Feykir - 13.11.2014, Page 4
4 43/2014
Aflatölur 2.-8. nóvember 2014
Rúm 350 tonn að landi
Í viku 45 var 164 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var 182 tonnum landað á Sauðárkróki, rúmum
5,5 tonnum á Hofsósi og 3,7 tonnum á Hvammstanga. Alls gera þetta rúm 350 tonn á Norðurland
vestra. /KSE
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Skíðasvæðið í Tinda-
stóli opnar föstudaginn
14. nóvember
Talsverður snjór er kominn
á skíðasvæðið, allur
undirbúningur gengur vel
og einnig er búið að
framleiða snjó þannig að
góður grunnur er kominn í
fjallið. Skíðadagskráin í
vetur verður með nokkuð
hefðbundnu sniði þó
nokkrum nýjungum verði
bætt við sem auglýstar verða
nánar þegar þar að kemur.
Auk hefðbundinna skíðaæf-
inga er ætlunin að bjóða upp á
brettaæfingar og námskeið í
vetur. Mikil eftirspurn hefur
verið eftir snjóbrettaæfingum
og er búist við þó nokkrum
fjölda af nýjum iðkendum á
snjóbrettum. Verður það kær-
komin viðbót við Skíðadeild
Tindastóls. Skíðaíþróttin er
krefjandi einstaklingsíþrótt og
alltaf má búast við einhverju
brottfalli en það er einnig alltaf
einhver nýliðun.
Í vetur stendur til að
stórbæta aðstæður fyrir
byrjendur með því að setja upp
töfrateppi sem staðsett verður
neðst í skíðabrekkunni.
Töfrateppi er færiband sem
flytur skíðamenn og konur
u.þ.b. 60 metra upp í aflíðandi
byrjendabrekku og síðan
renna þau sér niður. Þetta
þykir afar gott fyrir byrjendur á
meðan þeir eru að finna
jafnvægið á skíðunum. Margir
byrjendur óttast skíðalyftur og
það þykir gefa góða raun að
láta þá byrja á teppinu.
Verið er að vinna í skála-
málum og ef allt gengur upp þá
verður tekin skóflustunga að
nýjum skála þann 1. maí 2015.
Það er ljóst að einnig er þörf á
endurbótum á veginum upp í
fjall og planinu sjálfu og er það
allt til skoðunar.
Við horfum bjartsýn fram á
veturinn og höfum sett okkur
það markmið að fjölga iðk-
endum í fjallinu. Skíðaíþróttin
er skemmtilegt fjölskyldusport
þar sem börn og fullorðnir
njóta samveru og útivistar í
faðmi snævi þakinna fjalla.
Það er engin afsökun að bera
því við að eiga ekki skíði því
hægt er að leigja skíðaútbúnað
á staðnum. Ég hvet Skagfirð-
inga og gesti þeirra til að drífa
sig í fjallið í vetur.
Sigurður Bjarni Rafnsson
formaður Skíðadeildar
Tindastóls
AÐSENT FRÁ SKÍÐADEILD TINDASTÓLS
Harpa HU Dragnót 3.773.
Alls á Hvammstanga 3.773
Addi afi GK 97 Landb.lína 13.889
Alda HU 112 Landb.lína 18.133
Blær HU-77 Landb.lína 402
Dagrún HU-121 Þorskanet 6.824
Diddi GK 56 Handfæri 8.465
Flugalda ST 54 Landb.lína 3.664
Muggur KE-57 Landb.lína 16.342
Sighvatur GK-57 Lína 73.343
Signý HU 13 Landb.lína 13.487
Stella GK-23 Landb. lína 8.206
Sæfari HU 200 Landb.lína 1.778
Alls á Skagaströnd: 164.534
Farsæll SH-30 Botnvarpa 48.727
Hafborg SK-54 Þorskfisknet 3.040
Helga Guðm. SK 23 Handfæri 1.192
Klakkur SK-5 Botnvarpa 125.202
Óskar SK-13 Handfæri 912
Steini G SK 14 Handfæri 1.158
Vinur SK-22 Handfæri 1.217
Þytur Handfæri 1.303
Alls á Sauðárkróki 182.751
Ásmundur SK 123 Landb. lína 2.753
Sandvík EA 200 Dragnót 1.023
Þorgrímur SK 27 Landb. lína 1.761
Alls á Hofsósi 5.537
AÐSENT ÁSTA ÓLÖF JÓNSDÓTTIR Á SAUÐÁRKRÓKI SKRIFAR
Pilsaþytur
Í Húsi frítímans á
Sauðárkróki hittist hópur
fólks á miðvikudagskvöldum
frá kl. 19-22. Þessi kvöld eru
nefnd prjónakvöld en
auðvitað er hverjum og einum
í sjálfsvald sett hvað hann
dundar við. Það munu að vísu
vera eingöngu konur sem
þarna mæta en þessi kvöld eru
opin fyrir alla. Þarna hittist
fólk með handavinnuna sína,
miðlar fróðleik í þeim efnum
og hefur það notalegt.
