Feykir


Feykir - 12.05.2010, Side 4

Feykir - 12.05.2010, Side 4
4 Feykir 18/2010 Það getur verið erfitt að flytja í nýtt samfélag. Það reyndist okkur hins vegar fremur auðvelt að flytja í Skagafjörð. Samfélagið hér tók ungu barnafólki opnum örmum og hér hefur ekkert mætt okkur annað en hlýja og hugulsemi. Mér varð því fljótlega ljóst að í Skagafirði býr gott fólk. Málin þróuðust þannig að við ákváðum að setjast að á Sauðárkróki til frambúðar. Ég vil ala börn mín upp í samfélagi sem leggur áherslu á gildi menntunar, samhjálpar og ábyrgðar. Í ábyrgð felst að taka virka afstöðu til samfélagsins sem við erum hluti af. Að axla ábyrgð er því ekki bara í höndum ráðamanna, heldur ekki síður í höndum hvers einasta íbúa landsins. Ég vil með framboði mínu axla ábyrgð sem íbúi í Skagafirði og leggja mitt af mörkum til þess að gera gott samfélag ennþá betra. Taka þarf til hendinni á raunhæfan og skipulegan hátt Þrátt fyrir að búsetuskilyrði Vil starfa af metnaði fyrir Skagafjörð! AÐSENT EFNI Arnrún Halla Arnórsdóttir skrifar séu hér á margan hátt einstaklega góð hef ég þó orðið fyrir töluverðum vonbrigðum með aðbúnað fjölskyldna á Sauðárkróki. Skólahúsnæðið er í niðurníðslu, illa hirtir leikvellir, Litli-skógur vel falinn og í slæmu ástandi, löng bið eftir leikskólaplássi, fáar eða engar hraðahindranir í íbúðahverfum. Lítið virðist hafa verið hugað að því að bæta aðbúnað barnafjöl- skyldna utan við byggingu hins nýja leikskóla. Hér þarf því eins og á mörgum öðrum sviðum að taka til hendinni á raunhæfan og skipulegan hátt, ekki síst í tengslum við skólahúsnæði. Ég vil einnig sjá uppbygg- ingu útivistarsvæða fyrir fjölskyldur. Litli-skógur er t.d. eitt af best geymdu leyndar- málum Sauðárkróks. Þegar ég rambaði á þennan veðursæla stað fyrir tilviljun varð ég hissa á því hvað honum var illa viðhaldið. Hvar voru leiktækin, blómin, og merkingarnar? Í heild sinni tel ég Skaga- fjörð vera svæði sem hefur upp á gríðarlega margt að bjóða en allt of margir keyra í gegnum fjörðinn án þess að átta sig á því. Það þarf því að hafa hærra um gæði og möguleika svæðisins fyrir ferðalanga og fyrirtæki. Þessari kynningu þarf sveitarfélagið að sinna betur með áherslu á samvinnu allra í sveitarfélaginu. Ég legg ætíð metnað og alúð í alla mína vinnu. Þannig vil ég starfa fyrir fólkið í Skagafirði. Arnrún Halla Arnórsdóttir, hjúkrunarfræðingur með kennsluréttindi og meistaragráðu í heilbrigðis-og lífsiðfræði, stundakennari við H.A., 3ja barna móðir og óþreytandi bjartsýnismanneskja. 3ja sæti Vinstri-grænna í Skagafirði í sveitarstjórnarkosningum 29.maí. Miklar breytingar hafa orðið á íslensku efnahagslífi á síðustu misserum. Góðærið sem tekið var að láni kvaddi skyndilega og við tóku tímar sem gera auknar kröfur til ráðdeildar stjórnenda. Sveitarstjórnin sem nú er að fara frá, skilar sveitarfélaginu óumdeilanlega í mun verri fjárhagslegri stöðu en þegar hún tók við. Tap á rekstri sveitarfélagsins er gríðarlegt á kjörtímabilinu eða vel á sjöunda hundruð milljóna króna, sem svarar til þess að tapið á rekstrinum hafi verið hátt í fimm hundruð þúsund krónur á hverjum einasta degi og að sama skapi hefur sveitarstjórnin verið dugleg við að bæta við skuldum eða um það bil einni milljón á dag sem hún hefur ráðið. Í stað þess að horfast í augu við alvarlega stöðu, þá hefur Fjórflokkurinn tekist á um hversu hratt eigi að auka skuldir og fara í framkvæmdir Verndum störf og velferð í Skagafirði AÐSENT EFNI Hrefna Gerður Björnsdóttir skrifar sem ekki er fjárhagslegt bolmagn fyrir. Sömuleiðis er forðast eins og heitan eldinn að ræða leiðir til úrbóta er þröng staða fegruð. Reikningar