Feykir - 28.01.2016, Blaðsíða 4
4 04/2016
Lumarðu á frétt?
Hafðu samband við Feyki
í síma 455 7176 eða sendu póst á feykir@feykir.is ...allir með!
Vikuna 17.–23. janúar var tæpum 117 tonnum landað á Skagaströnd. Þá var landað tæpum
fimm tonnum á Hofsósi, rúmum 300 tonnum á Sauðárkróki og tæpum fjórum tonnum á
Hvammstanga lágu. Alls gera þetta tæp 427 tonn á Norðurlandi vestra. /BÞ
Aflatölur 17.–23. janúar 2016 á Norðurlandi vestra
Málmeyjan með tæp 190 tonn
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Alls á Skagaströnd 116.823
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Lína 4.535
Alls á Hofsósi 4.535
SAUÐÁRKRÓKUR
Þytur SK 18 Lína 160
Klakkur SK 5 Botnvarpa 111.190
Málmey SK 1 Botnvarpa 189.842
Hafey SK 10 389
Alls á Sauðárkróki 301.581
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 3.955
Alls á Hvammstanga 3.955
SKAGASTRÖND
Addi afi GK 97 Landb. lína 20.254
Alda HU 112 Landb. lína 24.983
Dagrún HU 121 Þorskanet 4.141
Guðmundur á Hópi Landb. lína 26.778
Hjördís HU 16 Landb. lína 5.410
Stella GK 23 Landb.lína 22.831
Sæfari HU 200 Landb. lína 2.439
Ölli Krókur GK 211 Landb. lína 9.987
Áhyggjur af fjölgun
umferðaslysa
Húnaþing vestra
Morgunblaðið fjallaði á vef
sínum Mbl.is um að aukin
tíðni umferðaslysa í Húnaþingi
vestra valdi miklum áhyggjum.
Rætt VAr við Kristján
Þorbjörnsson, yfirlögreglu-
þjónn á Blönduósi, og Svein
Karlsson, bifvélavirkja á
Borðeyri við Hrútafjörð sem
hefur þjónustað lögregluna á
Blönduósi undanfarin 20 ár
með dráttarbíl á svæðinu frá
Víðidalsá upp á miðja
Holtavörðuheiði. Báðir segja
þeir sl. ár hafa verið
sérstaklega annasamt.
„Ég hef orðið miklar áhyggjur af
aukinni tíðni umferðarslysa
hérna á svæðinu. Oft hefur
þetta verið slæmt en ég hef
aldrei verið kallaður út oftar en
á síðasta ári,“ segir Sveinn en
hann hefur verið kallaður út
vegna 60 óhappa á svæðinu,
langflest á hringveginum. Í
þessum óhöppum dró Sveinn
burtu um 40 ónýtar bifreiðir og
í sumum tilvikum urðu alvarleg
slys á fólki. Rætt er um mögu-
legar skýringar á þessari aukn-
ingu umferðaslysa og Sveinn
vill ekki meina að skýringin
liggi í slæmum vegum. Þjóð-
vegurinn sé yfirleitt beinn og
sléttur, lítið er um brattar
brekkur og að þjónustan á
vegunum sé jafnframt mjög
góð. Hann segir einn kafla þó
verri en aðra, þ.e. í kringum
brúna yfir Miklagil á norðan-
verðri Holtavörðuheiði. Þar
safnist saman snjór í suðvestan-
átt sem geti gert ökumönnum
lífið leitt. Þá segir Sveinn einnig
nokkur óhöpp hafa orðið á
malarvegunum á Vatnsnesi og á
Laxárdalsheiði.
Ein möguleg skýring er sögð
vera aukning ferðamanna á
svæðinu og þátt þeirra í um-
ferðarslysum. Sveinn segir er-
lenda ferðamenn nokkuð áber-
andi í seinni tíð, helst sé það í
minniháttar óhöppum þegar
þeir aka út af eða lenda í öðrum
vandræðum, t.d. á Vatnsnesinu.
Útköll af því tagi hafi verið
sérlega áberandi núna yfir
hátíðarnar en þrjú slík voru á
síðasta aðfangadag jóla.
Tveimur þeirra sinntu björg-
unarsveitirnar og hefur einnig
verið mikið að gera hjá þeim,
sérstaklega vegna óveðurs á
Holtavörðuheiði.
Þá segir Sveinn aksturslag
ökumanna ekki gott og að hann
verði mikið var við aukið
tillitsleysi á vettvangi óhappa,
ekið sé framhjá á fleygiferð og
án tillits til aðstæðna. „Maður er
í rauninni í stórhættu þegar
maður er að athafna sig á
vettvangi og draga bíla upp á
veg. Þá þarf helst að hafa
lögregluna á staðnum með
blikkandi ljós til að vekja athygli
á okkur,“ segir Sveinn.
Samanburður á
fjölda slysa erfiður
Í samtali við Morgunblaðið
segir Kristján Þorbjörnsson,
yfirlögregluþjónn á Blönduósi
til margra ára, álagið vera meira
í vestursýslunni, enda tilheyri
Holtavörðuheiðin henni. Hann
segist vel geta tekið undir
áhyggjur Sveins á Borðeyri af
fjölgun umferða-slysa á
svæðinu.
