Feykir - 07.01.2016, Page 8
8 01/2016
Biður um góðviðrasamt sumar
Hvað finnst þér eftirminnilegast sem gerðist á þínu svæði á
nýliðnu ári? -Það er nú erfitt að nefna eitthvað eitt, mér fannst
auðvitað framganga Tindastóls í körfuboltanum sl. vor mjög
skemmtileg og margir skemmtilegir viðburðir sem hér fóru
fram. Ég ætla líka að nefna framkvæmdir vegna fyrirhugaðs
Landsmóts hestamanna á Hólum sem fram fóru sl. haust, það
var mjög gaman að fylgjast með þeim og þeirri jákvæðni sem
byggst hefur upp hér og annars staðar gagnvart þessu móti.
Hver var skemmtilegasta uppákoman að þínu mati?
-Nú verð ég að vera mjög sjálflægur og segja að Drangey Music
Festival á Reykjum á Reykjaströnd 27. júní hafi verið eftir-
minnilegasta uppákoman! Frábær tónlist, æðislegt veður og
yndislegir gestir bjuggu til einhvern galdur sem mjög gaman
var að upplifa.
Hvernig voru jólin og áramótin hjá þér? -Þau voru ósköp
róleg og ljúf, hefðbundin bókalestur, góður matur og samvera
með góðu fólki.
Hvernig spáir þú nýju ári? -Ég hef nokkuð góða tilfinningu
fyrir þessu ári, ég bið um góðviðrasamt sumar og góða heilsu
fyrir mitt fólk, ef það gengur sæmilega eftir verð ég sáttur!
Eitthvað að lokum? -Gleðilegt ár til þeirra sem þetta lesa, vona
að það verði farsælt til sjávar og sveita. /BÞ
Litið um öxl
á nýju ári
Áskell Heiðar Ásgeirsson,
framkvæmdastjóri Viðburðarríkt ehf. og
Landsmóts hestamanna 2016, Sauðárkróki
15/16
Áskell Heiðar (lengst til hægri) á DMF ásamt Aldísi Fjólu systur sinni, Sigtryggi
Baldurs og Emiliönu Torrini. MYND: BÞ
Góð veiði í húnvetnsku
ánum er eftirminnileg
Hvað finnst þér eftir-
minnilegast sem gerðist á
þínu svæði á nýliðnu ári?
-Það sem mér fannst eftir-
minnilegast var mjög góð
veiði í húnvetnsku ánum. Ég
naut góðs af því ásamt góðum
félögum m.a. við veiðar í
Svartá, Blöndu og Hrúta-
fjarðará.
Hver var skemmtilegasta
uppákoman að þínu mati?
-Skemmtilegasta uppákoman
var formleg opnun hjá Pacta
lögmönnum á Sauðárkróki.
Þar mætti mikið af góðu fólki
og ætlun okkar hjá Pacta er að
veita góða og trausta
lögfræðiþjónustu í Skagafirði.
Vonandi verða Skagfirðingar
duglegir að nýta sér þessa
þjónustu því það er auðvitað
forsendan fyrir því að þetta
gangi. Önnur mjög skemmti-
leg uppákoma voru tónleikar
Litið um öxl
á nýju ári
Stefán Ólafsson
hæstaréttarlögmaður hjá Pacta á Blönduósi
15/16
Sæmdur fálkaorðunni
Tónlistarmaðurinn Geirmundur Valtýsson
Tónlistarmaðurinn Geirmund-
ur Valtýsson var á nýársdag
sæmdur heiðursmerki hinnar
íslensku fálkaorðu, við hátíð-
lega athöfn á Bessastöðum.
Orðuna hlaut Geirmundur fyrir
framlag sitt til íslenskrar
tónlistar og heimabyggðar.
Sem kunnugt er hefur
Geirmundur verið vinsæll
tónlistarmaður í áratugi og gefið
út fjölmargar plötur, sungið á
tónleikum og dansleikjum. Nú
síðast gaf hann út plötuna
Skagfirðingar syngja, þar sem
fjöldi skagfirskra tónlistarmanna
syngur ásamt honum sjálfum.