sveitarfélagsins fyrir árið 2009 bera með sér að endar hafi verið nokkuð langt frá því að ná saman, en tapið var um 250 milljónir krónur. Fyrir íbúa Skagafjarðar skiptir það afar miklu máli að jafnvægi náist sem allra fyrst, í rekstri sveitarfélagsins, en fjárhagsleg hagsæld er for- senda fyrir opinberri þjónustu og velferð. Sérstaklega stendur það einvala starfsliði sveitar- félagsins nærri að endar nái saman en það tryggir öruggt rekstrar- og starfsumhverfi. Það gefur auga leið að lang- framandi og aukinn halla- rekstur og skuldasöfnun sem sum stjórnmálaöfl bjóða upp á er bein ávísun á harkalegan niðurskurð. Við í Skagafirði höfum orðið vitni að stórtækum, til- viljunarkenndum og ósann- gjörnum niðurskurði ríkis- stjórnar Vg og Samfylkingarinnar sem er bein afleiðing af andvaraleysi og skuldasöfnun þjóðarbúsins. Hér er gott að búa og mikil tækifæri á margvíslegum sviðum til að gera gott betra. Vísasta leiðin til þess að vernda störfin, tryggja uppbyggingu og vernda áframhald á góðri þjónustu er að tryggja fjárhags- legan grunn sveitarfélagsins. Á lista Frjálslyndra og óháðra er margt ungt fólk sem vill byggja sína framtíð í Skagafirði á fjárhagslega traustum grunni. Hrefna Gerður Björnsdóttir 2. sæti F-listans og Sigurjón Þórðarson 1. Sæti F – listans. Eitt af megin markmiðum samfélagsins ætti að vera að gera ungu fólki kost á að snúa aftur til heimaslóðanna eftir að það hefur menntað sig. Til að þetta geti orðið að veruleika þarf samfélagið að byggja á fjölbreyttri atvinnustarfsemi þannig að sem flestir fái starf við sitt hæfi. Með þetta að leiðarljósi hefur verið unnið að því að koma á fót koltrefjaverksmiðju á Sauðárkróki, en slík verksmiðja getur skapað um 60 störf í fyrstu og á stuttum tíma getur hún orðið að 150 manna vinnustað. Kosturinn við starfsemi sem þessa er að störfin eru fjölbreytt og stór hluti þeirra er fyrir fólk með háskólamenntun. Það er raunhæfur möguleiki á því að koltrefjaverksmiðja verði reist á næstu árum á Sauðárkróki, en örlítið hik hefur orðið á stækkunaráformum kol- trefjaiðnaðarins vegna heimskreppunnar. Koltrefja- verksmiðja á Sauðárkróki verður til þess að efla atvinnulíf í Skagafirði og því komum við Koltrefjar á Króknum AÐSENT EFNI Þorsteinn Tómas Broddason skrifar til með að vinna að því verkefni á næstu árum. Þetta er þó ekki það eina sem við ætlum að gera á næstunni í uppbyggingu atvinnulífs heldur ætlum við að vinna að fjölda verkefna sem öll miðast við að bæta atvinnulífið. Nokkur verkefni sem við ætlum að leggja áherslu á; • Auka verðmætasköpun í sveitum með bættri aðstöðu til smáframleiðslu og dreifingu á fullunnum vörum. • Kanna möguleika þess að gera landbúnaðinn sjálfbærari með orkuframleiðslu. • Laða að fyrirtæki í matvælaiðnaði með góðri aðstöðu, uppbyggingu á rannsóknum og þróun í greininni og framsækinni umhverfisstefnu. • Styðja við uppbyggingu ferðaþjónustu með skipulögðum svæðum fyrir hótel, skemmtigarða og fleira. • Halda áfram með upp- byggingu trefjaiðnaðar í Skagafirði meðal annars með því að koma á námi í smíði og notkun trefja. • Vinna áfram að því að laða að fyrirtæki í rekstri netþjónabúa. Samfylkingin í Skagafirði ætlar að halda áfram að vinna að uppbyggingu atvinnu í Skagafirði í samstarfi við íbúa og fyrirtæki. Látið okkur vita ef þið eruð með góðar hugmyndir sem þið viljið koma á framfæri, við hlustum. Þorsteinn Tómas Broddason er markaðs- og frumkvöðlafræðingur frá Háskólanum í Stavanger. Hann er Skagfirðingur í húð og hár og skipar annað sæti Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarkosningunum 2010.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.