Feykir


Feykir - 12.05.2010, Blaðsíða 11

Feykir - 12.05.2010, Blaðsíða 11
18/2010 Feykir 11 ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) Valdís og Rúnar kokka Gott naut á grillið FORRÉTTUR Tipparúllur Tortilla kökur 2 pakkar. Rjómaostur hálft box Salsasósa 1 krukka medium 1 pakki af skinku eða eftir smekk. Hálfur fínt saxaður rauðlaukur 1 rauð paprika Rjómaosturinn og salsasósan hrærð saman og smurt á hverja köku. Skinkunni, lauknum og paprikunni er svo dreift yfir. Hverri köku er svo rúllað upp og skorin í litla bita. Einnig er þetta gott snakk í partýium, en þetta er aðal snakkið á Þjóðhátið í Eyjum. AÐALRÉTTUR Grillaður nautavöðvi Vöðvinn er látinn marinerast í grillolíu og út á hann sett salt, pipar og smá af kryddinu „Best á kjúklinginn“. Hann er grillaður þannig að hann er hafður á frekar háum hita fyrst til að loka honum og svo er hann látinn malla í smá stund á lægri hita. Vöðvinn er svo tekinn í hús og látinn standa á borði í ca. 10 mín. til að láta hann jafna sig og síðan er hann skorinn. Með þessari aðferð helst allur safinn í vöðvanum. Með þessu er gott að vera með ferskt salat og rífa piparost í það. Köld piparsósa, grillaðar kartöflur og grillaður rauðlaukur. EFTIRRÉTTUR Bomba 1 lítri af karmelluís 1 peli þeyttur rjómi og vanillusykur settur í hann Saxað Tromp Uppskriftir vikunnar eru frá þeim Valdísi Brynju Hálfdánardóttur og Rúnari Þór Númasyni á Hofsósi. Í forrétt eru tortillakökur, grillaður nautavöðvi í aðalrétt og bomba í restina til að fullkomna veisluna. -Við skorum svo á stórbændurna Auði Björk Birgisdóttur og Rúnar Pál Hreinsson búsett á Grindum í Deildardal að koma með næstu uppskrift. Saxað Rís Saxaður Þristur Skorin vínber Skorin jarðarber Skorin kíwi Bláber 4 kókosbollur Þessu er öllu hrært saman nema kókosbollunum, en þær eru kramdar og settar ofan á. Einnig er tekið smá af öllu og sett ofan á til skreytingar. Þetta er svo sett í mót og inn í frysti og svo látið aðeins taka sig áður en það er borið fram. Verði ykkur að góðu! 30 Áfram höldum við að glugga í gamlan Feyki og berum fyrst niður í Fljótunum þar sem undarlegir atburðir áttu sér stað árið 1990. Fyrir 20 árum Kviknað í út frá síma. Dularfullt mál kom upp í Fljótum í maí 1990 þegar íbúðarhúsið á Gautastöðum, eyðibýli fram í Stíflu brann til kaldra kola. Frá þessu er greint í 19. tölublaði Feykis sama ár. Sagt er frá því að húsið hafi verið notað sem sumarbústaður en ekkert rafmagn verið á húsinu og því útilokað að kviknað hafi út frá því. En símalína lá af staur og inn í húsið og var hún tallin hafa komið við sögu. Við rannsókn hölluðust menn helst að því að kviknað hafi í út frá eldingu er slegið hafi niður í símastaurinn við upphaf óveðurs sem geisaði á svæðinu. Allir kvöddust sem vinir á síðasta fundi bæjarstjórnar Sauðárkróks sem haldinn var um miðjan maí 1990. Sagt er að umræður hafi ekki verið miklar né heitar en fulltrúar hafi kvatt hverjir aðra með vinsemd og virðingu og þökkuðu samstarfið á kjörtímabilinu. Á fundinn voru mættir margir frambjóðenda, verðandi fulltrúar í bæjarstjórn Sauðárkróks. „Ég held þeir hafi verið alveg steinhissa og orðið allt að því fyrir vonbrigðum, hvað menn skildu með mikilli vinsemd“, sagði Snorri Björn Sigurðsson þáverandi bæjarstjóri. Eigum við ekki að vona að þetta verði haft að leiðarljósi í öllum sveitarfélögum í ár. Vatnavextir í Vatnsdal. Mikil flóð voru í Vatnsdal um miðjan maí fyrir 20 árum og flæddi áin víða yfir bakka sína.T.d. flæddi yfir báða bakka neðan við Hnausabrú og allt var á floti í vatni milli Gilsstaða og Hvamms. Voru menn helst að vona að þessi miklu vatnavextir hefðu ekki áhrif á veiði í ánni en Hvöt á góðri sigurstund. Frá vinstri efri röð: Ari Guðmundur Guðmundsson, Hermann Arason, Sig- urður Örn Ágústsson og Valgeir Matthías Baldursson. Neðri röð frá vinstri: Axel Rúnar Guðmunds- son, Ragnar Zophonías Guðjónsson, Ásgeir Valgarðsson og Hörður Guðbjörnsson. Feykir á þrítugasta aldursárinu Sími orsakaði íkveikju í Fljótum hún átti að hefjast mánuði síðar eða 15. júní. Hagnaður á fjármagnslið er fyrirsögn á frétt um afkomu Kaupfélags V. Hún. en hagnaður var á öllum deildum kaupfélagsins árið 1989. Veltuaukning milli ára varð rúmlega 20%. Í fréttinni segir að fjármagnskostnaður plagi ekki KVH eins og mörg önnur fyrirtæki. Hins vegar segir að staða viðskiptamanna hafi versnað nokkuð á árinu, skuldir umfram innistæður jukust um 10 milljónir. Feyki fyrir 10 árum Slítur tengslum við Búmenn segir í fyrirsögn í 18. tbl. Feykis árið 2000 en þar er um að ræða Búhöldur sem er nýtt húsnæðissamvinnufélag á Sauðárkróki og ætlar að sjá um byggingar fyrir eldri borgara í Skagafirði. Byggingafélagið Búmenn var stofnað á landsgrundvelli til sömu verka en Þórður Eyjólfsson forsvarsmaður nýja félagsins sagði að menn hefðu fengið sig fullsadda á samskiptum við móðurfélagið Búmenn syðra og hér sjá menn sínum málum betur borgið með því að taka þau í sínar hendur. Reynir Ingibjartsson framkvæmdastjóri Búmanna var hins vegar ekki sáttur hvernig málin þróuðust og vildi ná sáttum. Hann sagði aðila í Skagafirði ekki hafa sýnt nægjanlega þolinmæði og vilji flýta sér um of áður en málin séu komin í viðunandi horf. Búhöldur hélt sínu striki og fagnaði 10 ára afmæli sínu fyrr á árinu. Innbrot í Árvirkni. Á Blönduósi var brotist inn í Árvirkni og nokkru af rafmagnsverkfærum var stolið og einhverju af lager fyrirtækisins. Peninga höfðu þjófarnir ekki upp úr krafsinu þó þeir gerðu, eftir verks- ummerkjum að dæma, ítarlegar tilraunir til að brjóta upp peningaskáp.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.