Feykir - 28.01.2016, Blaðsíða 6
6 04/2016
og þá þurfum við bara að æfa
okkur og gera betur næst.“
Umhverfi einfalt
og allir hlutir
hafa tilgang
Hjallastefnan er heildstæð
íslensk uppeldisstefna sem
byggir á kenningum Margrétar
Pálu Ólafsdóttur. María útskýrir
að setningin: „Engin lausn er
nógu góð ef hún virkar ekki
frábærlega fyrir alla“ er eitt af
opinberu markmiðum stefn-
unnar sem menntafélags. „Við
sjáum hversu vel orðin eiga við á
hverjum degi á Barnabóli.
Auðvitað erum við jafn misjöfn
og við erum mörg og Hjalla-
stefnan leggur mikið upp úr því
að hvert barn fái að njóta sín sem
einstaklingur. Unnið er mark-
visst að því að öll börn finni fyrir
öryggi og væntumþykju á
hverjum degi.“
Skólaárið byggist á lotukerfi
sem María segir auðvelda allt
starf með börnunum og gefi kost
á því að þjálfa alla þá eiginleika
sem æskilegt er að börn tileinki
sér sem samfélagsþegnar. „Við
hefjum haustið á agalotu og
rifjum þá upp þann ramma sem
starfið okkar inniheldur á
hverjum degi . Öll börn eiga sitt
eigið merkta pláss, bæði í
fataklefa, við matarborðið og svo
í leikstofum þar sem hóparnir
eiga sína valfundi og samverur.
Þetta tryggir öllum jafn stórt
pláss og hjálpar börnunum að
hjálpa sér sjálf og að vera örugg í
umhverfinu. Svo tekur sjálf-
stæðilotan við, þá samskipta-
lotan, jákvæðnilotan, vináttu-
lotan og svo að lokum
áræðnilotan. Hver lota spannar
fjórar vikur og endar hver þeirra
á uppskeruviku,“ útskýrir hún.
„Umhverfið okkar er einfalt
og allir hlutir hafa tilgang í hinu
daglega starfi. Sjónmengun er í
algeru lágmarki og veitir það
kyrrð og ró í umhverfinu sem er
börnum mikilvægt, og þá sér-
staklega börnum sem glíma við
einhverskonar raskanir. Allt er
kjarnað og merkt og við nýtum
allan okkar efnivið til hins
ýtrasta, enginn óþarfi hér,“
útskýrir María og brosir. Hún
segir nýjar rannsóknir hafa sýnt
fram á að minni hávaði mælist í
skólum Hjallastefnunnar. Því sé
að miklu leiti að þakka að
hópastærðum er haldið fá-
mennum og allt rými leikskól-
ans er nýtt, þannig að börnin
dreifast vel um leikskólann í
litlum hópum. „Við nýtum ávallt
leikefni eða opinn-efnivið þar
sem börnin hafa frjálsar hendur
í sköpun og ímyndunaraflið
leikur lausum hala. Börn eiga
flest talsvert af dóti heima hjá sér
og með því að bjóða upp á
opinn-efnivið þá bjóðum við upp
á aðra leikreynslu en heimilin,
enda er hlutverk leikskólans að
vera viðbót við heimili barnanna.
Svo ef þið komið í heimsókn til
okkar á Barnaból þá munuð þið
ekki sjá neitt hefðbundið dót
heldur fjölnota trékubba, dýr,
risavaxna púða og dýnur og
allskyns föndurefni,“ segir María
og kímir.
Með samskonar
skólafatnaði styrkist
liðsheild og samkeppni
minnkar
Á Barnabóli er unnið eftir
Aðalnámskrá Leikskóla og
einnig Kynjanámskrá Hjalla-
stefnunnar. „Í Hjallastefnuskól-
um er kynjaskipting notuð til að
tryggja jafnræði stúlkna og
drengja og gefa báðum kynjum
uppbót á þeim sviðum sem ekki
tilheyra hefðbundnum kynhlut-
verkum. Kynjanámskráin er
birtingarmynd á hugsjónum
Hjallastefnunnar um jafnrétti
stúlkna og drengja. Í hinu
kynjaskipta skólastarfi er mark-
miðið að gera báðum kynjum
jafnhátt undir höfði og mæta
ólíkum þörfum þeirra. Jafnframt
er markmiðið að gefa þeim kost
á að starfa og leika á eigin
forsendum þar sem menning
beggja kynja er virt og viður-
kennd,“ útskýrir hún.
