Feykir - 28.01.2016, Blaðsíða 2
2 04/2016
Það er alltaf gaman að gera góð kaup, kíkja á útsölur eða
flóamarkaði og sjá hvort maður rekist ekki á einhverjar
gersemar. Ég hef heyrt um fólk sem hefur aldeilis dottið þar í
lukkupottinn, rekist á fágætar bækur, einstaka hönnunar-
mublur eða listaverk á slíkum mörkuðum. Þá hef ég heyrt
um aðra sem hafa fengið
aukasendingar þegar pantað
hefur verið í gegnum netversl-
anir, stundum er það með vilja
gert til að gleðja viðskipta-
vininn og hvetja hann til fram-
tíðarviðskipta.
Ég hef einmitt verslað við
netverslun sem seldi taubleiur og
stundaði slíkt. Eigandinn stakk
alltaf einhverju aukalega í pakk-
ann, ég var alltaf hæstánægð og
stóð mig að því að verða spennt
fyrir næstu kaupum og sjá hvað
leyndist í pakkanum næst.
Veit ekki hvort sama „sálfræðitrixið“ var hugsunin á bakvið
síðustu kaup mín í gegnum netverslun á dögunum, sem í það
skiptið var frá Quepec í Kanada. Ég keypti mér þennan gasalega
flotta notaða mokkajakka og beið spennt eftir sendingunni í
heila tvo mánuði. Um leið og tilkynningin kom brunaði ég á
pósthúsið og sótti jakkann. Mér þótti hann flottari en ég átti
von á, svartur, hlýr og dásamlega mjúkur. Ég smeygði mér í
jakkann og stakk höndunum í vasann - „hvað finn ég hér,“
hugsa ég með mér og tek höndina upp úr vasanum og held á
litlum glærum poka með hvítu dufti. Ég varð ein augu, þessu
átti ég ekki von á… Best er að taka fram að umræddum poka
var þegar í stað komið til lögreglunnar á Sauðárkróki.
Annað hvort hefur seljandi jakkans ætlað að gera svona
rosa vel við mig í von um að gera mig að fastakúnna. Eða þá
að þetta hafi verið „stass“ fyrrum eiganda jakkans. Jakkinn er
líklega frá því milli 1980-90, hann leit út eins og ónotaður
þegar ég fékk hann í hendurnar þannig að fyrri eigandi hlýtur
að hafa átt nóg af peningum og ekki viljað láta sjá sig oftar en
einu sinni í hverri flík. Það að „stassið“ hafi gleymst í
jakkanum styrkir þá tilgátu. Þá gaus upp megn lykt af
permanenti þegar jakkinn var tekinn úr umbúðakassanum.
Þannig að það er dagljóst að jakkinn hefur verið í eigu
skemmtanaglaðrar 80´s poppstjörnu með permó!
Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Berglind Þorsteinsdóttir – berglind@feykir.is & 455 7176, 694 9199
Blaðamenn:
Kristín Sigurrós Einarsdóttir – kristin@feykir.is & 867 3164
Óli Arnar Brynjarsson – oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á fimmtudögum
LEIÐARI
Alltaf að græða…eða hvað?
Rætt um samfélagsleg
áhrif virkjanakosta
Íbúafundur í Skagafirði
Íbúum í Sveitarfélaginu
Skagafirði og Akrahreppi er
boðið til opins íbúafundar á
Kaffi Krók Sauðárkróki
laugardaginn 30. janúar til að
ræða samfélagsleg áhrif
virkjanakosta í Skagafirði. Til
fundarins boðar faghópur 3,
sem meta á samfélagsleg
áhrif virkjanakosta í þriðja
áfanga verndar- og orku-
nýtingaráætlunar, í samvinnu
við við Félagsvísindastofnun
Háskóla Íslands.
„Markmið íbúafundarins er
að fá fram sem gleggsta mynd af
ólíkum viðhorfum íbúa í Skaga-
firði til mögulegra samfélags-
áhrifa þeirra virkjunarkosta í
Skagafirði sem nú eru til
umfjöllunar í rammaáætlun.
Fundurinn er einn af þremur
íbúafundum sem faghópur 3 og
Félagsvísinda-stofnun efna til í
þessum tilgangi; sambærilegir
íbúafundir voru haldnir á
Selfossi 12. desember sl., en sá
fundur fjallaði einkum um virkj-
anakosti í neðri hluta Þjórsár, og
á Kirkjubæjarklaustri 23. janúar
þar sem viðfangsefnið var við-
horf íbúa í Skaftárhreppi til
virkjanakosta í sveitarfélaginu,“
sagði Jón Ásgeir Kalmansson,
nýdoktor við Háskóla Ísland og
formaður faghópsins við Feyki.
Auk Jóns Ásgeirs skipa fag-
hópinn; Ásgeir Brynjar Torfason,
hagfræðingur og lektor við
Viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands, Dóra Guðrún Guð-
mundsdóttir sálfræðingur og
sviðsstjóri Embættis landlæknis,
Magnfríður Júlíusdóttir, land-
fræðingur og lektor við Líf- og
umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands, og Páll Jakob Líndal,
umhverfissálfræðingur og ný-
doktor við Háskólann í
Reykjavík. Faghópnum er ætlað
að leggja mat á samfélagsleg
áhrif þeirra virkjunarkosta sem
eru til umfjöllunar í 3. áfanga
rammaáætlunar, sem nú stendur
yfir (frekari upplýsingar um
rammaáætlun má finna á http://
www.ramma.is/).
