Feykir - 21.05.2015, Page 1
á
BLS. 6-7
BLS. 11
Nokkrir nemendur fyrri
tíma teknir tali
Tónlistarkennsla
í Skagafirði
í 50 ár
BLS. 8
Áslaug S. Árnadóttir í
opnuviðtali Feykis
„Hlutir eiga að
vera fallegir og
gleðja augað“
Rakel og Jóhannes Kári eru
matgæðingar vikunnar
Lax með
Mango Chutney
19
TBL
21. maí 2015
35. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Ábúandinn missti allt sitt í eldinum
Bruni á Breiðabólstað í Vesturhópi
Eldur kom upp í íbúðarhúsi á Breiða-
bólstað í Vestur-Húnavatnssýslu um
hádegi á sunnudaginn. Erfiðlega gekk
að slökkva eldinn en brunavarnir
Vestur-Húnavatnssýslu og Slökkviliðið
á Blönduósi voru kölluð á vettvang og
komu rúmlega 20 slökkviliðsmenn,
auk bænda á nærliggjandi bæjum að
slökkvistarfinu.
Þegar lið Brunavarna Húnaþings
vestra kom á staðinn var mestur eldur á
efri hæð hússins, en þar sem norðan-
hvassviðri var varð húsið fljótt alelda.
Engin slys urðu á fólki en húsið er brunnið
til kaldra kola og ábúandinn, Kristján
Sigurðsson, missti allt sitt innbú í eldinum.
Síðar um kvöldið varð þess vart að
aftur fór að rjúka upp í brunarústunum
og kom þá slökkvilið á Hvammstanga
aftur á vettvang þar sem öruggara þótti að
dæla vatni á mögulegar glæður.
Breiðabólsstaður er forn og kunnur
kirkjustaður. Skammt er milli kirkju og
bæjar en ekki var þó hætta á að eldurinn
bærist í kirkjuna. /KSE
SÖLUSTJÓRI
NORÐURLANDI VESTRA
Þröstur I. Jónsson hefur hafið störf hjá
BYKO sem sölustjóri og þjónustar
alla íbúa frá Skagafirði til Hólmavíkur.
Þröstur verður staðsettur á Sauðárkróki en
mun vinna út frá verslun okkar á Akureyri.
Sími: 821 4059 • tj@byko.is
G R Æ J U B Ú Ð I N Þ Í N
Fermingargjafir
Græjubúð Tengils er
stútfull af frábærum
fermingartilboðum
Húsið á Breiðabólsstað brann til kaldra kola. MYND: KARL SIGURGEIRSSON
Í fréttatilkynningu kemur fram að fjögur hundruð milljóna
króna samningur SAH Afurða á Blönduósi, um sölu á 160
tonnum af lambakjöti og 70 þúsund gærum til fyrirtækis í
Hong Kong, sé í hættu vegna verkfalls dýralækna. Fyrstu
gámarnir eiga að fara úr landi eftir viku, en ef verkfallið
dregst á langinn og tafir á afhendingu verði miklar óttast
Gunnar Tr. Halldórsson, framkvæmdastjóri SAH Afurða, að
samningnum verði rift.
„Gámar með gærunum eru bókaðir í skip 26. maí nk. og sú
sending þarf vottun dýralækna Matvælastofnunar, og því fer
hún ekki af stað ef þeir verða ennþá í verkfalli. Þetta kom fram
í fréttum RÚV sl. þriðjudag. Gunnar segir í samtali við RÚV að
það sé alltaf hættulegt að geta ekki staðið við fyrstu sendingu í
nýjum viðskiptum. Það geti haft mikil áhrif á áframhaldandi
viðskipti. Í samningnum eru ákvæði um að félagið verði að
greiða kaupandanum sektir ef afhending dregst meira en viku
fram yfir umsamdar dagsetningar. „Það má eiginlega segja að
það verði strax fjárhagslegt tjón ef ekki næst að fá gáma vottaða
í næstu viku,“ sagði Gunnar.
Í samtali við Ríkisútvarpið sagðist Gunnar einnig óttast að
samningnum verði hreinlega rift ef að miklar tafir verði á
afhendingu. SAH Afurðir eru litlir viðskiptavinir í þessum
stóra heimi og ekki víst að fyrirtækið í Hong Kong vilji eiga við
þá ef þeir geta ekki staðið við gerða samninga. /ÞKÞ
SAH Afurðir á Blönduósi
Samningurinn í hættu vegna verkfalls