Sem dæmi nefnir María að á
miðvikudögum sjá drengirnir í
Yndislegt að heyra litlar
raddir kalla: Bíddu kæri vinur
Miklar breytingar hafa átt sér stað á Leikskólanum Barnabóli
á Skagaströnd frá því að Hjallastefnan var innleidd fyrir rúmu ári síðan
Leikskólinn Barnaból á
Skagaströnd hefur verið
starfandi frá árinu 1977. Árið
2014 tók Hjallastefnan ehf. yfir
rekstur skólans. „Innleiðingin
gekk eins og í sögu og tók
starfsfólkið, sem og foreldrar
og börn, stefnunni og nýjum
áherslum í starfinu með
opnum örmum og gleði,“ sagði
María Ösp Ómarsdóttir í
samtali við Feyki. María er
meðstýra og daglegur
stjórnandi skólans og vinnur
hún náið með Þorgerði Önnu
Arnardóttur skólastýru, sem sá
um að innleiða Hjallastefnuna
á Barnabóli.
Nú hefur Barnaból verið Hjalla-
stefnuleikskóli í rúmt ár og
miklar breytingar hafa verið
gerðar bæði á húsakosti og
starfsháttum. „Húsnæði leik-
skólans var tekið í gegn, málað að
innan og leikfangalager fjar-
lægður. Einnig höfum við tekið
niður rólurnar sem voru á
útisvæðinu okkar og í staðinn
fengum við risavaxinn reka-
viðardrumb sem gaman er að
klifra í,“ útskýrir María um þær
miklu breytingar sem hafa átt sér
stað undanfarið ár.
Á Barnabóli eru 36 börn á
tveimur svonefndum kjörnum,
VIÐTAL
Berglind Þorsteinsdóttir
yngri kjarna og eldri kjarna.
María segir frá því þegar tíu
starfskonur skólans fóru í
starfskynningu og þjálfun á
leikskólanum Hjalla í Hafnarfirði
og voru þar í nokkra daga við
leik og störf. „Það að tilheyra
Hjallastefnunni er eins og að
vera komin inn í risastóra mjög
hamingjusama fjölskyldu og eru
samskiptin okkar við Hjalla-
systur og -bræður okkar með
besta móti. Stjórnendur hittast
reglulega og svo hittist stór-
fjölskyldan öll á ráðstefnu einu
sinni á ári að hausti.“ Í starfs-
kvennahópnum segir María
jákvæðnina ráða ríkjum og er
mikið lagt upp úr því að ræða
um uppbyggjandi og skemmti-
lega hluti. Neikvæðni, slúður og
pólitík sé ekki í boði og er gleðin
nýtt í öllu starfi, bæði með
börnum og í samskiptum við
foreldra og fjölskyldur nemenda.
„Við tölum okkar eigið tungumál
og má oft heyra setningar eins og
„nú skulum við kjarna okkur“
eða „gerist á bestu bæjum kæri
vinur“. Það er okkur mjög
mikilvægt að samskipti okkar
við nemendur séu jákvæð og við
reynum eftir fremsta megni að
fara eftir þeirri frábæru reglu að
ekki segja ekki. Börnin læra það
sem fyrir þeim er haft og er
yndislegt að heyra litlar raddir
kalla „bíddu kæri vinur“ í leik á
útisvæði,“ segir María og brosir.
Hún bætir við að ávallt sé reynt
að hafa hugfast að allir geti
ruglast, bæði fullorðnir og börn.
„Við erum líka alltaf að æfa
okkur og segjum það statt og
stöðugt að allir ruglast einhvern
tímann, bæði börn og fullorðnir
Líf og fjör í rennibrautinni á Barnabóli.
MYNDIR: LEIKSKÓLINN BARNABÓL
„Börnin hafa frjálsar hendur í sköpun og ímyndunaraflið leikur lausum hala. Börn eiga flest talsvert af dóti heima hjá sér og með því að bjóða upp á opinn-efnivið þá
bjóðum við upp á aðra leikreynslu en heimilin,“ segir María.