„Íbúafundirnir eru meðal
annars hugsaðir sem áfangi í
rannsóknum á áhrifum virkj-
anakosta á íbúa og sveitarfélög.
Þeir fela í sér vissa nýjung þar eð
fundir um þetta efni hafa ekki
verið haldnir áður með sam-
bærilegum hætti hér á landi. Það
er von faghóps 3 að fundirnir
geti verið jákvætt innlegg í
málefnalega umræðu um
virkjanakosti og samfélag í þeim
sveitarfélögum sem þeir eru
haldnir,“ sagði Jón Ásgeir
ennfremur. Félagsvísindastofn-
un mun gera grein fyrir niður-
stöðum þessarar íbúafunda í
skýrslum sem gerðar verða
opinberar á vef rammaáætlunar.
Fundurinn verður frá kl.
13:00-16:00 á Kaffi Krók og er
opinn öllum íbúum sveitar-
félagsins á meðan húsrúm leyfir.
Þátttakendum verður skipt í
minni hópa til að ræða áhrif
fyrirhugaðra virkjana á sam-
félagið. Boðið verður upp á
veitingar. /BÞ
„Langar helst að knúsa alla“
Róbert Daníel er maður ársins 2015 í Austur-Húnavatnssýslu
Lesendur Húnahornsins hafa valið Róbert
Daníel Jónsson, forstöðumann í Íþrótta-
miðstöðinni á Blönduósi, sem mann ársins í
Austur-Húnavatnssýslu árið 2015. Róbert
hefur verið iðinn við að taka myndir af
húnvetnskri náttúru og mannlífi og deilt þeim
á veraldarvefinn þar sem þær hafa vakið
athygli margra á fegurð svæðisins og
áhugaverðum stöðum í sýslunni. Tilkynnt var
um valið á þorrablóti Vökukvenna sem haldið
var í Félagsheimilinu á Blönduósi sl.
laugardagskvöld.
„Ég var ótrúlega ánægður og stoltur að fá þessa
viðurkenningu. Ég vona að ég eigi hana skilið og
ég geti haldið áfram á þessari braut að hjálpa til
við að kynna Austur-Húnavatnssýslu,“ sagði
Róbert í samtali við Feyki. Þegar hann er spurður
hvort að tilnefningin hafi komið honum á óvart
viðurkennir Róbert að hann hafi ekki alveg komið
að fjöllum. „Ég væri að ljúga ef ég segði nei því
margir höfðu komið til mín, frá því í desember
og fram að þorrablóti Vökukvenna þar sem
niðurstaðan í valinu var kynnt, og sagst ætla að
Róbert og fjölskylda. MYND: ÚR EINKASAFNI
kjósa mig því það væri þakklátt fyrir mitt framlag
til samfélagsins. Þannig að mig var farið að gruna
að þetta gæti gerst. Það var samt svo skrítið, öllum
þykir gaman að fá hrós og að fólk segi fallega hluti
um það, en ég var farinn að verða smá stressaður
þegar fólk nefndi það að ég ætti að vera valinn
maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Það
fannst mér svo stór og mikil viðurkenning,“ segir
Róbert og bætir við að fullt af fólki í Austur-
Húnavatnssýslu hafi verið að gera flotta hluti á
árinu 2015. „Því bjóst ég alls ekki við þessu fyrr en
margir fóru að koma til mín og segja mér að þau
hefðu kosið mig.“
Að lokum segist Róbert vera þakklátur og
hamingjusamur. „Mér finnst að ég eigi heima á
besta stað í heimi og langar helst að knúsa alla.“
Feykir óskar Róberti til hamingju. Lesendur
Feykis hafa í gegnum tíðina fengið að njóta
myndasnilli Róberts í blaðinu en þess má geta að
mynd eftir hann prýðir forsíðu blaðsins. /BÞ
Jesus Christ Superstar
frumsýnt um páskana
Æfa rokkóperu í Miðfirði
Ungmennafélagið Grettir í Miðfirði ætlar að
frumsýna rokkóperuna Jesus Christ
Superstar í Félagsheimli Hvammstanga um
páskana en æfingar standa nú yfir.
Leikstjóri er Sigurður Líndal. Öll tónlistin er í
höndum heimamanna.
Daníel Geir Sigurðsson er tónlistarstjóri og
Ingibjörg Jónsdóttir heldur utan um skipulag
sýningarinnar. Alls munu tuttugu og fimm
manns taka þátt í sýningunni og að auki verða tíu
manns baksviðs. /HÚNI.IS
Opið fyrir umsóknir
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra
Nú er opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Norðurlands
vestra og eru starfsmenn SSNV með vinnustofur fyrir umsækj-
endur til að aðstoða umsækjendur við gerð umsókna. Þessa
vikuna eru vinnustofur opnar í Húnaþingi, Hvammstanga,
Blönduósi og Skagaströnd en í Skagafirði í næstu viku.
Sjóðurinn veitir styrki til menningarstarfs, atvinnuþróunar og
nýsköpunar og verður ein aðalúthlutun á þessu ári. Umsóknar-
frestur er til og með 15. febrúar. Sjá auglýsingu bls. 3. /BÞ