Í ársbyrjun 2013 barst talið
einhverju sinni að þjóðbún-
ingum og þá kom í ljós að ansi
margar konur í þessum hópi áttu
annaðhvort upphlut eða peysu-
föt en voru misjafnlega duglegar
að nota það. Í framhaldi af
þessari umræðu var ákveðið að
gera það að venju að mæta við
setningu Sæluviku í þjóðbúning
og fara svo í heimsókn á
dvalarheimili aldraðra. Við
setningu Sæluviku 2013 mættu
hátt í 15 konur í búningum en
einungis einn karlmaður mætti í
hátíðarbúning. Þarna varð til
mjög óformlegur félagsskapur
sem kallar sig PILSAÞYT.
Markmið Pilsaþyts er að efla
notkun á íslenskum þjóðbún-
ingum. Í Sæluviku 2014 bættum
við svo um betur og fengum þau
Hildi og Ása hjá Annríki –
þjóðbúningar og skart í
Hafnarfirði til að koma norður
og halda kynningu á íslenskum
þjóðbúningum sem heppnaðist
afskaplega vel. Auk þess mætti
uppábúinn hópur á setningu
Sæluviku og fór síðan í heimsókn
á dvalarheimilið. Sá siður er því
vonandi kominn til að vera. Þá
höfum við hvatt fólk til að nota
búningana sína við sem flest
tækifæri t.d. 17. júní.
En íslenskir þjóðbúningar
eru ekki bara upphlutur og
peysuföt. Búningarnir eru
margskonar og má þar einnig
nefna faldbúning, skautbúning
og kyrtil. Faldbúningurinn er
þeirra elstur og var hann
sparibúningur kvenna fyrr á
öldum. Mikil aukning hefur
verið í að konur komi sér upp
faldbúning en það er heilmikið
fyrirtæki fyrir önnum kafið fólk
að fara suður yfir heiðar til að
sækja námskeið svo nú stendur
fyrir dyrum fyrsta námskeiðið
hér í Skagafirði þar sem boðið
verður uppá kennslu í gerð fald
og skautbúninga.
Hildur og Ási hjá Annríki –
þjóðbúningar og skart hafa verið
óþreytandi að kynna íslenska
þjóðbúninga og hafa farið víða
um land með námskeið í gerð
þeirra. Þau efna nú til kynningar
og námskeiðs í gerð fald- og
skautbúninga í Varmahlíð
helgina 21.-23. nóvember nk.
Föstudagskvöldið 21. nóvember
frá kl. 20-22 verður kynning á
þessum búningum í Varma-
hlíðarskóla og laugardaginn 22.
nóvember kl. 10 hefst svo fyrsta
námskeiðið í gerð þessara
glæsilegu búninga og verður það
haldið í Varmahlíðarskóla.
Kynningin á föstudagskvöldinu
er ókeypis og ég hvet alla þá sem
hafa áhuga á íslenskum þjóð-
búningum að koma. Það er enn
tekið við skráningum á nám-
skeiðið svo ef einhverjir hafa
áhuga er þeim bent á að hafa
samband við Hildi hjá Annríki
í síma 898-1573. Einnig má hafa
samband við undirritaða ef
frekari upplýsinga er þörf.
Ásta Ólöf Jónsdóttir
Pilsaþytskona.
Uppábúin í heimsókn í Maddömukoti 17. júní 2014. MYND: ÚR EINKASAFNI
Kátir skíðakrakkar úr Tindastóli sem tóku þátt í Jónsmóti á Dalvík 4.-5. mars
2011 en það eru þau Oddný Sara, María Dögg, Aron Már, Karen Lind, Birna
María, María og Hákon Ingi. MYND: ÚR EINKASAFNI
Áskorun frá Kvenfélagi Sauðárkróks
Drögum úr plastpokanotkun
Á fundi sem haldinn var í
Kvenfélagi Sauðárkróks þann
10. nóvember sl. skoraði
félagið á íbúa Skagafjarðar að
draga úr notkun plastpoka og
nota í staðinn margnotapoka
eða maíspoka, sem brotna
betur niður úti í náttúrunni.
Er áskorunin sett fram með
umhverfissjónarmið í huga,
enda hefur notkun plastpoka
vaxið óhóflega á undanförnum
árum. Telja kvenfélagskonur það
umhugsunarefni hvernig við
skilum móður jörð til næstu
kynslóðar. Umbúðavæðing er
mikil en varðandi plastpoka eru
aðrir valmöguleikar fyrir hendi.
Haldapokar úr maís eru
væntanlegir í Skagfirðingabúð.
/KSE