Feykir - 21.05.2015, Síða 7
19/2015 7
Ætlunin að gera störf fatlaðs fólks sýnilegri
„Dagur góðra verka“ er
kynningarátak Hlutverks sem
fram fer á starfsstöðvum um
allt land á morgun, föstudaginn
22. maí. Hlutverk eru samtök
um vinnu- og verkþjálfun á
Íslandi sem mynda einskonar
regnhlíf utan um iðjur,
hæfingarstöðvar og vinnu- og
verkþjálfunarstaði á landinu.
Þeim er m.a. ætlað að gæta
hagsmuna sambandsaðila og
stuðla að góðu samstarfi og
samskiptum fyrirtækja og
stofnana innan sambandsins.
Einnig að stuðla að samvinnu
við önnur fyrirtæki, stofnanir og
félög, innanlands sem utan, í
upplýsinga- og fræðsluskyni
varðandi atvinnumál fatlaðs
fólks og annarra sem þurfa á
stuðningi að halda. Síðast en
ekki síst að stuðla að samstarfi
um uppbyggingu á
starfsþjálfun, hæfingu og
endurhæfingu til starfa á
vinnumarkaði.
„Að sögn Jónínu Gunnarsdóttur
hjá Iðju á Sauðárkróki funda stjórn
og fulltrúar sambandsaðilanna
reglulega um þau málefni sem
snúa að atvinnumálum fatlaðs
fólks og ýmis önnur mál sem
brenna á þeim. „Einkunnarorð
samtakanna eru: „Vinna, virðing
og vellíðan“ og hafa þau merki
sem stendur fyrir það mikilvæga
hlutverk og starf sem fram fer á
vinnu og hæfingarstöðvunum,“
segir hún. „Þið sjáið þetta merki
víða í verslunum og stöðum sem
bjóða upp á vörur sem eru ýmist
framleiddar eða pakkað á
vinnustöðum fatlaðs fólks. Má t.d.
nefna ýmsar skrifstofuvörur frá
Múlalundi, vörur frá Blindravinnu-
stofunni, Heimaey kertaverk-
smiðju, Plastiðjunni Bjargi-Iðju-
lundi og mörgum fleiri stöðum,“
útskýrir Jónína.
Jónína segir sambandsaðila
að Hlutverki vera 27 og munu þeir
allir taka þátt í kynningarátakinu á
morgun, t.d. með því að opna hús
sín og gera starfsemina sýnilega í
nær umhverfinu. „Það er alveg
ótrúlega fjölbreytt og skemmtileg
starfssemi hjá þessum 27
sambandsaðilum. Þrátt fyrir mikið
samstarf eru staðirnir afar ólíkir og
hefur hver sambandsaðili sína
sérstöðu,“ segir Jónína.
Hjá Iðju á Sauðárkróki verður
opið milli kl. 13:00 og 16:00.
„Fólki gefst tækifæri á að koma og
kynna sér starfsemina, spjalla, fá
sér kaffi eða kakó og svo verður
vöfflujárnið hitað í tilefni dagsins.
„Við munum einnig segja frá
öðrum stöðum og samstarfi okkar
á milli.“
Skemmtilegt samstarfs-
verkefni við fjölnota poka
Notendur Iðju á Sauðárkróki eru
fimmtán en fastir starfsmenn eða
leiðbeinendur eru fimm. „Svo
erum við með auka fólk á okkar
snærum eins og í reiðþjálfun
Dagur góðra verka á morgun
Notendur Iðju á góðri stund í júní 2014. MYND: BÞ
fatlaðra,“ nefnir Jónína og segir
góða og bjarta tíma framundan. „Á
vorin þegar við höfum lokið
undirbúningi fyrir Landsbanka-
sýninguna í Sæluvikunni höfum við
farið svolítið í annan gír. Við lokum í
tvær vikur og starfsmenn, leið-
beinendur og notendur skiptast á
að taka sitt sumarfrí. Venja er að
fara í vor- eða sumarferð sem er
dagsferð í lok maí eða byrjun júní.
Síðasta sumar fórum við á t.d.
Hvammstanga og heimsóttum vini
okkar þar. Hvert ferðinni verður
heitið þetta árið er leyndarmál enda
er það óvissuferð,“ segir Jónína og
brosir. „Svo má ekki gleyma því að
við flytjum, vonandi á þessu ári, í
annað húsnæði en verið er að vinna
í að gera upp gamla leikskólann í
Sæmundarhlíð sem verður að Iðju.
Það ríkir mikil tilhlökkun í hópnum
okkar,“ bætir hún við.
