Feykir


Feykir - 07.01.2016, Blaðsíða 9

Feykir - 07.01.2016, Blaðsíða 9
01/2016 9 Þegar haft var samband við mig og ég beðin að skrifa pistil í Feyki var ég aðeins tvístígandi í fyrstu. Ég hef nú ekki frá svo miklu að segja þar sem lífið snýst aðallega um að vinna, borða og sofa. En jú, ég ákvað að stíga út fyrir þægindarammann og segja frá náminu sem ég byrjaði á í haust hjá Farskólanum í samstarfi við Símey. Núna í haust settist ég á skólabekk og tók fyrir leikskólaliða- og stuðningsfulltrúanám hjá Farskólanum og Símey. Það hefur verið alveg ágætis tími og hef ég lært ýmislegt á stuttum tíma, en námið er samtals fjórar annir eða 50 eininga nám. Það er kennt á kvöldin einu sinni í viku með fjarfundabúnaði, ýmist frá Símey á Akureyri eða frá Farskólanum á Sauðárkróki. Nemendur eru um 40 og eru á víð og dreif um Norðvesturland, t.d. á Ísafirði, Hólmavík, Blönduósi, Siglufirði, Akureyri og Sauðárkróki. Um áramótin bætast við nemendur frá Laugum í Þingeyjarsýslu og Dalvík. Konur eru í meirihluta, en já, það eru líka karlar í þessu námi, sem er mjög ánægjulegt. Ég hef frábæra reynslu af starfsfólkinu Guðrún Brynja Guðsteinsdóttir, Sauðárkróki, skrifar Aftur á skólabekk ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN kristin@feykir.is hjá Farskólanum sem alltaf er tilbúið að hjálpa og leiðbeina eins því einu er lagið. Farskólinn tilheyrir svokallaðri fimmtu stoð í íslenska menntakerfinu. Ég rétt slapp inní námið því aldurstakmarkið er 23 ár. Þrátt fyrir að námið sé mjög krefjandi þá gengur mér afskaplega vel að leysa þau verkefni sem ég þarf að vinna. Farskólinn, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, býður upp á kennslu og námskeið í ýmsum greinum sem vert er að kynna sér. Ég mæli með því við alla að leita til Söndru Hilmarsdóttur náms- og starfsráðgjafa, en hún er með ýmis góð ráð fyrir fólk sem er að velta því fyrir sér hvað það vill læra. - - - - - Ég ætla að skora á skólasystur mína, Eddu Maríu Valgarðsdóttur, að skrifa næsta pistil. Þórdísi Maríu, fótboltastrákunum Eyþóri Atla og Birgi Má og ök- ukappanum Jóhanni Karli. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Arfahreinsa garðinn. Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Engilráð + eldhús + snilldarverk = „Computer says No.“ Hættulegasta helgarnammið? Snickers, alla daga jafnt. Hvernig er eggið best? Meðal. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu? Verkkvíði og frestunarárátta. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? „Gróa á Leiti.“ Uppáhalds málsháttur eða tilvitnun? Allt hefst þá að er verið. Hver er elsta minningin sem þú átt? Líklega þegar ég, svolítið stýri, var með mömmu að reka kýrnar og nautkálfurinn stangaði mig. Hljóp háorgandi inn í bæ þegar ég komst á fætur, í fangið á Kela frænda. Þorði ekki í fjósið lengi á eftir og er enn smeyk við nautgripi. Að mannýgt naut elti mig í draumi var martröð fram eftir öllum aldri. Bifreið: Subaru Impreza GL, árg. 1997. Hestöfl 115,6. Yndi mitt og eftirlæti sl. 18 ár. Ber mig örugglega hvert þangað, sem ég þori á annað borð að keyra og rúmar ótrúlegt magn af nauðsynjavarningi, s.s. mold, þökum, skít sem og garðúrgangi. Hvernig nemandi varstu? Bara góður í þeim fögum, sem ég sá einhvern tilgang með að læra, s.s. tungumálum en aldeilis afleitur í stærðfræði og sögu, fannst mér ekki koma við hverjir börðust við hverja hvenær og hvers vegna eða hvort a+b væri =c. Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Fermdist ein í Bergsstaðakirkju, sat ísköld og nötrandi framan við altarið og ALLIR í kirkjunni horfðu á MIG, það var skelfilegt. Athyglissýkin kom síðar. – En nýja permanentið var æðislegt og allar gjafirnar: Úrið, myndavélin, hnakkur og beisli, skartgripir o.fl. og veislukaffið í norðurstofunni á Bergsstöðum. