Feykir


Feykir - 28.01.2016, Blaðsíða 7

Feykir - 28.01.2016, Blaðsíða 7
04/2016 7 Ég heiti Harpa Sif, er dóttir Jóns Eðvalds og Lindu Nínu, 26 ára, búsett í Gautaborg og 2015 var árið mitt. Árið sem ég sagði upp vinnunni, pakkaði öllu (eða þið vitið aldrei öllu en eins nálægt því og ég komst) ofan í einn bakpoka og fór í fjögurra mánaða reisu um allan heim. Stoppaði svo á Íslandi í nokkrar vikur áður en ég byrjaði aftur að pakka til að flytja til Gautaborgar og byrjaði þar í meistaranámi í fjármálum. En ég er ekkert að fara ljúga hérna og segja að þetta hafi alltaf allt verið frábært. En svo heilt yfir var þetta alveg hreint magnað ár. Ég ferðaðist með Söndru Björk vinkonu minni, sem ég mun líklega aldrei geta þakkað almennilega fyrir að hafa þolað mig allan þennan tíma. Ég get verið svo fjandi dramatísk, sjáiði til. En við byrjuðum í Bandaríkjunum og settum staðalinn á öryggismálum í ferðinni. Sandra gleymdi nefnilega vegabréfinu sínu í fyrstu flugvélinni og ég gleymdi síðan veskinu mínu á bar í LA en þetta fattaðist allt tiltölulega snemma og það var bara búið að ræna dollurunum úr veskinu en engu sem skipti máli. Fyrirgefðu elsku mamma að ég sagði þér aldrei frá þessu. En svona til að fara létt yfir aðalatriðin þá var Fiji fallegasta landið og hugtakið „Fiji time“, sem þýðir í rauninni að ekkert gerist á settum tíma heldur bara þegar það hentar, hentar mér sérstaklega vel. Á Nýja Sjálandi fórum við í fallhlífarstökk, sem var best í heimi og mér leið eins og ég gæti sigrað heiminn. Þangað til að ég ákvað að fara í teygjustökk eða þegar ég stóð á sillunni, horfði niður í 134 m hæð og var beðin um að stinga mér tignarlega. Ég get sko lofað ykkur því að það var ekkert tignarlegt við þetta stökk mitt, ég var meira svona eins og mjög tauga- veikluð rækja. Svo keyrðum við um 3.000 km á vitlausum vegarhelming og til að bæta gráu ofan á svart þá þekki ég ekki muninn á hægri og vinstri, sem orsakaði eitt öskur eða tvö – en við lifðum þetta allt saman af. Á Balí lærðum við á brimbretti, klifum eldfjall og vorum viku í jóga og hugleiðsluslökun. Það var alltof gott og svo fór maður í hraðbankann og tók út einhverjar milljónir, í rúbíum reyndar, en það var samt ágætis tilfinning ef ég á að segja eins og er. Við tókum svo kafararéttindin á Tælandi sem var algjör snilld, ég kafnaði reyndar næstum því þar sem ég varð vitni af fisk bíta ítrekað í rassinn á Söndru. Get ekki útskýrt hvað það er erfitt að springa úr hlátri í kafi. Tubing í Laos var svo skemmtilegasta djammið sem við tókum. Það byrjaði á bar, þú færð slöngu, ferð í ánna fyrir neðan og lætur þig fljóta niður á næsta bar og svo er þetta endurtekið nokkrum sinnum. Bestu vinkonur okkar þennan daginn, týndu öllu sem þær tóku með sér en við Sandra, orðnar nokkuð sjóaðar þarna, týndum engu. Nema ég týndi sólgleraugunum mínum og sandölunum, en ég meina síminn, kortið og peningarnir komu með mér alla leið niður ánna. Geri aðrir betur! Víetnam var uppáhalds landið mitt, get ekki útskýrt nákvæmlega hvað það var en ég ætla pottþétt aftur þangað. Indland var svo áhugaverðasta landið sem við fórum til, ég bjóst við engu nema viðbjóði og langaði satt besta segja ekkert þangað. En það kom mér sko aldeilis á ÁSKORENDAPENNINN UMSJÓN berglind@feykir.is svokölluðum rauðum hópi um þvottahúsið. Þeir ná í þvottinn og brjóta hann saman og ganga svo frá. „Með þessari æfingu þjálfa þeir liðsheildina og að hjálpast að og gera þeir þetta af mikilli alúð og áhuga. Stúlkurnar í bláa hópnum fóru á haust- dögum í vettvangsferð á smíða- verkstæði Skagastrandar og fengu að skoða sig um þar. Þær fengu gefins timbur til þess að nýta í hópatíma og báru þær plankana alveg sjálfar alla leið aftur í leikskólann, vaskar stúlkur með krafta í kögglum,“ segir María og hlær. Stúlkurnar og drengirnir hittast svo á sameiginlegum söngfundi á föstudögum og í sameiginlegu vali einu sinni á