Feykir - 13.11.2014, Side 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
43
TBL
13. nóvember 2014 34. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Björgunarsveitin Húnar
Ferðafólk í vanda
Björgunarsveitin
Húnar á Hvamms-
tanga var kölluð út af
Neyðarlínunni helgina
sem leið til aðstoðar
mönnum sem höfðu
lent í vandræðum í
Búðará í Húnaþingi
vestra. Mennirnir þrír voru orðnir slæptir og blautir
eftir að hafa reynt að losa bílinn.
Samkvæmt vef björgunarsveitarinnar var farið á
tveimur bílum þar sem ekki þótti rétt að fara einbíla svo
langa leið, á einn afskekktasta stað í Húnaþingi vestra, við
þær aðstæður sem þá voru. „Okkar menn voru rúma
þrjá tíma að komast að bílnum og gekk vel að losa bílinn.
Var mönnunum síðan fylgt aftur til byggða,“ segir loks á
vefnum. /BÞ
BÚBÓT
15% afsláttur
af innimálningu frá Málningu hf.
frá fimmtudeginum 13. og út nóvember
Sérfræðingur frá Málningu hf. verður til viðtals
milli kl. 13 og 18 fimmtudag 13. nóv.
og föstudag 14. nóv.
Kíktu á Eyrina þar er margt að sjá!
...á að m
ála og
gera fínt
fyrir jólin
?
Þá ættiru
að
kíkja á þ
etta!
Bíllinn í Búðará. MYND: ÆVAR SMÁRI
Hvað ertu með á prjónunum? Svana Sigtryggsdóttir á Syðri-Kárastöðum í Húnaþingi vestra
Fékk hugmyndina frá
fyrsta barnabarninu
HVAÐ ERTU MEÐ
Á PRJÓNUNUM?
UMSJÓN berglind@feykir.is
Svana Sigtryggsdóttir
tók við áskorun Báru
Garðarsdóttur á
Hvammstanga og
hún ætlar að segja frá því hvað hún hefur
verið að vinna að í höndunum
undanfarið.
-Ég hef verið að mála stafi, það er alltaf spurt svolítið
eftir þeim fyrir jólin. Eins hef ég verið að prjóna
vettlinga í jólagjafir handa barnabörnunum. Það læð-
ast alltaf einhverjar prjónavörur með í jóla- og afmælis-
pökkunum og barnabörnin fylgjast alltaf vel með hvað
ég er að gera.
Hugmyndina að stöfunum fékk ég hjá fyrsta
barnabarninu. Hann hafði fengið nafnið sitt að gjöf og
svo tapaðist einn stafurinn. Þá ákvað ég að prófa að gera
svipaða stafi og endaði á því að útbúa allt stafrófið. Ég
mála stafina í þeim lit sem óskað er eftir og er komin
með gott safn af mynstri á þá. Sumir vilja stafi með
fótboltamynstri, aðrir Hello Kitty eða eitthvað annað
sem hentar.
Hvaða handverk sem þú hefur gert ert þú ánægðust
með?
-Ef að fólk er ánægt með það sem ég geri handa því er
ég ánægð.
Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir?
-Ég hef gripið í prjónana frá því að ég var um tvítugt. Ég
byrjaði á stöfunum fyrir 11-12 árum síðan. Ég sé oft
eitthvað sem mér líst vel á og verð að prófa hvort ég geti
gert eitthvað svipað. Mér finnst mjög gott að vera með
næg verkefni og fjölbreytt. Ég er oft að vinna að tveimur
til þremur verkefnum í einu því það getur verið gott að
breyta aðeins til.
Eitthvað sem þú vilt bæta við?
-Ég ætla að skora á Kristínu Ólöfu Þórarinsdóttur
aðstoðarskólastjóra Grunnskóla Húnaþings vestra en
hún er mjög afkastamikil prjónakona.
Sýnishorn af handverki Svönu.