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Kona í bókabúð og mega lesa allar bækurnar. Hvað hræðistu mest? Að eitthvað komi fyrir elsku fólkið mitt. Besti ilmurinn? Af nýslegnu grasi. Hvað varstu að hlusta á þegar þú fékkst bílprófið? Tók bílpróf 23ja ára en þegar ég var 17 fékk ég áminningu frá heimavistarstýrunni fyrir að hækka útvarpið í botn þegar Presley söng One night í Lögum unga fólksins, eftir kl. 22:00. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Spáðu í mig.... Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Breskum og Norrænum þáttum. Núna: Downton Abbey. Besta bíómyndin? Fæ aldrei leið á Bíódögum Friðriks Þórs. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Sundmærinni ( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is NAFN: Engilráð Margrét Sigurðardóttir. ÁRGANGUR: 1941. FJÖLSKYLDUHAGIR: Maðurinn minn, til næstum 50 ára, er Aðalsteinn J. Maríusson. Eigum tvo syni, tengdadætur og fjögur barnabörn. BÚSETA: Sauðárkrókur síðan 1975, komum frá Reykjavík. HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég fæddist í baðstofunni á Barkarstöðum í Svartárdal, dóttir hjónanna Halldóru Bjarnadóttur og Sigurðar Þorkelssonar. Ólst þar upp í miklu eftirlæti. STARF / NÁM: Stúdent frá MA ́ 61, kennarapróf ́ 64 / Kennsla 7 ár, annars skrifstofustörf, nú alsæll iðjuleysingi. HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Meira iðjuleysi, kannski ferðalög. Engilráð Hvaða teiknimyndapersóna höfðar mest til þín? Andrés önd og allt hans „fólk“. Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera? Við Margrét Danadrottning erum jafngamlar og nöfnur. Sem smástelpa var ég afskaplega fegin að þurfa ekki að verða drottning þegar ég yrði stór. Er enn við sama heygarðshornið! Hver er uppáhalds bókin þín og/eða rithöfundur? Af svo mörgu að taka. Orð eða frasi sem þú notar of mikið? „...Geri þetta í fyrramálið...“ Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Hver sá, sem hefur stuðlað að friði og mannréttindum. Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færirðu? Vildi geta gengið um gamla bæinn heima en hann var jafnaður við jörðu. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? „Með sjálfum sér verður hver lengst að fara.“ Framlenging: Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...til Grænlands. Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Við Alli minn erum eitt, svo hann hlýtur að verða með mér; þarf ekki annað, hann bjargar mér alltaf! Nefndu eitthvað þrennt sem þér finnst þú mega til að gera áður en þú gefur upp öndina: Læra að steikja pönnukökur, ganga á Tindastól og fara aftur til Parísar. Nesquick sigurvegarar Jólamót Molduxa Hið sívinsæla Jólamót Molduxa fór fram í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki annan í jólum. Færri lið komust að en vildu, 18 lið voru skráð til leiks og stigu sjálfir Moluxarnir til hliðar til að hleypa öðrum að. Samkvæmt Facebook- síðu Molduxa voru þátttak- endur um 180, 30 starfs- menn og 250 áhorfendur. Mótið hófst kl. 12 en það voru liðin Skotfélagið og Nesquick sem spiluðu æsispennandi úrslitaleik og voru það liðsmenn Nes- quick sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Á mótinu var Skúla V. Jónssyni veitt samfélagsviðurkenning Molduxa fyrir dugmikið og óeigingjarnt starf á sviði íþrótta í Skagafirði. Allur ágóði af mótinu rann til Körfuknattleiks- deildar Tindastóls. /BÞ Lið Nesquicks sigraði. MYND:FB SÍÐA JÓLAMÓTS MOLDUXA

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.