Feykir - 19.03.2015, Síða 27
11/2015 27 /
Fermingar-Feykir
Hin fjögur
fræknu
mynduð í
kirkjunni
Að þessu sinni var ákveðið að taka forsíðumynd
Fermingar-Feykis í Sauðárkrókskirkju. Fjórum
hressum fermingarkrökkum var því stefnt í
kirkjuna síðastliðinn fimmtudag og þar voru
teknar þessar fínu myndir.
Fermingarkrakkarnir sem stilltu sér upp fyrir Feyki
eru Dagmar Lilja Hreiðarsdóttir, Eysteinn Ívar
Guðbrandsson, Ívar Elí Guðmundsson og Rebekka
Ósk Rögnvaldsdóttir. Rebekka klæddist kjól og
skóm frá Skagfirðingabúð en Dagmar, Eysteinn og
Ívar voru í eigin sparifatnaði.
Útlit og myndataka
Það var Klippiskúrinn á Sauðárkróki sem hafði veg
og vanda af hárgreiðslu Ívars, Rebekku og Dagmarar
en Thelma Sif Magnúsdóttir hjá Sif snyrtistofu á
Sauðárkróki sá um förðun stúlknanna.
Það var síðan snillingurinn hann Davíð Már
Sigurðsson sem stillti krökkunum upp og myndaði
af list. Hér á síðunni má sjá nokkur fleiri skot úr
myndatökunni en Davíð sá einnig um myndvinnslu
á þessum myndum, sem og forsíðumynd Feykis.
Feykir þakkar öllum hlutaðeigandi kærlega fyrir
hjálpina og skemmtilega stund í kirkjunni.
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
Frá vinstri: Eysteinn Ívar Guðbrandsson, Rebekka Ósk Rögnvalds-
dóttir, Ívar Elí Guðmundsson og Dagmar Lilja Hreiðarsdóttir.
MYNDIR: DAVÍÐ MÁR