Feykir - 13.11.2014, Page 2
2 43/2014
Magnús Gunnlaugur
Jóhannesson frá Brekkukoti í
Óslandshlíð fékk ístöð í
fermingargjöf á sínum tíma
frá afa sínum Magnúsi Hofdal
Hartmannsyni og voru þau
smíðuð af honum. Í kringum
1990 týndust þau í göngum í
Deildardal, en fundust aftur á
dögunum, í mýri í afréttinni.
Þegar ístaðið týndist á sínum
tíma rauk hesturinn út í busk-
ann en kom til baka með einung-
is annað ístaðið. Þá var afinn
Magnús látinn og saknaði
Magnús yngri alltaf ístaðsins.
Magnús lamaðist síðan vegna
vinnuslyss sem hann lenti í árið
2011 og hefur því ekki haft tök á
að skima eftir ístaðinu síðan. Um
síðustu helgi kom ístaðið þó
heim aftur en þá hafði Þórir Árni
á Háleggstöðum verið í eftirleit
og dottið um eitthvað járn í mýri.
Hann ákvað að toga þetta upp og
sjá hvaða járn væri að finna í
afréttinni. Upp kom ístaðið með
ólinni og komst það í hendur
eigandans sem varð að vonum
glaður og mun geyma það á
góðum stað eftirleiðis. /KSE
Ég hef stundum gaman af að velta fyrir mér orðum, eða
jafnvel orðskrípum, sem virðast verða til innan ákveðinna
faghópa og hvernig þau þróast. Ég var á leið í flug með
fjölskylduna fyrir skemmstu og
við innritunina á flugstöðinni
heyrði ég konurnar sem tóku á
móti okkur, og síðar flug-
freyjurnar, ræða sín á milli um
dóttur mína, eða „infantinn“
eins og hún var ítrekað kölluð.
Þetta þótti mér fremur sérstakt
og óheppilegur yfirsnúningur
úr enska orðinu „infant“,
sérstaklega þar sem ósköp gott,
gilt og fallegt orð er til sem hægt er að nota í staðinn – eins
og til dæmis ungbarn.
Í kjölfarið fór ég að hugsa hvort orðanotkun í mínu
starfsumhverfi gæti hljómað framandi í eyrum annarra. Þá
datt mér einna helst í hug að „smikka“ myndir, að færa mynd
yfir í „smikk“ eða CMYK sem notað er um litaprentun á
pappír, og vísar til Cyan (blár), Magenta (rauður), Yellow
(gulur) og Key (svartur). Ég hef líka stundum rekið mig á
það þegar ég er að óska eftir myndum í ákveðinni upplausn
til að birta í blaðinu, og að hafa hana í ekki færri en 300
punktum, að ekki allir kannast við þau hugtök sem skiljan-
legt er. Það segir til um gæði myndarinnar en prentmyndir
eru gerðar af fjölda örlítilla punkta og upplausn þeirra ræðst
af því hversu þétt saman þessir punktar standa og þar með
hve skýr myndin verður. Þarna hefur orðið upplausn verið
þýtt úr orðinu „resolution“ og er gott dæmi um heppilega
þýðingu á fagorði að mínu mati.
Það er ákaflega ánægjulegt þegar góðar þýðingar ná
kjölfestu í tungumálinu, fleiri dæmi mætti nefna úr tölvu- og
tæknigeiranum s.s. vista, vafra og svo er hægt að nefna þysja
og skruna sem hafa kannski ekki fest sig eins vel í sessi, en
ekki fyrir svo löngu voru þessi orð yfirfærð úr ensku og
þekkt sem „seifa“, „brása“, „súmma“ og „skrolla“. Þessi
orðhreinsun er afrakstur mikils og marksviss átaks sem
unnið hefur verið að undanfarin 10-15 ár og vitaskuld sér
ekki fyrir endann á því starfi með sífelldum tækninýjungum.
Nú til dags heyrist oft og iðulega í unga fólkinu, sem jafnan
er duglegt að tileinka sér nýjustu tækni, orðskrípi líkt og
„selfí“, „snöpp“ og að „skrínsjotta“. Gaman verður að heyra
hvað Íslensk málnefnd leggur til í stað þeirra og hvort þau
nái að festa sig í sessi.
Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Hrafnhildur Viðarsdóttir – hrafnhv@nyprent.is
Áskriftarverð: 450 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 490 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Um infantinn og
önnur orðskrípi
Fermingargjöf sem var sárt saknað
Ístað fannst í afrétt-
inni eftir rúm 20 ár
Svf. Skagafjörður
Ráðgefandi
hópur um
aðgengis-
mál
Á fundi byggðarráðs
Sveitarfélagsins
Skagafjarðar í síðustu viku
var lögð fram tillaga um að
stofnaður verði ráðgefandi
hópur um aðgengismál í
sveitarfélaginu fyrir
byggðarráð og eignarsjóð.
