Feykir - 07.01.2016, Page 9
01/2016 9
Þegar haft var samband
við mig og ég beðin að
skrifa pistil í Feyki var ég
aðeins tvístígandi í fyrstu.
Ég hef nú ekki frá svo
miklu að segja þar sem
lífið snýst aðallega um að
vinna, borða og sofa. En
jú, ég ákvað að stíga út
fyrir þægindarammann
og segja frá náminu sem
ég byrjaði á í haust hjá
Farskólanum í samstarfi
við Símey.
Núna í haust settist
ég á skólabekk og tók
fyrir leikskólaliða- og
stuðningsfulltrúanám hjá
Farskólanum og Símey. Það
hefur verið alveg ágætis
tími og hef ég lært ýmislegt
á stuttum tíma, en námið
er samtals fjórar annir eða
50 eininga nám. Það er
kennt á kvöldin einu sinni í
viku með fjarfundabúnaði,
ýmist frá Símey á Akureyri
eða frá Farskólanum á
Sauðárkróki. Nemendur
eru um 40 og eru á víð og
dreif um Norðvesturland,
t.d. á Ísafirði, Hólmavík,
Blönduósi, Siglufirði,
Akureyri og Sauðárkróki.
Um áramótin bætast við
nemendur frá Laugum í
Þingeyjarsýslu og Dalvík.
Konur eru í meirihluta, en
já, það eru líka karlar í
þessu námi, sem er mjög
ánægjulegt. Ég hef frábæra
reynslu af starfsfólkinu
Guðrún Brynja Guðsteinsdóttir, Sauðárkróki, skrifar
Aftur á skólabekk
ÁSKORENDAPENNINN
UMSJÓN kristin@feykir.is
hjá Farskólanum sem
alltaf er tilbúið að hjálpa
og leiðbeina eins því einu
er lagið. Farskólinn tilheyrir
svokallaðri fimmtu stoð í
íslenska menntakerfinu. Ég
rétt slapp inní námið því
aldurstakmarkið er 23 ár.
Þrátt fyrir að námið sé mjög
krefjandi þá gengur mér
afskaplega vel að leysa þau
verkefni sem ég þarf að
vinna.
Farskólinn, miðstöð
símenntunar á Norðurlandi
vestra, býður upp á kennslu
og námskeið í ýmsum
greinum sem vert er að
kynna sér. Ég mæli með því
við alla að leita til Söndru
Hilmarsdóttur náms- og
starfsráðgjafa, en hún er með
ýmis góð ráð fyrir fólk sem er
að velta því fyrir sér hvað það
vill læra.
- - - - -
Ég ætla að skora á
skólasystur mína, Eddu
Maríu Valgarðsdóttur, að
skrifa næsta pistil.
Þórdísi Maríu, fótboltastrákunum
Eyþóri Atla og Birgi Má og ök-
ukappanum Jóhanni Karli.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Arfahreinsa
garðinn.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Engilráð + eldhús
+ snilldarverk = „Computer says
No.“
Hættulegasta helgarnammið?
Snickers, alla daga jafnt.
Hvernig er eggið best? Meðal.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari þínu? Verkkvíði og
frestunarárátta.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? „Gróa á Leiti.“
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Allt hefst þá að er
verið.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Líklega þegar ég, svolítið
stýri, var með mömmu að reka
kýrnar og nautkálfurinn stangaði
mig. Hljóp háorgandi inn í bæ
þegar ég komst á fætur, í fangið
á Kela frænda. Þorði ekki í fjósið
lengi á eftir og er enn smeyk við
nautgripi. Að mannýgt naut elti
mig í draumi var martröð fram
eftir öllum aldri.
Bifreið: Subaru Impreza GL,
árg. 1997. Hestöfl 115,6. Yndi
mitt og eftirlæti sl. 18 ár. Ber
mig örugglega hvert þangað,
sem ég þori á annað borð að
keyra og rúmar ótrúlegt magn
af nauðsynjavarningi, s.s. mold,
þökum, skít sem og garðúrgangi.