Að lokum berst talið að
skemmtilegu samvinnuverkefni
Fjöliðjunnar í Borgarnesi, Iðju á
Sauðárkróki og Iðju á Siglufirði. „Í
stuttu máli sagt varð úr að
Fjöliðjufólk í Borgarnesi og Iðjufólk á
Siglufirði saumar fjölnota taupoka,
sendir Iðjufólki hér á Sauðárkróki
sem stenslar og skreytir ef þeim líst
svo á að þurfi, klippir lausa enda,
straujar, merkir og pakkar. Síðan
verða pokarnir sendir vestur á
Hólmavík, í Leikskólann Lækjar-
brekku, en nemendur þar munu
færa öllum heimilum á staðnum
pokana að gjöf til að stuðla að
plastpokalausri Strandabyggð,“
segir Jónína. Verkefnið er liður í
Grænfánaverkefni leikskólans, sem
fékk í það styrki. Þess má geta að
efnin sem notuð eru í pokana eru
gömul gardínuefni, sængurver og
slíkt, sem fólk er hætt að nota og
upp á vegg. Ég hef líka látið prenta teikningar á boli fyrir
börn og fullorðna. Þar af auki hef ég gert heilan helling af
armböndum úr plastperlum, sem er hægt að setja saman
í öllum regnbogans litum í einhverjum sinfóníum sem
passa við allt. Arnlaug Borgþórsdóttir, mágkona mín, er
leirlistakona og virkilega flink, og við erum – í hjáverkum
og yfir hafið – að prófa okkur áfram með sameiginlega
hönnun og framleiðslu. Ég er mjög spennt fyrir því.“
En hvað er það besta við vinnuna? Jú, það er
útrásin sem Áslaug fær fyrir sköpunargleði og fram-
kvæmdagleði. Að fá tekjur, ef vel tekst til, af því sem
henni finnst skemmtilegt að fást við er frábær kostur og
hefur gefið stöðunum til að vinna
úr.
Vantar verkefni fyrir
notendur Iðju
„Þetta er alveg einstaklega
skemmtilegt samstarfsverkefni og
allir glaðir að geta átt hlutdeild í
því. Það er von okkar að þetta geti
haldið áfram og fleiri aðilar sjái sér
leik á borði og panti hjá okkur
sambandsaðilum poka. Svo er
annað sem skiptir miklu máli í
þessu sambandi og það er að
hafa „hlutverk“ í samfélaginu. Við
höfum misst verkefni frá okkur því
tímarnir breytast og tækninni
fleygir fram,“ segir Jónína. Hún
nefnir sem dæmi að nokkrir af
notendum Iðju hafi getað bundið
lykkjur á spyrðubönd fyrir Fisk
Seafood, en þegar þurrkhúsið var
komið í gagnið urðu böndin óþörf.
„Okkur hefur alveg sárlega
vantað vinnuverkefni fyrir Iðju hér
á Sauðárkróki og langar okkur að
biðla til forsvarsmanna fyrirtækja í
Skagafirði að athuga hvort ekki
leynist lítil og/eða stór verkefni
sem fólkið okkar í Iðju gæti unnið.
Einnig vantar alltaf verkefni/störf
fyrir fólkið okkar sem er í Atvinnu
með stuðningi eða AMS. Við
vonum að sem flestir hafi tækifæri
til að koma til okkar og kynnast
starfsseminni og síðast en ekki
síst eiga góða stund með okkur í
Iðju,“ segir Jónína að lokum. /KSE
Upplýsingar um sambandsaðila, vörur
og þjónustu má sjá á heimasíðu
samtakanna, www.hlutverk.is. Einnig
eru góðar upplýsingar og myndir á
fésbókarsíðu samtakanna.
einnig finnst henni dásamlegt að hafa það vald að allt
sem hún sendir frá sér er eitthvað sem hún sjálf kann að
meta.
„Laugurnar eru á leiðinni!“
Sala á vörunum er ekki byrjuð fyrir alvöru, en mest
hefur hún verið í gegnum vini Áslaugar og vandamenn
og eitthvað hefur ratað heim til Íslands og á Krók. „Ég
er mjög stolt af því og finnst rosalega gaman að heyra af
hinum og þessum sem eru komnir í bol með teikningu
eftir mig, eiga skartgripi sem ég hef búið til eða eru búnir
að hengja upp fallegan platta.“
Það er nóg á prjónunum og margt spennandi
framundan hjá Áslaugu, en núna er hún að vinna að því
að byggja upp lager, svo hún geti selt án þess að það verði
uppselt um leið. Næsta skref er svo að koma vörunum á
netið og í eina eða tvær búðir. „Svo hef ég það markmið
að taka þátt í sýningunni „Handverk og hönnun“
í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember með Arnlaugu
mágkonu minni. Við höfum oft talað um það – en í
ár skal verða af því! „Laugurnar“ eru á leiðinni!“ segir
Áslaug en bætir við: „Annars eru mörg ný viðfangsefni
eins og bókhald, virðisaukaskattur og markaðsvæðing
sem ég veit lítið sem ekkert um.“
Aðspurð hvort Áslaug vilji segja eitthvað að lokum
svarar hún með fallegu ljóði: „Suðurgötudrengurinn
Hannes Pé hefur einstaka hæfileika til að skapa myndir
úr orðum af Sauðárkróki og landslaginu í Skagafirði –
enda þótt margar af þessum myndum séu frá liðnum
tíma:
Við fjarðarbotn
Ó þau sumarkvöld -
sælueyjar á vötnum minninganna:
Logn sem er í himneskum görðum
hlátrar og frjálsleg köll.
Rauðberjarunnar í blóma.
Reynitré sunnan við gömul hús.
Í langri röð
koma lötrandi kýrnar inn í þorpið
úr blautum mýrunum.
Marglit fylging
með djúp sveitarinnar
í seimdregnum hljóðum.
En heimvið bryggjurnar blikar á litla fiska
í botntærum sjó.
Þeir synda hægt um sal úr dimmgrænum speglum.
Ég þarf endilega að spyrja hann hvort ég megi koma
þessu ljóði í annað form,“ segir Áslaug að lokum.
>> Sjá hönnun Áslaugar á Facebook undir Nebengesjæft
Teikningum Áslaugar gefið líf.