Feykir - 28.01.2016, Side 3
04/2016 3
Harður árekstur
á Sauðárkróki
Nokkuð um umferðaóhöpp undanfarna vikuna
Tveir bílar skullu harkalega
saman á Aðalgötu á
Sauðárkróki um tvöleytið á
þriðjudag. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
Sauðárkróki slasaðist
ökumaður annars bílsins
lítillega og var hann fluttur á
sjúkrahúsið á Akureyri.
Slysið atvikaðist þannig að
bifreið, sem var á leið út af
bílastæði hjá Trésmíðaverk-
stæðinu Ýr, ók í veg fyrir bíl sem
keyrði norður Aðalgötuna. Bíl-
arnir skemmdust talsvert og er
annar þeirra talinn ónýtur.
Hinum var ekið af vettvangi.
Þá varð útafakstur við Brekku-
kot í Óslandshlíð sl. föstudag þar
sem bíllinn endaði ofan í skurði.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var ökumaðurinn talinn
með minni háttar meiðsl, hann
var fluttur til skoðunar á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
á Sauðárkróki. Bíllinn var dreginn
af vettvangi með kranabíl.
Sama dag átti sér stað
umferðaóhapp í Húnaþingi
vestra þar sem bíl var ekið utan í
vegrið við Brú í Hrútafirði. Engin
slys urðu á fólki og var bíllinn
fjarlægður af eiganda. /BÞ
Er styrkur í þér?
Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um
styrki til menningarstarfs og atvinnuþróunar og nýsköpunar. Á árinu 2016
verður ein aðalúthlutun með umsóknarfresti til og með 15. febrúar nk.
Umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið umsoknir@ssnv.is en
umsóknargögn og nánari upplýsingar má finna á ssnv.is
Þau verkefni hafa forgang sem uppfylla
eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
a) Verkefni sem falla að markmiðum
og áherslum Sóknaráætlunar
Norðurlands vestra 2015-2019.
b) Verkefni sem stuðla að nýsköpun,
fjölbreytni og aukinni fagmennsku
í menningarstarfi og menningar-
tengdri ferðaþjónustu.
c) Verkefni sem efla samstarf á sviði
menningar og atvinnulífs og fjölga
atvinnutækifærum á Norðurlandi
vestra.
d) Verkefni sem stuðla að nýsköpun
og atvinnuþróun og nýtingu
auðlinda svæðisins til atvinnu-
sköpunar á Norðurlandi vestra.
e) Verkefni sem eru til þess
fallin að stuðla að fjölbreyttari
atvinnutækifærum fyrir konur og
ungt fólk á svæðinu.
Nánari upplýsingar og aðstoð veita...
Ingibergur Guðmundsson
símar 452 2901 / 892 3080, netfang: ingibergur@ssnv.is
Sólveig Olga Sigurðardóttir
símar 455 6119 / 857 0251, netfang: solveig@ssnv.is
Vinnustofur / viðtalstímar
Atvinnuráðgjafar SSNV verða með vinnustofur/
viðtalstíma á neðangreindum stöðum þar sem boðið
verður upp á einstaklingsaðstoð við gerð umsókna,
veittar upplýsingar um aðra styrkmöguleika, auk
almennrar aðstoðar í tengslum við atvinnu- og
menningarstarfsemi.
Við hvetjum umsækjendur og aðra þá sem áhuga
hafa eindregið til að nýta sér þessa þjónustu.
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR > HVAMMSTANGI
Kl. 15–18 Skrifstofa SSNV, Höfðabraut 6
MIÐVIKUDAGUR 27. JANÚAR > BLÖNDUÓS
Kl. 15–18 Fundarsalur Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR > SKAGASTRÖND
Kl. 15–18 Skrifstofa SSNV, Einbúastíg 2
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR > SAUÐÁRKRÓKUR
Kl. 13–18 Kaffi Krókur
MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRÚAR > VARMAHLÍÐ
Kl. 15–18 Hótel Varmahlíð
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR > HOFSÓS
Kl. 15–18 Frændgarður
ný
pr
en
t e
hf
. /
0
12
01
6
www.skagafjordur.is
Álagningu
fasteignagjalda
2016 er lokið
Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta
nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt
að sækja álagningarseðla á vefsíðuna island.is undir flipanum "Mínar síður".
Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem þess óskuðu. Greiðsluseðlar
vegna fasteignagjaldanna birtast í öllum heimabönkum og sendir þeim sem óskað hafa eftir
að fá þá heimsenda.
Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt til bráðabirgða hjá elli- og örorku-
lífeyrisþegum og miðað er við tekjur ársins 2014. Þegar álagningu 2016 vegna tekna ársins 2015
liggur fyrir í ágúst nk. verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða
skuldar eftir því sem við á. Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum.
Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.
Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar
á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000 eða í innheimta@skagafjordur.is
Vélavörður / Vélstjóri
Dögun ehf. leitar að vélaverði
á nýtt skip félagsins. Leitað er að aðila með
réttindi (750 kw) sem jafnframt getur leyst af
yfirvélstjóra. Reynsla af togveiðum,
helst á rækju, æskileg.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsóknir,
með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
með tölvupósti til:
oskar@dogun.is og/eða gissurb@simnet.is.
Nánari upplýsingar veita Gissur Baldursson í síma 690-1652
eða Óskar Garðarsson í síma 892-1586.
Dögun ehf. var stofnað árið 1983. Fyrirtækið stundar
rækjuvinnslu og útgerð og er með aðsetur á Sauðárkróki.
Ódýrust í Skagafirði
Verðkönnun á skóladagvistun
með hressingu og hádegismat
Skv. verðlagseftirliti ASÍ er
skóladagvistun, með
hressingu og hádegismat,
ódýrust hjá Sveitarfélaginu
Skagafirði en það er 56%
ódýrara en hjá Garðabæ, sem
er með dýrustu skóladag-
vistunina. Greint er frá þessu
á vef ASÍ.
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði
breytingar á gjaldskrám fyrir
skóladagvistun ásamt hressingu
og hádegismat, fyrir yngstu nem-
endur grunnskólanna, hjá 15
fjölmennustu sveitarfélögum
landsins.
Þrettán sveitarfélög af þeim
fimmtán sem skoðuð voru hafa
hækkað gjaldskrána fyrir há-
degismat milli ára. Tekið er mið
af mánaðaráskrift í saman-
burðinum. Þar var mesta hækk-
unin 9% hjá Garðabæ og Sveitar-
félaginu Skagafirði. Gjaldið
hækkar úr 428 kr. í 465 kr. hjá
Garðabæ og úr 359 kr. í 391 kr.
hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.
Þegar skoðaður er saman-
lagður kostnaður fyrir skóla-
dagvistun, með hressingu og
hádegismat, er Sveitarfélagið
Skagafjörður með lægsta verðið
fyrir þessa þjónustu á 22.953 kr./
mán. en hæsta verðið er hjá
Garðabæ 35.745 kr./mán. en það
er 12.792 kr. verðmunur á mán-
uði eða 56%. /BÞ