Feykir


Feykir - 28.01.2016, Síða 11

Feykir - 28.01.2016, Síða 11
04/2016 11 KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautirnar gæti gleymt sér við að hugsa um bolludaginn. Spakmæli vikunnar Hryggasti trúðurinn er sá sem brosir alltaf. - George Seldes Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING oli@feykir.is Vissirðu að... ÓTRÚLEGT – EN KANNSKI SATT ... í meðal manneskju eru um 97 þúsund kílómetrar af æðum? ... hitastigið í miðju sólarinnar er talið vera 15 milljón gráður? ... demantar eru harðasta efni sem við þekkjum? ... grasker er í raun ávöxtur? ... úrslitaleikurinn á HM í knattspyrnu 2022 fer fram í borginni Lusail í Quatar en borgin er ekki til sem stendur? Hahahahaha ... hehe ... „Ertu ánægður með nýja hundinn þinn?“ „Já mjög, hann sækir til dæmis alltaf Moggann fyrir mig.“ „En eru ekki margir hundar sem gera það?“ „Jú jú, en ég er ekki áskrifandi...“ Krossgáta komin með loka niðurstöðu í því máli) 2 bananar (vel stappaðir) 1 tsk salt ½ tsk matarsódi 5 dl hveiti Aðferð: Þeyta egg og sykur vel saman, mauka bananana og hræra saman við. Blanda þurr- efnunum í skál og hræra hveiti- blöndunni varlega saman við hitt. Sett í form sem rúmar 1½ líter. (smurt eða klætt að innan með bökunarpappír). Bakað í 45 mín. við 200°C. MEÐLÆTI Ostasalat Ostasalatið er í raun uppáhalds ostasalat hvers og eins en sýrðum rjóma og majonesi er skipt út fyrir kotasælu. Í eina stóra dós af kotasælu set ég yfirleitt: 1 Mexíkóost 1 piparost 1 ½ - 2 rauðar paprikur svolítið af fínt skornum rauðlauk vel af púrrulauk og nóg af niðurskornum vínberjum Aðferð: Þessu er öllu hrært saman og best að láta standa í kæli í nokkra klukkutíma áður en á að bera það fram. Þetta eru uppskriftir sem allir ættu að ráða við og nýtast vonandi einhverjum. Við skorum á nýju stór- bændurna á Tannstaðarbakka í Hrútafirði, Guðrúnu Eik Skúla- dóttur og Óskar Má Jónsson. Verði ykkur að góðu! Kjúllaréttur, bananabrauð og ostasalat sem slær í gegn AÐALRÉTTUR Kjúllaréttur Kjúklingabringur (nota oft kjúklingalundir í staðinn) 50 g smjör/smjörlíki 2 dl BBQ sósa 1 dl soya sósa 1 dl apríkósumarmelaði 100 g púðursykur Aðferð: Allt nema kjúllinn hitað saman í potti. Kjúllinn steiktur á pönnu og settur í eldfast mót. Sósunni úr pottinum hellt yfir kjúllann í mótinu. Sett í 150°C heitan ofn í 20 mín. í það minnsta, þarf lengri tíma ef bringurnar eru mjög þykkar. Langbest að bera fram með hrísgrjónum og góðu salati. MEÐLÆTI Bananabrauð 1 egg 3 dl sykur (hef verið að prófa mig áfram með að minnka magnið af sykrinum og auka við bananana í staðinn, en er ekki MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN berglind@feykir.is „Það er ekki hægt að segja að við séum mikið fyrir flóknar uppskriftir eða tímafrekar, við notum yfirleitt bara netið og „googlum“ það sem okkur langar að elda og finnum hentugustu (eða auðveldustu) uppskriftina og förum eftir henni,“ segja matgæðingarnir Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir og Magnús Ásgeir Elíasson á Stóru- Ásgeirsá í Víðidal. „Elsta mataruppskrift í handskrifuðu matreiðslubókinni hér er af kjúklingarétti sem klikkar seint en hann eldum við þegar okkur langar að gera vel við okkur í öðru en lambakjöti. Við skellum líka með uppskrift af ostasalati með kotasælu sem slær í gegn við hin ýmsu tækifæri og uppskrift af bananabrauði sem fæstir geta staðist.“ Rannveig og Magnús matreiða Rannveig og Magnús. MYND: ÚR EINKASAFNI Feykir spyr... Fylgist þú með Ófærð á RÚV? Spurt á Facebook UMSJÓN siggag@nyprent.is „Já, ég fylgist ofurspennt með og ég sem er ekki mikil sjónvarpskona.“ Valborg Jónína Hjálmarsdóttir „Já, horfi alveg á þá. Fínir þættir.“ Svanhvít Gróa Guðnadóttir „Nei, ég fylgist ekki með “ Súsanna Margrét Valgarðsdóttir „Já, ég fylgist með, enn eitt meistaraverkið hjá Baltasar“ Ragnar Heiðar Ólafsson „Ég fylgist alltaf með en blóta alltaf yfir því hve ótrúverðug mörg atriðin eru.“ Stefán Arnar Ómarsson

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.