Hvernig nemandi varstu? Bara
góður í þeim fögum, sem ég sá
einhvern tilgang með að læra, s.s.
tungumálum en aldeilis afleitur í
stærðfræði og sögu, fannst mér
ekki koma við hverjir börðust við
hverja hvenær og hvers vegna
eða hvort a+b væri =c.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Fermdist
ein í Bergsstaðakirkju, sat ísköld
og nötrandi framan við altarið og
ALLIR í kirkjunni horfðu á MIG,
það var skelfilegt. Athyglissýkin
kom síðar. – En nýja permanentið
var æðislegt og allar gjafirnar:
Úrið, myndavélin, hnakkur
og beisli, skartgripir o.fl. og
veislukaffið í norðurstofunni á
Bergsstöðum.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Kona í bókabúð
og mega lesa allar bækurnar.
Hvað hræðistu mest? Að
eitthvað komi fyrir elsku fólkið
mitt.
Besti ilmurinn? Af nýslegnu
grasi.
Hvað varstu að hlusta á
þegar þú fékkst bílprófið?
Tók bílpróf 23ja ára en þegar
ég var 17 fékk ég áminningu
frá heimavistarstýrunni fyrir að
hækka útvarpið í botn þegar
Presley söng One night í Lögum
unga fólksins, eftir kl. 22:00.
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Kareókí? Spáðu í mig....
Hverju missirðu helst ekki
af í sjónvarpinu? Breskum
og Norrænum þáttum. Núna:
Downton Abbey.
Besta bíómyndin? Fæ aldrei leið
á Bíódögum Friðriks Þórs.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Sundmærinni
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Engilráð Margrét Sigurðardóttir.
ÁRGANGUR: 1941.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Maðurinn minn, til næstum 50 ára, er
Aðalsteinn J. Maríusson. Eigum tvo syni, tengdadætur og
fjögur barnabörn.
BÚSETA: Sauðárkrókur síðan 1975, komum frá Reykjavík.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég fæddist í baðstofunni
á Barkarstöðum í Svartárdal, dóttir hjónanna Halldóru
Bjarnadóttur og Sigurðar Þorkelssonar. Ólst þar upp í miklu
eftirlæti.
STARF / NÁM: Stúdent frá MA ́ 61, kennarapróf ́ 64 / Kennsla 7 ár,
annars skrifstofustörf, nú alsæll iðjuleysingi.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Meira iðjuleysi, kannski ferðalög.
Engilráð
Hvaða teiknimyndapersóna
höfðar mest til þín? Andrés önd
og allt hans „fólk“.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Við Margrét
Danadrottning erum jafngamlar
og nöfnur. Sem smástelpa var ég
afskaplega fegin að þurfa ekki að
verða drottning þegar ég yrði stór.
Er enn við sama heygarðshornið!
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Af svo
mörgu að taka.
Orð eða frasi sem þú notar
of mikið? „...Geri þetta í
fyrramálið...“
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati?
Hver sá, sem hefur stuðlað að
friði og mannréttindum.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Vildi geta
gengið um gamla bæinn heima
en hann var jafnaður við jörðu.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? „Með sjálfum sér verður
hver lengst að fara.“
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu...til Grænlands.
Ef þú ættir að dvelja alein/n
á eyðieyju, hvaða þrjá hluti
tækirðu með þér? Við Alli minn
erum eitt, svo hann hlýtur að
verða með mér; þarf ekki annað,
hann bjargar mér alltaf!
Nefndu eitthvað þrennt sem þér
finnst þú mega til að gera áður
en þú gefur upp öndina: Læra
að steikja pönnukökur, ganga á
Tindastól og fara aftur til Parísar.
Nesquick sigurvegarar
Jólamót Molduxa
Hið sívinsæla Jólamót
Molduxa fór fram í
Íþróttahúsinu á
Sauðárkróki annan í
jólum. Færri lið komust
að en vildu, 18 lið voru
skráð til leiks og stigu
sjálfir Moluxarnir til hliðar
til að hleypa öðrum að.
Samkvæmt Facebook-
síðu Molduxa voru þátttak-
endur um 180, 30 starfs-
menn og 250 áhorfendur.
Mótið hófst kl. 12 en það
voru liðin Skotfélagið og
Nesquick sem spiluðu
æsispennandi úrslitaleik og
voru það liðsmenn Nes-
quick sem stóðu uppi sem
sigurvegarar. Á mótinu var
Skúla V. Jónssyni veitt
samfélagsviðurkenning
Molduxa fyrir dugmikið og
óeigingjarnt starf á sviði
íþrótta í Skagafirði.
Allur ágóði af mótinu
rann til Körfuknattleiks-
deildar Tindastóls. /BÞ
Lið Nesquicks sigraði. MYND:FB SÍÐA JÓLAMÓTS MOLDUXA