Feykir


Feykir - 19.03.2015, Blaðsíða 27

Feykir - 19.03.2015, Blaðsíða 27
11/2015 27 / Fermingar-Feykir Hin fjögur fræknu mynduð í kirkjunni Að þessu sinni var ákveðið að taka forsíðumynd Fermingar-Feykis í Sauðárkrókskirkju. Fjórum hressum fermingarkrökkum var því stefnt í kirkjuna síðastliðinn fimmtudag og þar voru teknar þessar fínu myndir. Fermingarkrakkarnir sem stilltu sér upp fyrir Feyki eru Dagmar Lilja Hreiðarsdóttir, Eysteinn Ívar Guðbrandsson, Ívar Elí Guðmundsson og Rebekka Ósk Rögnvaldsdóttir. Rebekka klæddist kjól og skóm frá Skagfirðingabúð en Dagmar, Eysteinn og Ívar voru í eigin sparifatnaði. Útlit og myndataka Það var Klippiskúrinn á Sauðárkróki sem hafði veg og vanda af hárgreiðslu Ívars, Rebekku og Dagmarar en Thelma Sif Magnúsdóttir hjá Sif snyrtistofu á Sauðárkróki sá um förðun stúlknanna. Það var síðan snillingurinn hann Davíð Már Sigurðsson sem stillti krökkunum upp og myndaði af list. Hér á síðunni má sjá nokkur fleiri skot úr myndatökunni en Davíð sá einnig um myndvinnslu á þessum myndum, sem og forsíðumynd Feykis. Feykir þakkar öllum hlutaðeigandi kærlega fyrir hjálpina og skemmtilega stund í kirkjunni. UMSJÓN Berglind Þorsteinsdóttir Frá vinstri: Eysteinn Ívar Guðbrandsson, Rebekka Ósk Rögnvalds- dóttir, Ívar Elí Guðmundsson og Dagmar Lilja Hreiðarsdóttir. MYNDIR: DAVÍÐ MÁR

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.