Feykir - 19.03.2015, Blaðsíða 21
11/2015 21
Nýtt útlit en haldið
í gamla stílinn
Spjallað við Róbert Óttarsson eiganda Sauðárkróksbakarís
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
Á Sauðárkróki er eitt elsta bakarí
landsins, stofnað árið 1880.
Miklar endurbætur hafa verið
unnar á húsnæði þess undanfarin
ár, m.a. með Bakarastétt sunnan
við húsið við Aðalgötu 5 og afgirtu
leiksvæði fyrir börn þar sem hægt
er að tylla sér og fá sér veitingar á
meðan börnin leika sér. Nú síðast
var gerð allsherjar yfirhalning
á afgreiðslu bakarísins í janúar.
„Þetta kom betur út en ég þorði
að vona,“ sagði Róbert Óttarsson
eigandi Sauðárkróksbakarís, sæll
og glaður með breytingarnar,
þegar hann tók á móti blaðamanni
Feykis á dögunum.
Róbert segir að breytingarnar hafi átt sér
langan aðdraganda en viðræður hófust
fyrir um einu og hálfu til tveimur árum
við þrjú erlend fyrirtæki um að taka að
sér þessar sérhæfðu breytingar; eitt í
Ítalíu, annað í Þýskalandi og það þriðja í
Danmörku. „Við ákváðum að veðja á
ítalska fyrirtækið og sjáum ekki eftir
því,“ segir Róbert en fyrirtækið hafði
starfað hér á landi áður þegar það setti
upp innréttingu í Mosfellsbakaríi og
þekkti því vel til. „Þau gerðu okkur tilboð
þar sem allt var innifalið, gert var ráð
fyrir öllu inni pakkanum og hugsað fyrir
hverjum hlut,“ útskýrir Róbert.
Síðastliðið sumar tók Róbert á móti
arkitekt frá fyrirtækinu, sýndi honum
staðinn og sagði sögu bakarísins. Hver
krókur og kimi var mældur og staðurinn
myndaður í bak og fyrir. Það var svo í
janúar síðastliðnum sem nýju innrétt-
ingar og allir innanstokks- og skraut-
munir ætlaðir í bakaríið og borðsalinn
komu á Krókinn, auk tveggja iðnaðar-
manna sem unnu sleitulaust í hálfan
mánuð við að koma öllu haganlega fyrir.
Áður hafði allt verið hreinsað út, fyrir
utan veggpanelinn og einnig var varð-
veittur gamall kæliskápur en áhersla var
lögð á að halda í gamla stílinn. Róbert
Róbert Óttarsson bakari hress að vanda. MYNDIR: BÞ
segist vera mjög ánægður með útkom-
una en sérlega skemmtilegt segir hann
hafa verið að finna fyrir ánægju
bæjarbúa, en viðtökurnar eftir að þau
opnuðu staðinni á ný segir hann hafi
verið hreint stórkostlegar. Þá hefur fólk
einnig lýst ánægju sinni með fram-
kvæmdirnar sem hafa verið gerðar
utandyra. Þar hefur Róbert látið leggja
stétt þar sem gestir bakarísins geta sest út
með kaffið sitt þegar vel viðrar og þar er
að auki leiksvæði fyrir börn sem hann
vonast til að verði mikið notað í sumar.
„Ef við getum ekki gert það
sjálf þá er það ekki til“
Bakaríið var fyrst stofnað af Carl
Frederikssen árið 1880 og er því með
elstu bakaríum á landinu sem hafa
starfað óslitið. „Ég er mjög stoltur af því
að á þessum 135 árum síðan bakaríið var
stofnað þá hafa einungis verið átta
eigendur. Þar af átti Guðjón Sigurðsson
það lengst af, í 50 ár. Pabbi [Óttar
Bjarnason] keypti það af honum og rak
það í 23 ár. Ég er búinn að vera hér í níu
ár og ætla mér að vera í mörg ár til
viðbótar – bæði finnst mér þetta alveg
hrikalega gaman og ég hef mikla trú á
fyrirtækinu,“ segir Róbert en alls starfa
um 17 manns hjá fyrirtækinu, þar af eru
tíu manns í fullu starfi. „Bakaríið hefur
skapað sér gott orðspor og við njótum
góðs af því. Við lifum eftir mottóinu: „Ef
við getum ekki gert það sjálf þá er það
ekki til.“ Við erum metnaðarfull og
gerum allt frá grunni og við erum til
dæmis eitt af örfáum bakaríum á land-
inu sem býr til deigið í amerísku
kleinuhringina.“ Þá segist Róbert leggja
mikla áherslu á að bjóða viðskipavinum
einnig upp á hollar vörur, gróft brauð og
hollustu nammi, að jöfnu við sæta-
brauðið. „Ég vitna stundum í það að
brauð er eina matvaran sem minnst er á
í Faðir vorinu, þannig að maður á aldrei
að halda aftur af sér í brauðmeti,“ segir
Róbert loks kíminn á svip.
Starfsfólk Sauðárkróksbakarís í kringum 1980. Frá vinstri: Unnur Sævarsdóttir, Guðjón
bakari Sigurðsson, Óttar Bjarnason, Gunnar Guðjónsson og Sigrún Alda Sighvats.
MYND: HSk