Feykir - 19.11.2015, Blaðsíða 6
6 44/2015
Mér líður vel með góða borvél
og sandpappír í höndunum
Hvað ertu með á prjónunum? Freyja Ólafsdóttir Hvammstanga
Nú er maður bara að byrja að
hugsa til jólanna og eins og
svo oft áður þá ætla ég að
búa til gjafirnar, en það vill
stundum eitthvað fara út um
þúfur þegar jólin eru alveg að
koma og tíminn búinn. En ég
er nýbúin að prjóna Frozen
peysu og langt komin með
peysu með fótboltamunstri
sem ég á eftir að útfæra,
spurning hvort þær fara í
jólapakka.
Hvernig færðu hugmyndirnar?
-Ég fæ reyndar oft hinar
furðulegustu hugmyndir og
þykir gaman að grúska á síðum
og breyta og bæta. Góðar
vinkonur mínar eru líka
ómetanlegar við svona grúsk. Ég
er kannski ekki þessi týpíska
handavinnu kona því það er svo
margt skrítið sem heillar mig, t.d.
ætla ég á næstunni að gera upp
gamalt húdd af traktor og gera
eitthvað skondið úr því, mér
þykir svo gaman að reyna að gera
eitthvað úr gömlum hlutum
(drasli) og finna hlutunum nýtt
hlutverk, það er eiginlega alveg
sama hvað það er. Fólkinu mínu í
Freyja smíðaði sér þetta sófaborð. MYNDIR: ÚR EINKASAFNI
sem stendur upp úr hjá mér núna
eru kindurnar mínar sem ég
prjóna og þæfi, þær hafa þróast
með tímanum og eru núna
komnar með gæru. Mér finnast
kindur svo skemmtilegar og þær
eru miklir vinir mínir og þess
vegna fór ég að reyna að búa þær
til heima á eldhúsborði. Ég held
mikið uppá töskuna með hvítu
hrosshúðinni, hana gerði ég frá
grunni, saumaði töskuna, sútaði
skinn af fótunum af reiðhestinum
mínum, sem varð að fella, og setti
skinnið á töskuna. Ég var líka
pínu montin þegar yngra
banabarnið mitt var skírt í
kjólnum sem ég gimbaði. Þetta
eru svona þeir hlutir sem standa
nálægt hjartanu á manni. Hina
töskuna á myndinni saumaði ég
ekki sjálf en húð af þremur
höfðingjum sútaði ég og setti á
hana og ég átti tvo þeirra.
Hve lengi hefur þú stundað
hannyrðir? -Ég byrjaði eins og
svo margir að gera handavinnu í
grunnskóla, mér fannst alltaf
voða gaman þegar kom að þeim
tímum. Mamma var og er enn
alltaf að gera eitthvað í
höndunum og hún er mín
fyrirmynd í því, var alltaf að gera
eitthvað á okkur krakkana og
síðar á barnabörnin. Hún og
pabbi voru líka alltaf að smíða
eitthvað og þaðan hlýtur
spýtuáhuginn að vera kominn.
Ilmur af timbri er besta lykt sem
til er. Eitt sinn vantaði mig
sófaborð, þá varð maður bara að
smíða sér það, svo vantaði mig
stofuskáp, þá bara gerði ég hann
en fékk reyndar góða hjálp við
hurðina, maður bara reddar sér
ef eitthvað vantar. Þótt ég hafi
gaman af að prjóna og geri
talsvert af því þá er ekkert
skemmtilegra en að hafa góða
borvél og sandpappír í
höndunum, þá líður mér vel.
Ég ætla að skora á Jóhönnu
Jósepsdóttur, en hún er mikil
handverkskona.
UMSJÓN
Berglind Þorsteinsdóttir
TILBOÐ Á MÁLNINGU
FRÁ FLUGGER
Vorum að taka í notkun
nýja málningarvél frá Flugger.
Í tilefni af því verður tilboð á vörum frá Flugger
fimmtudaginn 19., föstudaginn 20. og laugardaginn 21.
Hættumatsnefnd Skagafjarðar
Tillaga að hættumati vegna ofanflóða á Sauðárkróki var kynnt á íbúafundi þar
síðastliðinn fimmtudag, 12. nóvember 2015, í samræmi við ákvæði laga nr.
49/1997 og reglugerðar nr. 505/2000.
Tillagan liggur nú frammi til frekari kynningar í Ráðhúsinu að
Skagfirðingabraut 21 á Sauðárkróki til föstudags 18. desember 2015.
Athugasemdir má senda á Jón Örn Berndsen, skipulags- og byggingarfulltrúa,
tölvupóstfang jobygg@skagafjordur.is í síðasta lagi 18. desember 2015.
Hættumat fyrir Sauðárkrók
kringum mig finnst ég stundum
mjög skrítin, en það bara verður
að hafa það.
Hvaða handverk sem þú hefur
gert ert þú ánægðust með? -Það
Gimbaður skírnarkjóll á barnabarnið. Freyja sútaði skinnið á töstkunum sjálf.
Þessa tösku gerði Freyja frá grunni og
notaði skinn af fótunum á reiðhestinum
sínum.
Freyja þæfir mikið ull.
Feykir.is
Smá í Feyki :: Síminn er 455 7171
smáAUGLÝSINGAR
Íbúð óskast leigð
Óska eftir 2-3 herberja íbúð til leigu
á Sauðárkróki eða nágrenni.
Upplýsingar í síma 862 5843.