dag, einnig deila þau útisvæðinu saman. „Því hefur verið haldið fram að markmið Hjallastefn- unnar sé það að gera alla eins, en vitanlega fer því fjarri. Við viðurkennum bæði menningu drengja og stúlkna en auðgum reynslu beggja með uppbótar- vinnunni. Þegar við tölum um uppbótarvinnu þá er átt við að við kennum og æfum hlutverk og athafnir sem samfélagið hefur eignað einu kyninu fram yfir hitt, t.d. að ganga frá þvotti eða smíða. Drengir æfa nánd og að orða tilfinningar sínar, að hjálpast að og skiptast á. Stúlkur æfa hins vegar leiðtogahæfnina, kjarkinn og sjálfstæðið. Bæði kynin fá auðvitað tækifæri til þess að æfa alla þessa hluti en lögð er áhersla á að vinna upp hæfni á þeim sviðum sem kynin gætu farið á mis við í hinu daglega lífi.“ María segir frá táknum leikskólans, bæði inn á við og út á við. Eitt táknið er fáni og merki Hjallastefnunnar sem myndar H með þaki en það er alþjóðlegt tákn Bliss-kerfisins svonefnda fyrir skjól, stúlka og drengur eru í sitt hvorum hlutanum og er skírskotun í kynjauppeldi Hjalla- stefnunnar. Börnin leiðast sem er tákn fyrir þjálfun kynjanna í samskiptum og vináttu. Blómið milli þeirra er tákn fyrir tengsl stefnunnar við náttúruna og þá áherslu sem lögð er á að rækta virðingu fyrir umhverfi og samfélagi. Annað táknið er notkun skólabúninga barna og starfs- fólks skólans. „Markmiðið með notkun skólafatnaðar er marg- þætt en sem dæmi má nefna að með samskonar skólafatnaði styrkist liðsheild meðal barn- anna, samkeppni minnkar og öll börn mæta í þægilegum og slitsterkum vinnufatnaði á degi hverjum. Við fengum heim- sóknir frá nokkrum nemendum unglingastigs Höfðaskóla síðast- liðið vor og tóku þau þátt í starfinu okkar í hálfan dag. Þeir nemendur komu í sínum eigin fötum en börnin á leikskólanum tóku ekki í mál að vinir þeirra væru ekki í skólafötum og allir unglingarnir fengu lánaða boli á meðan á heimsóknunum stóð,“ segir hún og hlær. „Svo er líka svo yndislegt að sleppa við það að ákveða í hverju kona á að fara í vinnuna á hverjum degi og skella sér bara í vinnufötin. Einnig er það frábært þegar kemur að börnunum og ég sem Hjallastefnu-mamma er mjög ánægð með skólafötin.“ „Framtíðin er björt á Barna- bóli og hlakkar okkur til þess að takast á við áskoranir hvers dags með gleði í hjarta,“ segir María að lokum. Harpa Sif Jónsdóttir frá Sauðárkróki – búsett í Gautaborg Hvernig toppa ég árið 2015? óvart, ótrúlega fallegt en samt svo óhreint, með svakalega sögu og langt frá öllu sem maður er vanur og svo var maturinn líka ólýsanlega góður. Í Úganda fórum við svo í fjallgöngu til að eyða klukkutíma með villtum górillum. Ég er sko hrædd við hunda, trúi að þeir geti étið mig, en nei, nei, það er frábær hugmynd að eyða klukkutíma af lífi mínu, mögulega síðasta klukkutímanum, með villtum górillum einhverstaðar lengst upp í fjalli. Svo var ég líka í versta formi lífs míns, búin að vera troða í mig Naan brauði á Indlandi eins og ég ætti lífið að leysa og var svo fárveik í Abu Dhabi vikuna áður og því engan veginn tilbúin í einhverja 4-8 tíma fjallgöngu. En ég lifði þetta af, náði sjálfsmynd með górillu og „brunaði“ svo til baka. Allt í einu voru fjórir mánuðir liðnir og ég mætt heim í góðar þrjár vikur áður en næsta ævintýri byrjaði. Gautaborg var allt öðruvísi ævintýri og krafðist þess ekki af mér að vera með bakpoka (sem ég innilega hata enn þann daginn í dag) né að vera endalaust á flandri úti um allt. Hér er ég búin að kynnast frábæru fólki, líkar vel við námið og get alveg séð það fyrir mér að vera hérna í nokkurn tíma. En samt sem áður situr aðeins í mér hvað þurfi til svo ég geti toppað árið 2015. - - - - - Ég skora á Ásu Maríu H. Guðmundsdóttir frænku mína að taka við pennanum. „Unnið er markvisst að því að öll börn finni fyrir öryggi og væntumþykju á hverjum degi,“ segir María. Kjarnakonur frá Barnabóli á Skagaströnd.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.