Hópurinn verði skipaður
tveimur fulltrúum sveitar-
félagsins og einum fulltrúa
frá, annars vegar Sjálfsbjörg
og hins vegar frá Þroskahjálp
í Skagafirði. Tillagan var
samþykkt á fundinum og
sveitarstjóra falið að hafa
samband við Sjálfsbjörg og
Þroskahjálp og óska eftir
tilnefningu í hópinn. /KSE
Ístaðið góða komið í leitirnar.
MYND: SIGRÚN FOSSBERG
Laugarbakkaskóli
Fær nýtt hlutverk
Félag í forsvari hjónanna
Tómasar Kristjánssonar og
Sigrúnar Guðmundsdóttur
hefur fest kaup á Laugar-
bakkaskóla í Miðfirði af
Húnaþingi vestra. Samkvæmt
vef Húnaþings vestra er
ætlunin er að reka þar
heilsárshótel auk þess að
standsetja fjölnotahús sem
nýst getur fyrir ráðstefnur og
ýmsar uppákomur.
Um er að ræða skólahús
með kennslustofum, heimavist,
mötuneyti, íþróttahúsi og íbúð-
um, auk einbýlishúss og parhúss.
Heildarflatamál fasteignanna er
tæpir 4.000 fermetrar. Kennsla
fluttist frá Laugarbakka til
Hvammstanga sl. haust og hefur
húsnæðið því ekki verið notað
sem slíkt síðan.
Undanfarin ár hefur Hótel
Edda rekið sumarhótel að
Laugarbakka en fram kemur á
vef Húnaþings vestra að nýir
eigendur stefni á umfangsmiklar
endurbætur á húsnæðinu með
Söfnun fyrir Elísabet Sóleyju
Skvísur til styrktar skvísu
Sólveig B. Fjólmundsdóttir hefur hrint af stað
söfnun þar sem hægt er að kaupa skvísur til
styrktar skvísunni og Skagfirðingnum
Elísabetu Sóleyju Stefánsdóttur, sem glímir
við illvígt krabbamein. Brúsarnir eru til sölu í
Sauðárkróksbakaríi og í Þreksporti en einnig
er hægt að hafa samband við Sólveigu í
gegnum facebook, hana er einnig að
finna í símaskránni.
Elísabet Sóley, sem var í opnuviðtali hjá Feyki í
októbermánuði, hefur skrifað um líðan sína inn á
vefinn innihald.is og hvernig baráttunni við
meinið miðar áfram. Nýjustu fréttir herma að hún
sé í London þar sem hún gengst undir geisla-
meðferð með svokölluðum gammageislum til að
vinna gegn meinvörpum í höfði hennar, sem
komu í ljós í síðustu viku. Aðgerðin fer fram í dag,
fimmudag, og flýgur hún svo heim seinnipartinn
á morgun, föstudag.
Sólveig vildi leggja vinkonu sinni lið í
veikindunum og leitaði til nokkurra fyrirtækja
sem gerðu henni kleift að láta merkja skvísur eða
drykkjarbrúsa og rennur söluverð óskipt til Elísa-
betar. Söfnun hefur farið ákaflega vel af stað að
sögn Sólveigar. Stykkið kostar 1.500 kr. en frjálst er
að leggja meira til ef viðkomandi vill. „Ótrúlega
þakklát hvað þessu hefur verið vel tekið og hvað
fólk er fljótt að bregðast við. Það er notalegt að
finna samhug samfélagsins,“ segir Sólveig í samtali
við Feyki en einnig segir hún Elísabetu vera djúpt
snortna, þakkláta fyrir stuðninginn og fyrir allar
fallegu kveðjurnar, bænirnar og hlýju hugsanirnar.
Þeir sem vilja leggja Elísabetu lið þá er reikn.nr.
söfnunarinnar sem Sólveig stendur fyrir: 0161-05-
70437 kt: 180479-4309. /BÞ
það að markmiði að gera húsið
heppilegra til hótelreksturs auk
þess að standsetja þar fjölnota-
hús eins og fyrr segir. Gera má
ráð fyrir að með rekstri þess
skapist 6-8 heilsársstörf og allt að
16 á háannatíma.
„Með fjölgun gistirýma og
aukinni þjónustu nýtast núver-
andi fjárfestingar ferðaþjónustu-
aðila í sveitarfélaginu betur og
ný tækifæri skapast fyrir sveitar-
félagið allt,“ segir loks á vef
Húnaþings vestra. Húsnæðið
verður afhent nýjum eigendum
þann fyrsta október 2015. /BÞ