Kristján segir samanburð á
milli ára erfiðan þar sem allra
minnstu óhöppin séu ekki alltaf
skráð og fari lögreglan því ekki í
öll útköll. Á þessu stigi sé því
ekki hægt að fullyrða að fleiri
slys hafi orðið í Húnaþingi
vestra á síðasta ári en undanfarin
ár. Með fjölgun erlendra
ferðamanna í umferðinni segir
Kristján erindum og beiðnum
hins vegar hafa fjölgað. Nú sé
kallað á aðstoð í hvert sinn sem
ferðamenn festa sig í skafli eða
lenda í öðrum vanda, sama
hversu smávægileg atvikin eru.
Lögreglan taki ekki lengur að
sér að draga bíla upp á veg og
því sé oftar beðið um þjónustu
dráttarbíls eða björgunarsveita
en áður. Einnig tekur Kristján
undir með Sveini að ökumenn
sýni litla tillitssemi á vettvangi
slysa, þeir hægi þó eitthvað á
þegar þeir sjái blikkandi ljós
lögreglu. /BÞ
Var fjarverandi eina almennilega
sumardaginn í Skagafirði
almennilegi sumardagurinn var í Skagafirði
(sagt með beiskju í röddinni).
Það sem ég man helst eftir í fljótu bragði er
sennilega mest eitthvað tengt mér og mínum,
þá kemst upp um hvað ég er sjálfhverf
manneskja. Ekki hægt að síga eftir eggjum í
Drangey vegna veðurs. Bókasafnið og sund-
laugin lokuð lengi vegna viðgerða, jarlinn faðir
minn sem vanur er að synda á hverjum degi
var svo heppinn að eiga tvær einkalaugar til að
nota á meðan. RÚV sýndi beint frá sauðburði
hjá Klöru „systur systur“ minni og Atla á Syðri-
Hofdölum, frábært framtak og skemmtilegt.
Björgunarsveitin mín, Skagfirðingasveit, hélt
upp á 50 ára afmæli, Motocrossbraut Vél-
hjólaklúbbs Skagafjarðar var grafin í sundur
vegna virkjunarframkvæmda í Gönguskarðsá,
ruslahaugunum á Reykjaströnd loksins lokað
og þótt ótrúlegt megi virðast urðu til nýjar
holur í Reykjastrandaveginum! Samruni Arion
banka og Afls Sparisjóðs. Geirmundur hætti
hjá Kaupfélaginu... og fékk loksins fálkaorð-
una. Segið svo að það gerist aldrei neitt í
Skagafirði!
Hver var skemmtilegasta uppákoman að
þínu mati? -Það er ótrúlega margt sem kemur
upp á hjá mér, en sem betur fer yfirleitt ekkert
alvarlegt heldur eitthvað sem hægt er að gera
grín að eftirá og þá deili ég því stundum með
öðrum. Hér er eitt dæmi frá síðasta ári sem ég
tók af Facebook veggnum mínum: „Getur
verið að ég sé kannski ekki klaufsk heldur
frekar ótrúlega lagin? Í gær tókst mér að húkka
bílbeltinu óvart utan um sætisstillinguna
þannig að þegar ég tók beygjuna frá sjoppunni
þá sturtaði ég sjálfri mér í aftursætið á
imprezunni... ég er ekki viss um að margir leiki
þetta eftir! Verst að pylsan var ekki eins lagin að
halda sér í brauðinu og rúllaði yfir mig alla
remolaði og tómatsósu þegar ég lá þarna af-
velta og ósjálfbjarga.... og ég var að fara á fund.
Hvernig voru jólin og áramótin hjá þér?
-Þegar ég var búin að koma upp öllum
útiseríunum án þess að slasa mig alvarlega þá
gekk allt eins og í sögu. Ég átti frábær jól og
áramót með mínum nánustu.
Hvernig spáir þú nýju ári? -Ég er nú enginn
spámaður, en ég ætla að trúa því að þetta verði
gott og skemmtilegt ár.
Eitthvað að lokum? -Vil bara nota tækifærið
og óska öllum gleðilegs árs og þakka þeim, sem
eiga það skilið, fyrir það liðna. /BÞ
MYND: ÍRIS BJÖRK HLÖÐVERSDÓTTIR
Litið um öxl
á nýju ári
Ásta Birna Jónsdóttir
bankastarfsmaður, björgunarsveitarkona og margt margt fleira
15/16
Hvað finnst þér eftirminni-
legast sem gerðist á þínu svæði
á nýliðnu ári? -Eftirminnilegast
á svæðinu? Það að ég var afskap-
lega lítið á svæðinu! Elti kær-
astann á allar mótorhjólaspyrnur
og viðburði sem hann fann. Það
var reyndar eftirminnilegt að
hann sló Íslandsmet í öllum
fjórum greinunum sem hann
keppti í, sennilega er ég lukku-
gripur! Ég var meira að segja
fjarverandi þegar Drangey Music
Festival var haldið nánast í hlað-
varpanum hjá mér, þegar eini