Feykir - 08.06.2016, Qupperneq 4
4 22/2016
Auglýsing um skipan í kjördeildir
í Sveitarfélaginu Skagafirði
Við forsetakosningar sem fram fara laugardaginn 25. júní n.k.
er skipan í kjördeildir sem hér segir:
Kjördeild í Félagsheimilinu Skagaseli,
þar kjósa íbúar fyrrum Skefilstaðahrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Bóknámshúsi FNV,
þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs- og Rípurhrepps
– kjörfundur hefst kl. 09:00
Kjördeild í Grunnskólanum að Hólum,
þar kjósa íbúar fyrrum Hóla- og Viðvíkurhrepps – kjörfundur hefst kl. 12:00
Kjördeild í Grunnskólanum á Hofsósi,
þar kjósa íbúar fyrrum Hofshrepps – kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Grunnskólanum á Sólgörðum,
þar kjósa íbúar fyrrum Fljótahrepps – kjörfundur hefst kl 12:00
Kjördeild í Varmahlíðarskóla,
þar kjósa íbúar fyrrum Lýtingsstaða – Staðar – og Seyluhrepps
– kjörfundur hefst kl. 10:00
Kjördeild í Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki,
kjörfundur hefst kl. 13:00
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst, enda sé þá hálf klukkustund liðin
frá því að kjósandi gaf sig síðast fram, og hvenær sem er ef allir sem á kjörskrá
standa hafa greitt atkvæði.
Kjörfundi má einnig slíta fimm klukkustundum eftir opnun ef öll kjörstjórnin er
sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast
fram.
Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22:00
Unnt er að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumanni Norðurlands vestra á Sauðárkróki
til kl. 15:00 virka daga fram að kjördag og kl. 16:00-18:00 á kjördag þ. 25. júní 2016
Yfirkjörstjórn verður með aðstöðu í Bóknámshúsi FNV.
Yfirkjörstjórn.
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Feðgar spiluðu saman í sigurleik Stólanna
Íslandsmótið í knattspyrnu : 3. deild : Tindastóll - KFR 4-0
Lið Tindastóls tók á móti
Knattspyrnufélagi Rangæinga
(KFR) á Hofsósi á sunnudaginn.
Tindastólsmenn höfðu unnið
síðustu tvo leiki sína í 3. deildinni
og bættu þeim þriðja við með
góðum leik en lokatölur urðu 4-0.
Ragnar Þór Gunnarsson gerði
fyrsta mark leiksins á 26. mínútu og
hann bætti öðru marki við á sjálfri
markamínútunni, þeirri 43. Ragnar
fullkomnaði síðan þrennuna á 60.
mínútu. Lokaorðið átti síðan
Benjamín Gunnlaugarson með marki
á 75. mínútu. Tindastóll er nú í öðru
sæti í 3. deild. Stólarnir sækja
Vopnfirðinga heim næstkomandi
laugardag en síðan kemur EM-hvíld á
Íslandsmótinu.
Gísli og Jón Gísli
Feðgarnir Gísli Eyland Sveinsson og
Jón Gísli Eyland Gíslason tóku báðir
þátt í leiknum í gær. Gísli, sem er 42
ára og hefur spilað yfir 200 deildarleiki
með liði Tindastóls, stóð í markinu.
Hann hefur hvað eftir annað bjargað
Stólunum fyrir horn síðustu árin og
smellt á sig hönskunum eftir að hann
lagði þá á hilluna.
Jón Gísli, sem er 14 ára, og á eldra
ári í 4. flokki, er yngsti leikmaðurinn í
sögu Tindastóls til að spila með
meistaraflokki félagsins, en hann
bætti met landsliðsmannsins Rúnars
Más Sigurjónssonar sem var áður
yngsti leikmaður félagsins. Jón Gísli
kom inná sem varamaður þegar um
stundarfjórðungur var eftir. /ÓABFeðgarnir kátir að leik loknum. MYND: ÓBS
Þátttaka góð
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ á Sauðárkróki
Konur á öllum aldri lét þokuna á laugardaginn
ekkert á sig fá, heldur fjölmenntu í Sjóvá
Kvennahlaup ÍSÍ á Sauðárkróki. Þegar
þátttakendur höfðu nælt sér í í einkennisboli
hlaupsins hófst upphitun við Sundlaug
Sauðárkróks, undir stjórn Árna Stefánssonar.
Var síðan hlaupið af stað, og vegalengdir og
hraði eftir getu hvers og eins. Að sögn Völu
Hrannar Margeirsdóttur, sem sér um hlaupið
annað árið í röð, ásamt þeim Margréti Helgu
Hallsdóttur og Önnu Hlín Jónsdóttur, voru um
120 þátttakendur á Sauðárkróki.
Hlaupnir voru 3, 5 og 7 km og að hlaupinu
loknu fengu allir þátttakendur verðlaunapening,
hressingu og frítt í sund. Einnig verða veitt
útdráttarverðlaun sem gefin voru af Skrautmen,
Ólafshúsi, Líkama og lífsstíl og Sundlaug Sauðár-
króks. Dregið verður út á næstu dögum og vinn-
ingshafar kynntir á fésbókarsíðu hlaupsins. /KSE
Framkvæmdir
við sundlaug
hefjast í haust
Frumdrög af teikningum
Sundlaugar Sauðárkróks
Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks hefur
samþykkt að farið verði í hönnun byggingar-
nefndarteikninga og kostnaðargreiningu á
breytingum á Sundlaug Sauðárkróks samkvæmt
fyrirliggjandi drögum frá Úti og inni arkitektum,
sömu og teiknuðu viðbyggingu Árskóla. „Þetta
erU ekki fullmótaðar tillögur en þetta er
hugmyndafræðin sem við erum að vinna eftir,“
sagði Stefán Vagn Stefánsson, formaður
nefndarinnar, í samtali við Feyki.
Það er verkfræðistofan Stoð ehf. sem mun annast
verkfræðiþátt framkvæmdarinnar. Framkvæmd-
um við breytingu og nýbyggingu vegna sund-
laugarinnar verður skipt upp í A og B áfanga. Í
áfanga A verður unnið við að breyta högun
innanhúss og þess háttar og felur áfangi B í sér
nýbyggingu útisvæða. Stefnt er að því að hefjast
handa við áfanga A í haust. Markmiðið er að halda
lauginni opinni eins mikið og kostur er á meðan
framkvæmdum stendur. „Við stefnum á að gera
ekki neitt hlé á þessu, við ætlum að halda áfram og
klára dæmið. Það hefur lengi verið hávær krafa
um þetta, komið fram alls konar hugmyndir og
útfærslur en flestar þeirra voru svo dýrar og
umfangsmiklar að það var ekki nokkur leið fyrir
Frá Kvennahlaupinu. MYND: KRISTÍN LIND SIGMUNDSDÓTTIR