Feykir - 19.03.2015, Blaðsíða 15
11/2015 15
Það
er góð
hugmynd
að gerast
áskrifandi
að Feyki!
Þú hringir í síma 455 7171
eða sendir póst á feykir@feykir.is
og gerist áskrifandi að Feyki.
Þannig tekur þú þátt í að halda úti
öflugum fjölmiðli á þínu svæði.
– Það skiptir máli!
FRÉTTA- & DÆGURMÁLABLAÐ Á NORÐURLANDI VESTRA
kökur, þá þarf að hafa forréttina
fremst, aðalréttina svo hinum
megin og autt á enda borðsins
ef bera á fram ístertu, þá er
hægt að leggja hana þar þegar
kaffið hefst.
Eitt mikilvægasta ráð sem
Binný getur gefið er að þegar
verið er að ferma fyrsta barn,
þá er mikið atriði að skrifa hjá
sér allt sem maður kaupir, svo
eftir fermingu að skrifa allt sem
verður eftir. Þá verður
auðveldara með næsta barn að
áætla hvað þú þarft að kaupa
inn, t.d. af kaffi og gosi eða kjöti
og kartöflum. Svo ef það verður
of mikið eftir af kjöti má frysta
það. Kartöflur er hægt að vigta
í poka, frysta og baka síðar
kartöfluköku úr afganginum
með eggjakremi og sultu. Það á
ekki að henda neinu,“ segir
Binný með bros á vör.
Skittles notað til skreytinga. Kransakaka sem Binný bakaði fyrir
frænku sína.
Marglitið Skittlesið setti mikinn lit og lífgaði upp á borðin.
Látlaust og stílhreint
veisluborð.