sér þjálfarahlutverkið og skilaði því með sóma,“ segir enn- fremur á bloggsíðunni. /KSE Íslandsmótið í körfuknattleik: 2. deild B-riðillKnattspyrna Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari U17 kvenna í knattspyrnu, hefur valið lið Íslands sem leikur tvo vináttuleiki gegn Finnum 18. og 20. nóvember næstkomandi. Á meðal leikmanna er Kolbrún Ósk Hjaltadóttir, leikmaður Tindastóls. Kolbrún er meðal 18 stúlkna sem valdar voru. Fyrir mótið verða æfingaleikir í Kórnum nk. laugardag og í Egilshöll á sunnudag. /BÞ Kolbrún Ósk valin í U17 landsliðið Feykir.is Þú finnur þínar fréttir á... 15 ára og eldri. Rúnir Ingi Stefánsson var verðlaunaður fyrir mestu framfarir 15 ára og eldri en Jóhann Björn Sigur- björnsson fyrir óvæntasta afrek 15 ára og eldri. Á heimasíðu Tindastóls og fésbókarsíðu frjálsíþróttadeild- arinnar má einnig sjá hverjir unnu Íslandsmeistara- og ung- ingalandsmótstitla á árinu. /KSE Dalmar Snær, Þóranna Ósk, Jóhann Björn og Vala Rún MYND: UMSS.IS Sterkur sigur á ÍR í Breiðholtinu Dominos-deildin í körfubolta: ÍR - Tindastóll 86-92 Tindastóll bar sl. fimmtudagskvöld sigurorð af ÍR-ingum í Hertz-hellinum í Seljaskóla í fimmtu umferð Dominos-deildarinnar. Stólarnir náðu smá forskoti í öðrum leikhluta og bættu við í þeim þriðja. Heimamenn söxuðu á forskotið á lokamínútunum en náðu ekki að ógna forystu Stólanna að ráði. Lokatölur 86-92. Heimamenn í ÍR byrjuðu leikinn betur og komust í 9-4 eftir 96 sekúndur. Stólarnir þéttu vörnina og leikurinn jafnaðist. Staðan 19-19 að loknum fyrsta leikhluta eftir að Flake kastaði niður þristi. Þriggja stiga körfur frá Helga Margeirs og Dempsey bjuggu til forskot fyrir gestina en í hálfleik var staðan 38-46. Baráttan hélt áfram í upphafi þriðja leikhluta. ÍR-ingar brutu óíþróttamannslega á Finnboga á 23. mínútu og hann notaði mínútuna vel, setti vítaskotin niður af öryggi og setti síðan þrist og jók muninn í 13 stig, 45-58. Pétur var sjóðheitur utan 3ja stiga línunnar í þriðja leikhluta og setti niður þrjá þrista. Þegar fjórði leikhluti hófst var staðan 60-73 og heimamenn komnir upp að vegg. Darrel Lewis var að vanda góður á lokakaflanum og setti niður mikilvæg stig eftir áhlaup heimamanna sem minnkuðu muninn í fjögur stig þegar um hálf mínúta lifði leiks. Annað kvöld mæta Stólarnir Fjölni úti en næsti heimaleikur er þann 20. nóvember en þá koma Keflvíkingar í Síkið. /ÓAB Stig Tindastóls: Lewis 18, Helgi Viggós 14, Dempsey 14, Pétur 14, Helgi Margeirs 8, Viðar 7, Ingvi 5, Finnbogi 5, Flake 5 og Svavar 2.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.