Allt þetta hefur hann gert
meðfram búskap og starfi sínu
sem fjármálastjóri Kaupfélags
Skagfirðinga, en hann lét þar af
störfum nú um áramótin. /KSE
Forsetahjónin ásamt þeim sem sæmdir voru heiðursmerki. MYND: Forseti.is
áramótin voru hefðbundin.
Um jólin höfðum við systur
mína og hennar fjölskyldu hjá
okkur en þau búa í Örebro í
Svíþjóð. Síðan voru þarna tvær
ömmur og einn afi að auki.
Um áramótin er venjulega
opið hús hjá okkur Erlu eftir
miðnætti og fengum við
nokkra góða gesti sem fóru þó
óvenjulega snemma heim að
þessu sinni.
Hvernig spáir þú nýju ári?
-Það er aðallega undir okkur
sjálfum komið hvernig nýtt ár
verður, þó svo að við fáum ekki
öllu ráðið. Ég held að árið 2016
verði mjög gott ár og að svæðið
okkar fari að komast betur í
gang. Þar verða allir að leggjast
á eitt, einstaklingar, fyrirtæki
og sveitarfélög. Samstarf og
samvinna skiptir miklu máli
og auðvitað væri einfaldast að
Norðurland vestra væri eitt
sveitarfélag.
Eitthvað að lokum? -Að
lokum er það bara gleðilegt
nýtt ár og takk fyrir samstarfið
á liðnum árum. /BÞ
Leit að húsnæði fyrsta verkefnið
Menningarfélag Húnaþing vestra stofnað
Rétt fyrir áramót var stofnað
Menningarfélag Húnaþings
vestra. Vilhelm Vilhelmsson og
Sigurvaldi Ívar Helgason stóðu
fyrir stofnun félagsins og
boðuðu til fundar þriðjudaginn
29. desember sl. Tilgangur
félagsins er að hlúa að og
styðja við hvers kyns
menningarstarfsemi í
Húnaþingi vestra og þá
einkum með rekstri húsnæðis
undir slíka starfsemi.
Hugmyndin hafði verið alllengi í
gerjun áður en henni var hrint í
framkvæmd. Í samtali við Feyki
rétt fyrir áramót sagði Vilhelm
að næsta skref væri að leita eftir
hentugu húsnæði, sem til dæmis
gæti hýst tónlistarsköpun,
Áhugasamir gestir á stofnfundinum. MYND: Norðanátt.is
myndlist og aðra menningar-
starfsemi. Hann sagði mikinn
áhuga og grósku í menningarlífi
Vestur-Húnvetninga og bindur
miklar vonir við stofnun hins
nýja félags.
Þeir sem vilja bætast í hóp
þeirra ellefu sem tóku þátt í
stofnun félagsins geta sent
tölvupóst á netfangið
menhunvest@gmail.com. /KSE
hjá okkur í hljómsveitinni
Demó milli jóla og nýárs sem
tókust mjög vel og voru vel
sóttir. Fyrir mig persónulega
var stærsta uppákoman að
verða afi í fyrsta skiptið og að
spila og syngja eitt lag í
kirkjunni á Sauðárkróki við
skýrn afastelpunnar minnar.
Hvernig voru jólin og
áramótin hjá þér? -Jólin og
Breytt fyrirkomulag
Laxveiði í Blöndu næsta sumar
Á vef Lax-á eru kynntar breytingar á
veiðireglum í Blöndu í sumar. Þar segir að
Blanda fóstri ákaflega sterkan sjálfbæran
stofn og vilji sé til að tryggja að svo verði
áfram.
Sem hluti af veiðistjórnun verði settur sanngjarn en
ríflegur kvóti á öll svæði. Ekki verður heimilt að
færa kvóta á milli vakta.
Metveiði var í Blöndu síðastliðið sumar en þá
voru færðir til bókar 4.829 laxar, sem er rúmlega
tvöföldun á fyrra meti en það var 2.777 laxar.
Nánar er greint frá breyttum reglum á hverju
svæði fyrir sig á vefnum Lax-á.is. /KSE